Síða 1 af 2
Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Mán 09. Des 2013 22:12
af tdog
Eftir að hafa lesið
þessa frásögn er ég eiginlega hálf skelkaður um framtíð landsins. Þessir menn, ef dæmdir sekir munu fá c.a 1-2 ára dóma fyrir þetta, hvað svo? Halda þeir ekki bara áfram.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Mán 09. Des 2013 22:13
af depill
Það sama og ég hugsaði í dag. Er ekki málið bara að taka upp útlegð aftur og segja okkur í Schengen.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Mán 09. Des 2013 22:19
af rango
depill skrifaði:Er ekki málið bara að taka upp útlegð
Ég var einmitt að hugsa þetta sama, sérstaklega t.d. um barnaníðinga og svoleiðis.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Mán 09. Des 2013 22:28
af hrafn1995
tdog skrifaði:Eftir að hafa lesið
þessa frásögn er ég eiginlega hálf skelkaður um framtíð landsins. Þessir menn, ef dæmdir sekir munu fá c.a 1-2 ára dóma fyrir þetta, hvað svo? Halda þeir ekki bara áfram.
ekki nóg með það að þeir ættu að fá margfalt lengri dóm heldur er ég búinn að heyra að fangelsið hér á Íslandi sé algjört djók miðað við í öðrum löndum, er það rétt?
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Mán 09. Des 2013 22:30
af Lexxinn
Ég býð eftir eitthverri samfélagshetju sem tekur af skarið, tekur þá úr umferð og tekur á sig 2 ára dóm fyrir
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Mán 09. Des 2013 22:35
af dandri
Væri best að setja þá í *** og **** * ******. Eða senda þá í fangelsi í einhverju vafasömu landi.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Mán 09. Des 2013 22:37
af JohnnyRingo
Maður fær bara í magann við að lesa þetta, að lenda í þessu, hvílík martröð.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Mán 09. Des 2013 22:51
af Yawnk
Ógeðslegt, það á að ****** svona pakk!
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 00:05
af worghal
ætla að biðja ykkur um að passa orðbragðið.
svona menn geta sent áfram kærur á ykkur líkt og gerðist með Aratúnsmálið stóra og DV.
það gæti verið nóg að tengja ykkur við nikkinn
félagi minn var dæmdur til skaðabóta fyrir að segja "það ætti að taka svona fólk út fyrir bæjinn og skjóta."
við skulum passa okkur
vill helst ekki að þessir menn fái króunu út á það sem þið segið
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 00:39
af vikingbay
það þarf alvarlega að endurskoða þetta. við erum að gefa afbrotamönnum ALLT OF slakann taum!
er það ekki þannig að afbrotamenn hérna taka frekar áhættuna á að vera náðir við eitthvað því það er ekkert svo slæmt?
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 01:10
af Plushy
Koma bara reiðari og massaðri út af hótelinu sem kallað er litla hraun
síðan geta þeir bara sent hótanir af facebook, ekki smá skerða tíma þeirra á netinu, viljum ekki túlka fangelsi sem "refsivist"
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 01:20
af Viktor
Voðalega finnst mér menn oft einfaldir þegar þeir tala um refsiramma, fangelsi á Íslandi og brotamenn.
Það er eitthvað sem er að klikka í okkar samfélagi sem elur af sér brotamenn. Mér finnst barnalegt að segja "það ætti að skjóta þetta", "útlegð" osfrv.
Hef heyrt að ævisaga margra brotamanna sé ekki eitthvað til þess að öfunda og það er í mörgum tilvikum ekki skrýtið að þeir fari út á þessa braut.
Margir hverjir eru ekkert nema "stór börn" og hafa þroska á við ungling út ævina, ekki endilega vegna þess að þeir séu illa gefnir, heldur oft vegna mikillar fíkniefnaneyslu og lítillar menntunar.
