Síða 1 af 1

Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fim 19. Des 2013 21:23
af Output

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fim 19. Des 2013 21:35
af GuðjónR
Output skrifaði:http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2013/12/19/hoftin_stodva_vidskipti_med_bitcoin/

Hvað finnst fólk um þetta?


Verð nú að segja að þetta kemur mér ekkert sérstaklega á óvart.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fim 19. Des 2013 21:53
af magnusgu87
Las gott komment á pírataspjallinu, hvort seðlabankinn væri ekki með þessari yfirlýsingu að staðfesta að bitcoin væri í raunverulegur gjaldmiðill í þeirra augum. Fannst þetta athyglisverður punktur.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fim 19. Des 2013 21:58
af appel
magnusgu87 skrifaði:Las gott komment á pírataspjallinu, hvort seðlabankinn væri ekki með þessari yfirlýsingu að staðfesta að bitcoin væri í raunverulegur gjaldmiðill í þeirra augum. Fannst þetta athyglisverður punktur.

Það er full langt gengið að túlka ummæli SÍ sem þannig.

„Ekki verður séð að ákvæði laganna sem undanþiggja vöru- og þjónustuviðskipti frá áðurnefndum takmörkunum eigi við um viðskipti með Bitcoin eða að aðrar undanþágur frá takmörkunum laganna eigi við um slík viðskipti,“ segir í svari Seðlabankans.


Það er engin viðurkenning þarna frá SÍ um að bitcoin sé "raunverulegur gjaldmiðill". Hinsvegar skiptir sú viðurkenning eiginlega engu máli.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fim 19. Des 2013 22:05
af Monk
Seðlabankar út um allan heim hafa verið að keppast við að vara við bitcoin síðustu vikurnar. Þeir eru skíthræddir um að missa tökin á litlu lokuðu hagkerfunum sínum í hendurnar á neytendaöflum sem þeir hafa litla sem enga stjórn á.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fim 19. Des 2013 22:05
af blitz
Monk skrifaði:Seðlabankar út um allan heim hafa verið að keppast við að vara við bitcoin síðustu vikurnar. Þeir eru skíthræddir um að missa tökin á litlu lokuðu hagkerfunum sínum í hendurnar á neytendaöflum sem þeir hafa litla sem enga stjórn á.


Það er einmitt ástæðan.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fim 19. Des 2013 22:10
af appel
Monk skrifaði:Seðlabankar út um allan heim hafa verið að keppast við að vara við bitcoin síðustu vikurnar. Þeir eru skíthræddir um að missa tökin á litlu lokuðu hagkerfunum sínum í hendurnar á neytendaöflum sem þeir hafa litla sem enga stjórn á.


Tja, þeir fylgjast með honum út frá akademískum áhuga. Ben Bernanke er mjög "áhugasamur" um þróun Bitcoins, enda er Bitcoin mjög óvenjulegur gjaldmiðill. Þeir hafa varað venjulegt fólk við honum útaf því hve hverfull hann er.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fim 19. Des 2013 22:44
af rapport
blitz skrifaði:
Monk skrifaði:Seðlabankar út um allan heim hafa verið að keppast við að vara við bitcoin síðustu vikurnar. Þeir eru skíthræddir um að missa tökin á litlu lokuðu hagkerfunum sínum í hendurnar á neytendaöflum sem þeir hafa litla sem enga stjórn á.


Það er einmitt ástæðan.


WUT?

Fyrir mér er bitcoin einhverskonar crowdsourcing á skorti á almennri skynsemi og rétt að vara fólk við því að eyða alvöru peningum í þetta.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fös 20. Des 2013 00:08
af Viktor
Monk skrifaði:Seðlabankar út um allan heim hafa verið að keppast við að vara við bitcoin síðustu vikurnar. Þeir eru skíthræddir um að missa tökin á litlu lokuðu hagkerfunum sínum í hendurnar á neytendaöflum sem þeir hafa litla sem enga stjórn á.


