Síða 1 af 1

Snæbjörn hættur.

Sent: Þri 10. Des 2013 15:28
af J1nX
http://www.dv.is/frettir/2013/12/10/hae ... ori-smais/

jæja hvað finnst mönnum? eru breytingar framundan?

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Þri 10. Des 2013 16:46
af magnusgu87
Ég hugsa nú að stærsti sigurinn verði ef rétthöfum tekst að fjölga valmöguleikum hér á landi. Ef úrvalið yrði aukið hér á landi held ég að það myndi einfalda þessa baráttum mikið,“ segir Snæbjörn.


Þessi maður er í sífelldu rugli, það væri ekki sigur fyrir rétthafa heldur miklu frekar neytendur að geta fengið afþreyingarefni á samkeppnishæfu verði í háskerpu! Rétthafar fá sitt í gegnum erlendar netveitur en þegar SMÁÍS leggur fram kærur á Tal sem er að bjóða upp á löglega þjónustu til að nálgast erlent afþreyingar þá eru þeir bara að vinna sér og sjálfum sér mein! Það er stórsigur neytenda og "niðurhalara" á íslandi að þessi maður lætur af störfum, mikið vona ég að það komi ekki jafn mikill þöngulhaus í hans stað!

Er hissa að þetta sé ekki búið að fá meir athygli hér á vaktinni en raun ber vitni...bíð spenntur eftir umræðunum.

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Þri 10. Des 2013 17:07
af AlexJones
Nú grunar mig það verði sett aukin harka í að berjast gegn ólöglegu niðurhali. Líklega vilja efnisréttaraðilar sjá SMÁÍS lögsækja einstaklinga.

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Þri 10. Des 2013 20:45
af Stuffz
Mér var aldrei illa við Snæbjörn þótt ég hafi verið mestmegnis ósammála honum lol.

kannski hann velji sér gagnlegri viðfangsefni í náinni framtíð.

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Þri 10. Des 2013 21:20
af Stutturdreki
Meh.. það var bara jobbið hans að vera leiðinlegur við netverja, eitt að bauna á hann sem front Smáís en annað að vera með einhverjar hótanir gagnvart honum eða hans fjölskyldu.

Næsti gaur verður amk. alveg jafn leiðinlegur því hann fer í nákvæmlega sama jobb.

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Þri 10. Des 2013 21:36
af tdog
Sko, þessi maður er ábyggilega bara ágætis gæi. Hann var bara frontur félags með ákveðnar skoðanir, þeirra sem borguðu honum, það getur vel verið að hann sem persóna hafi aðrar skoðannir en þær sem hann kynnti sem framkvæmdastjóri SMÁÍS.

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Þri 10. Des 2013 22:45
af zedro
Það verður áhugavert að sjá arftakann. Vonum að hann hugsi í lausnum frekar en höftum.
Hvernig megi gera efnið aðgengilegra á klakanum. Íslenskt Netflix og Hulu sem dæmi.
Jafnvel íslenska veitu, sem er ekki rándýr einsog filma.is

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Þri 10. Des 2013 23:04
af intenz
Zedro skrifaði:Það verður áhugavert að sjá arftakann. Vonum að hann hugsi í lausnum frekar en höftum.
Hvernig megi gera efnið aðgengilegra á klakanum. Íslenskt Netflix og Hulu sem dæmi.
Jafnvel íslenska veitu, sem er ekki rándýr einsog filma.is

=D>

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Þri 10. Des 2013 23:47
af Skaz
Það versta er að öllum líkindum verður arftaki hans bæði hæfari og meira í takt við hvað er að gerast í þessum málum.
Snæbjörn virtist alltaf vera áratug á eftir þróuninni og það sást í áherslum Smáís og yfirlýsingum hans í fjölmiðlum. Þetta var alltaf eins og ef að Amma og Afi eða eldri foreldrar væru að tjá sig eða reyna að taka á þessum málum.
Og það var skemmtilega fyndið að lesa sumt og sjá sum klúðrin og fíaskóin sem að komu í kjölfarið.

Er samt ansi hræddur um að það muni bara koma meiri harka og leiðindi í kjölfar ráðningar á arftaka hans...

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Mið 11. Des 2013 00:03
af rapport
Þið voruð s.s. ekki búnir að sjá þetta?

Mynd

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Mið 11. Des 2013 00:03
af AntiTrust
Gæti svosem séð fyrir mér e-rskonar aðgerðir gegn deildu, en ef þessi aðili hefur hálfan haus og er ekki með mentality á við 65 ára bjúrókrata býst ég ekki við því að sjá mikið um kærur á TAL, eða random litla users á innlendum síðum bara afþví að þeir skildu slóða eftir sig. Maður má amk vona.

Edit: Rapport, nice try ;) Hefðum amk ekki mikið til að hafa áhyggjur af ef svo væri.

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Mið 11. Des 2013 00:10
af worghal
rapport skrifaði:Þið voruð s.s. ekki búnir að sjá þetta?

Mynd

mér finnst alltaf jafn findið að hann skildi nefna umferðareglur, en aftur á móti getur hann engannveginn farið eftir þeim sjálfur :lol:
leggur upp á gangstéttum, keyrir of hratt í íbúðargötum og meira.

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Mið 11. Des 2013 00:11
af AlexJones
Ætli þeir ráði ekki bara Bubba í starfið? Hann er allavega duglegur að rakka niður unglinga.

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Mið 11. Des 2013 10:40
af Stutturdreki
Zedro skrifaði:Það verður áhugavert að sjá arftakann. Vonum að hann hugsi í lausnum frekar en höftum.
Hvernig megi gera efnið aðgengilegra á klakanum. Íslenskt Netflix og Hulu sem dæmi.
Jafnvel íslenska veitu, sem er ekki rándýr einsog filma.is


Smáís sem slíkt myndi aldrei standa í svoleiðis sjálft, heldur höfunarrétthafarnir sem standa á bakvið Smáís. Framkvæmdastjóri Smáís er bara að framfylgja því sem þessir höfundarrétthafar segja honum að gera.

Það er samt kannski smá von um að sá sem taki við sé víðsýnni og reyni að beina höfundarrétthöfunum inn á rétta braut, en veit svo sem ekkert hvaða skoðanir Snæbjörn hafði á þeim málum.

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Mið 11. Des 2013 20:22
af zedro
Stay on topic!

Nenni ekki að taka til í þriðja sinn. Skítkast, röfl eða meira off topic = aðvörun.
Set ykkur í bann í þokkabót ef þið getið ekki hagað ykkur einsog menn!

Re: Snæbjörn hættur.

Sent: Mið 11. Des 2013 20:36
af worghal
kanski ég ætti bara að sækja um.
það sem ég hef mér til hæfni er eftirfarandi.

Mikil reynsla af "nei þú!"
get talað í hringi, áttur ef þess er þörf.


vill líka benda á að það meikar ekki mikið sense að láta bubba í stjóra stólinn. hann er tónlistarmaður en ekki kvikmyndagerðarmaður.
auk þess er annar slíkur bavíani í stjórn á hinu batterýinu, STEF, þar sem Jakob nokkur Fríman situr við völd.
og hann herra Fríman er heldur ekkert of klár á umferðarlögin. :thumbsd