Það þarf að taka á þessum mönnum miklu fyrr, þá er ég ekki að tala um refsingar, heldur að styðja þá í æsku, til dæmis í skóla, finna eitthvað við hæfi, í stað þess að brjóta fólk niður með lágum einkunnum í stærðfræði og íslensku.
Ekki það að það sé einhver lausn, en það er ýmislegt sem má skoða í okkar samfélagi.
Það að læsa menn inni leysir ekki vandamál ofbeldis í undirheimum, það er nóg framboð af hrottum á Íslandi.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 01:49
af Nördaklessa
Sallarólegur skrifaði:Voðalega finnst mér menn oft einfaldir þegar þeir tala um refsiramma, fangelsi á Íslandi og brotamenn.

Sammála ýmsu, en hvað varðandi hin commentin, þá hafa þessir ofbenldismenn og morðingjar ekkert sem við allir höfum ekki, keep that in mind
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 08:41
af hagur
Hvar er Batman þegar maður þarf á honum að halda.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 09:20
af GuðjónR
worghal skrifaði:ætla að biðja ykkur um að passa orðbragðið.
svona menn geta sent áfram kærur á ykkur líkt og gerðist með Aratúnsmálið stóra og DV.
það gæti verið nóg að tengja ykkur við nikkinn
félagi minn var dæmdur til skaðabóta fyrir að segja "það ætti að taka svona fólk út fyrir bæjinn og skjóta."
við skulum passa okkur
vill helst ekki að þessir menn fái króunu út á það sem þið segið
Tek undir þetta, veit að margir hafa sterkar skoðanir á ofbeldi og ofbeldismönnum, en stundum er betra að hafa skoðanirnar fyrir sjálfan sig.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 09:57
af darkppl
Sallarólegur skrifaði:Voðalega finnst mér menn oft einfaldir þegar þeir tala um refsiramma, fangelsi á Íslandi og brotamenn.
Það er eitthvað sem er að klikka í okkar samfélagi sem elur af sér brotamenn. Mér finnst barnalegt að segja "það ætti að skjóta þetta", "útlegð" osfrv.
Hef heyrt að ævisaga margra brotamanna sé ekki eitthvað til þess að öfunda og það er í mörgum tilvikum ekki skrýtið að þeir fari út á þessa braut.
Margir hverjir eru ekkert nema "stór börn" og hafa þroska á við ungling út ævina, ekki endilega vegna þess að þeir séu illa gefnir, heldur oft vegna mikillar fíkniefnaneyslu og lítillar menntunar.
Það þarf að taka á þessum mönnum miklu fyrr, þá er ég ekki að tala um refsingar, heldur að styðja þá í æsku, til dæmis í skóla, finna eitthvað við hæfi, í stað þess að brjóta fólk niður með lágum einkunnum í stærðfræði og íslensku.
Ekki það að það sé einhver lausn, en það er ýmislegt sem má skoða í okkar samfélagi.
Það að læsa menn inni leysir ekki vandamál ofbeldis í undirheimum, það er nóg framboð af hrottum á Íslandi.
en í þeim tilvikum þá eru til síafbrota menn og að mínu mati á að loka þá alveg.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 10:19
af dori
Sallarólegur skrifaði:Voðalega finnst mér menn oft einfaldir þegar þeir tala um refsiramma, fangelsi á Íslandi og brotamenn.
Það er eitthvað sem er að klikka í okkar samfélagi sem elur af sér brotamenn. Mér finnst barnalegt að segja "það ætti að skjóta þetta", "útlegð" osfrv.
Hef heyrt að ævisaga margra brotamanna sé ekki eitthvað til þess að öfunda og það er í mörgum tilvikum ekki skrýtið að þeir fari út á þessa braut.
Margir hverjir eru ekkert nema "stór börn" og hafa þroska á við ungling út ævina, ekki endilega vegna þess að þeir séu illa gefnir, heldur oft vegna mikillar fíkniefnaneyslu og lítillar menntunar.