Er það ekki frekar vegna þess hversu óstöðugur og ófyrirsjáanlegur?

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Fös 20. Des 2013 00:15
af Monk
Sallarólegur skrifaði:
Monk skrifaði:Seðlabankar út um allan heim hafa verið að keppast við að vara við bitcoin síðustu vikurnar. Þeir eru skíthræddir um að missa tökin á litlu lokuðu hagkerfunum sínum í hendurnar á neytendaöflum sem þeir hafa litla sem enga stjórn á.


Er það ekki frekar vegna þess hversu óstöðugur og ófyrirsjáanlegur?


Auðvitað segja þeir það en sama má segja um ýmis önnur viðskipti sem þykja fullkomlega eðlileg. Verðbréf eru til dæmis afskaplega óstöðug og ófyrirsjáanleg fjárfesting. Munurinn er að þau eru undir stjórn og lúta reglum allskonar ríkisbákna sem bitcoin gerir ekki. Fyrir mér er það nákvæmlega þetta regluleysi sem er svo heillandi við þessa tilraun sem Bitcoin er.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Mán 23. Des 2013 15:00
af GuðjónR

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Mán 23. Des 2013 15:21
af tlord
Þeir segja bara að Bitcoin sé hvorki vara né þjónusta.

Þess vegna vilja þeir meina að ekki sé heimilt að kaupa Bitcoin í gegnum höftin.

Menn þurfa að vera rólegir í að túlka....

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Mán 23. Des 2013 16:39
af Hargo
Mér finnst nú bara frábært að erlend fyrirtæki ákveða að koma hingað og hýsa sína netþjóna hjá Verne Holdings á Suðurnesjum, hvort sem þeir ætla að nota þá til að framleiða Bitcoin "gervipeninga" eða eitthvað annað.

En það verður áhugavert að fylgjast með þróun Bitcoin, það er á hreinu. Vonandi koma bara fleiri fyrirtæki með sína netþjóna til landsins og vilja hýsa sinn búnað á Íslandi.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Mán 23. Des 2013 16:48
af tlord
Hargo skrifaði:Mér finnst nú bara frábært að erlend fyrirtæki ákveða að koma hingað og hýsa sína netþjóna hjá Verne Holdings á Suðurnesjum, hvort sem þeir ætla að nota þá til að framleiða Bitcoin "gervipeninga" eða eitthvað annað.

En það verður áhugavert að fylgjast með þróun Bitcoin, það er á hreinu. Vonandi koma bara fleiri fyrirtæki með sína netþjóna til landsins og vilja hýsa sinn búnað á Íslandi.


hvað þýðir orð í gæsalöppum sem byrjar á "gervi" ? er það gervigervi eða ekkigervi :?

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Mán 23. Des 2013 16:51
af Hargo
Hehe það var aðallega vegna þess að þessi Paul Krugman í linknum sem GuðjónR linkaði á talaði um Bitcoin sem hálfgert gervigull og gervifyrirbæri.

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Mán 23. Des 2013 16:57
af tlord
Krugman er jólasveinn dude eins og flestir hagfræðingar. Hagfræði er ekki vísindi, þetta er frekar einhverskonar speki (sbr stjörnuspeki).

Hagfræði er reyndar líka undirgrein í félagsfræði. Möo allt er byggt á einhverjum túlkunum, mati, áliti og skoðunum..

Re: Höftin stöðva viðskipti með Bitcoin

Sent: Mán 23. Des 2013 18:16
af blitz
tlord skrifaði:Þeir segja bara að Bitcoin sé hvorki vara né þjónusta.

Þess vegna vilja þeir meina að ekki sé heimilt að kaupa Bitcoin í gegnum höftin.

Menn þurfa að vera rólegir í að túlka....


Það er nokkuð augljóst að Bitcoin fellur ekki undir viðskiptajöfnuð. Augljósast er að flokka BC undir fjármagnsjöfnuð og þ.al. undir höftin.