Síða 1 af 1

Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 19:47
af bjornvil
Sælir félagar

Nú er það þannig hjá mér að ég verð að velja milli þess að vera með myndlykilinn eða turntölvuna mína tengda við ljósleiðarann þar sem aðeins ein Cat 5 snúra er frá sjónvarpinu að ljósleiðaraboxinu.

Ég nota að mestu leiti Netflix og ýmsar aðrar leiðir til að horfa á sjónvarpsefni, en oft er ég til í að setja bara eitthvað á án þess að þurfa að velja.

Ég næ RUV á netinu þar sem ég næ fréttunum og svoleiðis, en vitið þið um einhverjar aðrar sjónvarpstöðvar sem eru aðgengilegar á netinu í browser?

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 20:01
af BrynjarD

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 20:08
af Xberg
Skoðaðu t.d XBMC eða Plex

Eg er búin að losa mig við alla myndlykla og setja í staðinn fartölvur með XBMC + Netflix . Lítið mál að streyma efni í gegnum ftp server inná XBMC. Mjög þægilegt fyrir alla fjölskylduna hvar sem þau eru stödd í heiminum. :)

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 20:32
af kjarrig
Xberg skrifaði:Skoðaðu t.d XBMC eða Plex

Eg er búin að losa mig við alla myndlykla og setja í staðinn fartölvur með XBMC + Netflix . Lítið mál að streyma efni í gegnum ftp server inná XBMC. Mjög þægilegt fyrir alla fjölskylduna hvar sem þau eru stödd í heiminum. :)


Hvernig er með læstar stöðvar? Ertu ekki með læstar stöðvar eða komstu framhjá því?

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 20:38
af Stutturdreki
Held að hann sé ekki að tala um að horfa á sjónvarpsútsendingar..

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 21:01
af kjarrig
ok, skil þá ekki hvað er verið að blanda myndlyklum í málið :)

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 21:10
af Stutturdreki
Ekkert, nema hvað hann losaði sig við þá.

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 21:12
af bjornvil
Jú ég er einmitt að tala um sjónvarpsútsendingar. Ég nota Netflix og Plex til að horfa á efni en var að spá hvort það væri hægt að ná einhverjum öðrum stöðum heldur en bara RÚV á netinu.

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 21:13
af jardel
Hvað eruð þið sem eruð að nota netflix að eyða miklu gagnamagni yfir mánuðinn?

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 21:36
af Daz
jardel skrifaði:Hvað eruð þið sem eruð að nota netflix að eyða miklu gagnamagni yfir mánuðinn?


Algerlega ónothæf spurning. Þ.e.a.s. þú færð svör, en þau svör hjálpa þér ekkert. Googlaðu þér upplýsingar um hvað netflix straumar taka mikið gagnamagn (það er stillanlegt, fer eftir því hversu mikil gæði þú vilt) og reiknaðu svo út hvað þú vilt horfa mikið á mánuði.

(ég klára mín 100 gb reglulega, en ég nota netflix varla nema í 10-20% af því).

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 21:38
af Gislinn
jardel skrifaði:Hvað eruð þið sem eruð að nota netflix að eyða miklu gagnamagni yfir mánuðinn?


Þú getur stillt gagnamagnið eftir gæðum:
Low er allt að 0.3 GB per klst
Medium(standard) er allt að 0.7 GB per klst
High er allt að 3 GB per klst (720p til 1080p)

Re: Sjónvarp á netinu

Sent: Sun 15. Des 2013 21:39
af bjornvil
jardel skrifaði:Hvað eruð þið sem eruð að nota netflix að eyða miklu gagnamagni yfir mánuðinn?


Ég hef ekki klárað 100 GB ennþá, og ég er með mitt Netflix stillt á HD quality... Ég er lítið annað að hlaða niður erlent nema Netflix og svo þetta venjulega netráp, nema ég sæki leik af Steam, þá fara einhver GB í það.