Síða 1 af 2
Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015 ••• FUNDINN •••
Sent: Mið 18. Des 2013 15:02
af chaplin
Bílnum mínum var stolið í nótt (17. des 01:00 - 18. des 09:00) - bið ykkur um að hafa augun opin.
Þetta er
VW Fox •
hvítur •
2006 árgerð • skráningarnúmer
KL015. Var staðsettur við Rauðarárstíg þegar honum var stolið.
Sími lögreglu:
444-1000
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 15:03
af Swanmark
Shit.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 15:14
af rango
Enn meiri ástæða til að vera með svona nörda pung og GPS í skottinu
Þetta er ekki lítið land, Hljótum að finna hann.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 15:18
af Monk
Viss um að hann hafi ekki verið dreginn bara? Ég fann minn einu sinni í vökuportinu.
Annars er ömurlegt þegar þetta gerist. Vona að hann finnist í heilu lagi.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 15:30
af chaplin
rango skrifaði:Enn meiri ástæða til að vera með svona nörda pung og GPS í skottinu
Þetta er ekki lítið land, Hljótum að finna hann.
Tek undir þetta með GPS tækið.
Monk skrifaði:Viss um að hann hafi ekki verið dreginn bara? Ég fann minn einu sinni í vökuportinu.
Annars er ömurlegt þegar þetta gerist. Vona að hann finnist í heilu lagi.
Búinn að hringja í fyrirtæki sem draga bíla og lögreglan var með enga tilkynningu frá þeim. Ef hann finnst ekki í heilu lagi sleppur þjófurinn ekki í heilu lagi.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 15:34
af Icelandgold
Vonandi finnst hann.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 15:57
af steinarorri
Þetta er ömurlegt að heyra.
Prófaðu að hringja í leigubílastöðvarnar og biðja þá um að hafa augun opin.
Vona að hann finnist heill.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 16:01
af Moldvarpan
Hefur mína samúð... veit ekki hvað ég myndi gera ef mínum bíl yrði stolið.
En settu þetta bara útum allt, og þá einna helst á FB og biðja vini um að deila þessu.
Því fleirri sem eru með augun opin, því meiri líkur á að hann finnst.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 16:12
af rango
chaplin skrifaði:Ef hann finnst ekki í heilu lagi sleppur þjófurinn ekki í heilu lagi.
Ofbeldi leysir engan vanda, Settu á hann múl og notaðu sem nýjan farakost.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 16:41
af chaplin
steinarorri skrifaði:Þetta er ömurlegt að heyra.
Prófaðu að hringja í leigubílastöðvarnar og biðja þá um að hafa augun opin.
Vona að hann finnist heill.
Ég tók leigubíl í vinnuna í dag og þetta er nákvæmlega það sem leigubílstjórinn sagði, líklegast besta ráð sem ég gat fengið þar sem það eru +300 leigubílar virkir hvern dag og fá þeir allir þessa tilkynningu.
Moldvarpan skrifaði:Hefur mína samúð... veit ekki hvað ég myndi gera ef mínum bíl yrði stolið.
En settu þetta bara útum allt, og þá einna helst á FB og biðja vini um að deila þessu.
Því fleirri sem eru með augun opin, því meiri líkur á að hann finnst.
+50 manns búnir að deila á Facebook, er að skoða það að kaupa auglýsingu til að vekja frekari athygli.
rango skrifaði:chaplin skrifaði:Ef hann finnst ekki í heilu lagi sleppur þjófurinn ekki í heilu lagi.
Ofbeldi leysir engan vanda, Settu á hann múl og notaðu sem nýjan farakost.
Ég átti ekki við ofbeldi enda ekki mikið fyrir ofbeldi, átti aðalega við að ég myndi fara með þetta eins hart og ég mögulega gæti þótt það gæti bara endað með að kosta mig meiri pening.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 16:43
af Dúlli
Leiðinlegt að heyra og vona að þú finnir hann aftur, En ert þú ekki að lenda í þessu kannski ?
Vísir - Margir týna bílnum sínum, Þetta er nefnilega 4 auglýsing sem ég sé af stolnum bíl í dag og þessir bílar áttu að vera stolnir í gær.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 16:46
af chaplin
Dúlli skrifaði:Leiðinlegt að heyra og vona að þú finnir hann aftur, En ert þú ekki að lenda í þessu kannski ?
Vísir - Margir týna bílnum sínum, Þetta er nefnilega 4 auglýsing sem ég sé af stolnum bíl í dag og þessir bílar áttu að vera stolnir í gær.
