Síða 1 af 1
Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 12:14
af capteinninn
Var að horfa á
þetta Ted talk eftir Mikko Hypponen um NSA og njósnir Bandaríkjamanna og ég fór að spá að skipta bara yfir í Ubuntu eða einhver önnur sambærileg Linux distro bara upp á prinsippið og hætta að nota forrit búin til af Bandarískum aðilum.
Ég veit að þau bjóða upp á langflest sem Windows OS-ið mitt býður upp á fyrir utan tölvuleiki en ég myndi þá hugsanlega bara dual-boota upp í Win fyrir leikina eða skipta yfir í SteamOS (ef þeir munu supporta Origin leiki eins og BF seríurnar).
En svo fór ég að velta því fyrir mér hvort það hefði einhver áhrif, eru ekki Linux distro-in líka öll compromised af Bandarískum njósnastofnunum eða frá öðrum ríkjum?
Annars veit ég líka að einn user að skipta breytir voða litlu en Mikko náði að láta mig fara að pæla í þessu.
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 12:40
af gardar
Þegar hugbúnaður er open source þá er hverjum sem er frjálst að lesa kóðann í forritinu, ef það er eitthvað fishy í gangi þá eru miklar líkur á því að einhver hafi rekið augun í það. Auðvitað er það ekkert 100% oryggt en þó alveg talsvert meiri líkur á að það sé ekki e-ð fishy í gangi í open source hugbúnaði.
Ef þú vilt vera alveg viss um að búnaður sé hreinn þá þarftu að smíða vélbúnaðinn sjálfur frá grunni og skrifa sjálfur allan hugbúnað á hann.
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 13:23
af Viktor
Annaðhvort það, eða að hætta að hafa eitthvað að fela
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 14:24
af rango
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 14:25
af capteinninn
Sallarólegur skrifaði:Annaðhvort það, eða að hætta að hafa eitthvað að fela
Svo mikið bullshit argument. Eins og allir í heiminum hef ég eitthvað að fela.
Horfðu kannski á myndbandið og þá heyrirðu hann útskýra hvað þetta er mikill bullpunktur sem margir koma fram að þeir hafa ekkert að fela. Ef þú hefur ekkert að fela ertu þá til í að setja allt browsing history hjá þér á netinu á netið svo að allir geti séð hvað þú hefur verið að skoða, viltu setja upp tracker þannig að hægt sé að fylgjast með því hvert þú ferð alltaf. Hugsaðu aðeins lengra hvort þú hefur nákvæmlega ekkert að fela og svaraðu svo.
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 14:33
af Viktor
Mér finnst bara svo ólíklegt að einhver nenni að fara að skoða hvað ég er að gera, það eru 7000000000 aðrar manneskjur í þessum heimi. Sérstaklega þar sem að ef þú setur metnað þinn í að skoða það þá muntu ekki finna neitt áhugavert, svo það væri innilega tilgangslaust
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 14:48
af Moldvarpan
En ef þú værir ekki Sallarólegur, gefum okkur að þú værir eitthver forstjóri/forseti eh fyrirtækis/lands, Þá er ég nokkuð viss um að þér væri ekki alveg jafn sama.
Þetta snýst ekki um að hafa eitthvað að fela, heldur gagnaöryggi og trúnaður. Flestir segja ekki öllum allt, sín aðgangsorð, bankareikninga, kynlíf og margt margt annað sem við teljum til friðhelgis einkalífs.
Þetta á alveg eins við um gögnin okkar.
Svo mér finnst þetta mjög eðlilegar pælingar í ljósi þessara gríðarlega umfangsmikla hlerunarmáli, og efast um að við höfum heyrt alla söguna enn.
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 14:52
af Bjosep
Sallarólegur skrifaði:Annaðhvort það, eða að hætta að hafa eitthvað að fela
Kúkarðu með opnar dyr? Ef ekki, er það vegna þess að þú hafir eitthvað að fela?
Ertu með gluggatjöld heima hjá þér? Ef svo, af hverju? Hefurðu eitthvað að fela?
Læsirðu útidyrahurðinni þegar þú ferð í vinnuna eða í frí? Ef svo, af hverju? Ertu á móti því að ókunnugir valsi um húsið þitt?