Ég trúði því ekki í morgun að bílnum hefði verið stolið svo ég hljóp hringinn í kringum hverfið, tvisvar sinnum, áður en ég fór og tilkynnti hann til lögreglu.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 16:56
af tdog
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 17:20
af chaplin
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 20:44
af vargurinn
þar sem hann sagði að hann hljóp tvisvar um hverfið giska ég að þetta hafi ekki verið í einhverri verslunarmiðstöð eða álíka með stórum bílastæðum.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 20:49
af Stuffz
sló inn "police exposes car theaf ring" og fékk þetta efst á blaði
http://www.israelnationalnews.com/News/News.aspx/169294"The car theft ring sent thieves from PA-controlled cities to Israeli cities, where they stole cars which were then dismantled. The gang then sold the car parts."Ef þetta væri hlutur af skipulagðri starfsemi þá svona lítill bíll er sjálfsagt auðvelt að setja inn í bílskúr og strippa niður í rólegheitunum, selja í varahluti.
ef þú varst með eitthvern sjaldgæfan aukahlut í bílnum sem ekki margir væru með á lager þá væri ráð að hringja hingað og þangað og spyrjast fyrir um þannig hlut með áhuga á að kaupa svoleiðis á góðu verði, ef svo svona stykki poppar svo upp eitthversstaðar og þú eða eitthver bílasérfræðingur sem þú þekkir berð nægilega góða kennslu á það þannig að hægt sé að láta lögreglu í té áræðanlega vísbendingu þá er líklegt að bílaþjófurinn finnist.
svo getur verið að þetta sé ekki selt hérlendis heldur fyllt í gám og sent erlendis, þetta er smátt land svo ef sérhæfðir aðilar með tengsl við skipulagða glæpastarfsemi þá myndu þeir mögulega frekar gera það til að lágmarka að verða fundnir.
svo eru klassískari dæmi eins og eitthver rugludallur stelur bíl og keyrir hann útá land í staðinn fyrir að taka leigubíl eða rútu.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 20:53
af Yawnk
Agalegt alveg... Hvað hefur fólk upp úr því að stela bílum á Íslandi, finnast þeir ekki alltaf? svo lítið land
Vona að þú finnir bílinn sem fyrst, gæti ekki ímyndað mér ef mínum yrði stolið
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 20:59
af Klaufi
Too soon?
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 21:04
af appel
Vá maður, það er ótrúlegt að glæpamenn komast upp með þetta. Hér áður fyrr var það stórglæpur að ræna bíl, það var auglýst í fréttatímum. Núna er þetta orðið svo algengt að lögreglan nennir ekki að sinna þessu, og eigendur þurfa sjálfir að leita að honum, auglýsa eftir bílunum sínum á facebook og svona. Fáránlegur heimur.
Hvar er hægt að kaupa svona staðsetningartæki?
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 21:09
af Klaufi
appel skrifaði:Hvar er hægt að kaupa svona staðsetningartæki?
Pm me
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 21:49
af jojoharalds
Leitt að heyra,en nú setjum við okkur í spor þjófana,(HVER Í FJANDANUM RÆNIR VW FOX)af öllu sem er í boði.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 21:54
af rango
deusex skrifaði:Leitt að heyra,en nú setjum við okkur í spor þjófana,(HVER Í FJANDANUM RÆNIR VW FOX)af öllu sem er í boði.
Nappi refur?
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 23:07
af Black
deusex skrifaði:Leitt að heyra,en nú setjum við okkur í spor þjófana,(HVER Í FJANDANUM RÆNIR VW FOX)af öllu sem er í boði.
Því miður er þetta oftast fólk sem er í svartamarkaðsbraski,Eru að gera við bíla og stela bílum og parta, og selja dýrara og græða. Sorglegt
Vona að bílinn finnist í lagi.
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 23:09
af Dúlli
Upp á forvitni hvaða segja tryggingar við svona mál ef bílinn finnst kannski aldrei ? hvað þá ? þarftu að kaupa nýjan sjálfur eða ?
Re: Bíl stolið • VW Fox • Hvítur • 2006 • KL015
Sent: Mið 18. Des 2013 23:26
af FuriousJoe
Algjörlega ótengt þessu máli en þá var ég að labba inn heima eftir langann vinnudag og sá að konan skildi bíllykilinn eftir í hurðinni á bílnum þegar hún kom heim fyrr í dag.
Þar sat lykillinn að húsinu og bílnum í 8 tíma.
Henni fannst þetta fyndið og var hissa á því að ég væri frekar pirraður á þessu. (hún er víst með einhverja "óléttu"-gleimsku.)
Ætla að láta hana lesa þennan þráð -.-
Vona svo innilega að þú fáir bílinn aftur í heilu lagi og fyrir jól.