Finnst þér það réttmætt að fólk njóti ekki næðis lengur vegna þess að mögulega gæti eitthvað skeð sem er ólíklegra en að þú deyir af völdum geitungabits?
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 15:08
af HalistaX
Bjosep skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Annaðhvort það, eða að hætta að hafa eitthvað að fela
Kúkarðu með opnar dyr? Ef ekki, er það vegna þess að þú hafir eitthvað að fela?
Ertu með gluggatjöld heima hjá þér? Ef svo, af hverju? Hefurðu eitthvað að fela?
Læsirðu útidyrahurðinni þegar þú ferð í vinnuna eða í frí? Ef svo, af hverju? Ertu á móti því að ókunnugir valsi um húsið þitt?
Finnst þér það réttmætt að fólk njóti ekki næðis lengur vegna þess að mögulega gæti eitthvað skeð sem er ólíklegra en að þú deyir af völdum geitungabits?
Þér er velkomið að koma og horfa á mig kúka, ég nota gluggatjöldin til þess að blokka sólina, læsi ekki útidyrahurðinni og ókunnugum er velkomið að kíkja í kaffi...
Mér þykir þetta óþarfa paranoia. Flott að einhverjir leynilúðar útí heimi séu að fara í gegnum youtube sem og youporn historyið mitt, svo lengi sem þeir dæma mig ekki fyrir shemale on female vídjóin sem ég hef lúmskt gaman að.
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 17:22
af Viktor
Bjosep skrifaði:Finnst þér það réttmætt að fólk njóti ekki næðis lengur vegna þess að mögulega gæti eitthvað skeð sem er ólíklegra en að þú deyir af völdum geitungabits?
Líkurnar væru væntanlega hærri ef enginn gerði neitt til þess að sporna við því
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 21:35
af rango
Sallarólegur skrifaði:Líkurnar væru væntanlega hærri ef enginn gerði neitt til þess að sporna við því
Er það svo, Virkilega. Slæmt fólk gerir slæma hluti og það að riðlast á mér er ekki að sporna við því.
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_te ... _incidentsOg þú villt virkilega meina að þetta sé að hafa áhrif?
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 22:06
af upg8
Er þá ekki mál að sniðganga Google og Android? Trekk í trekk hafa Google brotið á privacy stillingum notenda og barist af hörku gegn "do not track" eiginleikum í vefskoðurum. Google jafnvel notuðu tracking cookies til að fylgjast ólölglega með vefsíðunotkun notenda Safari á iPhone í 2 ár. NSA hefur beinan aðgang að öllum cookies og notar þær til að finna skotmörk til að njósna um.
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Þri 24. Des 2013 22:55
af appel
Ég er með ghostery, https everywhere, lightbeam, ad-block-plus o.s.frv.
En held að það sé engan veginn nóg.
Ég vil browser sem notast við origin-server eingöngu, þ.e. ef ég slæ inn
http://www.vaktin.is þá má browserinn ekki sækja gögn frá öðrum server en
http://www.vaktin.is. Núna getur vefsíðan á
http://www.vaktin.is referrað á google.com, og svona cross-referencing er það sem gerir tracking kleift.
Einnig vil ég browser sem er bara viewer, ekki application sand-box, þ.e. browser sem sýnir bara html+css+myndir, en er ekki með neitt javascript, flash eða annað supportað.
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Mið 25. Des 2013 04:11
af appel
- snowden.jpg (55.11 KiB) Skoðað 723 sinnum
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Mið 25. Des 2013 10:56
af CendenZ
Svo fer maður á lan með strákunum og allir eru "ka erette marr, ég hef ekkert að fela"
Svo segi ég... hey, viltu share-a dótinu þínu ? og þá kemur alltaf "já, bíddu aðeins" og þá er ekki allt share-að, bara það sem ég má sjá og fá
Re: Hætta að nota US based forrit
Sent: Mið 25. Des 2013 11:05
af Hjaltiatla
Ég LOL-aði þegar ég sá 60 minutes þáttinn um starfsemi NSA og sá Windows Xp client vél í bakgrunninum