Það þarf að taka á þessum mönnum miklu fyrr, þá er ég ekki að tala um refsingar, heldur að styðja þá í æsku, til dæmis í skóla, finna eitthvað við hæfi, í stað þess að brjóta fólk niður með lágum einkunnum í stærðfræði og íslensku.
Ekki það að það sé einhver lausn, en það er ýmislegt sem má skoða í okkar samfélagi.
Það að læsa menn inni leysir ekki vandamál ofbeldis í undirheimum, það er nóg framboð af hrottum á Íslandi.
Ég held að það hafi nú verið reynt að taka á vanda Stefáns Loga frá því mjög snemma. En það er alveg rétt. Kerfið er eitthvað brotið. Það gengur ekki að þeir fari bara í smá pásu og komi fílelfdir til baka og halda áfram nákvæmlega þar sem frá var horfið.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 10:32
af Stutturdreki
Það þarf að skipta afplánun upp í betrunarvist og refsivist, sumir eru einfaldlega bara óbetranlegir. Því miður.
Líka að 'nýjir' fangar lendi ekki í afplánun með hard core óbetranlegum krimmum og komi því hugsanlega út úr fangelsi í verri félagskap en áður en þeir voru settir inn.
Og svo vantar alla eftirfylgni og úrræði eftir að afplánun líkur, fangar geta átt erfitt að komast aftur inn í samfélagið en í staðinn er auðvelt að sækja í óæskilegan félagsskap sem leiðir aftur út í afbrot, ofbeldi og/eða neyslu.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 10:34
af Templar
Það á bara að leyfa almenna byssueign svo að venjulegt fólk geti varið sig
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 10:39
af mind
Eins og Sallarólegur bendir á þá er raunverulegt vandamálið hér annað heldur en í hvaða mynd það brýst út í.
Það er rosalega þægilegt (og barnalegt) að halda það að bara við að loka fólk inni sé vandamálið leyst.
Samfélag sem skapar vitandi eða óafvitandi þær aðstæður að eitthvað verður til í því sem það telur óæskilegt, og lætur dóm og refsingu lenda á einstaklingi eða hóp án þess að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir endurtekningu, er samfélag ófært um sjálfsumbætur.
Þar til það gerist, má gera ráð fyrir að hlutirnir endurtaki sig og maður taki manns stað í fyrir því sem gerist í okkar samfélagi, gott eða vont.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 11:27
af littli-Jake
Templar skrifaði:Það á bara að leyfa almenna byssueign svo að venjulegt fólk geti varið sig
Já..... því að "óvenjulega" fólkið mundi aldrei komast yfir skotvopn. En byssueign er mun almennari en þig grunar. Sama og ekkert mál að ná sér í skotvopnaleifi og útvega sér haglara. Er eginlega bara mjög hissa þegar ég var að lesa fréttir varðandi Hraunbæjarmálið. Merkilega sjaldan sem íslendingar byrja að skjóta út í loftið miðað við magnið sem er til af skotvopnum hérna.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 13:29
af Templar
littli-Jake skrifaði:Templar skrifaði:Það á bara að leyfa almenna byssueign svo að venjulegt fólk geti varið sig
Já..... því að "óvenjulega" fólkið mundi aldrei komast yfir skotvopn. En byssueign er mun almennari en þig grunar. Sama og ekkert mál að ná sér í skotvopnaleifi og útvega sér haglara. Er eginlega bara mjög hissa þegar ég var að lesa fréttir varðandi Hraunbæjarmálið. Merkilega sjaldan sem íslendingar byrja að skjóta út í loftið miðað við magnið sem er til af skotvopnum hérna.
Okkur er sama um óvenjulega fólkið og gangstera, þeir redda sér alltaf vopnum sama hvað, það er hinn hefðbundi einstaklingur sem verður út undan og á skilið að hafa ekki of erfiðan aðgang að handvopni, svona guttar eins og er í fréttum núna myndu hugsa sig tvisvar um við slíkar aðstæður.
Morð, rán og innbrot hafa t.d. aukist í Ástralíu frá 20% upp í 40% í einstökum liðum eftir að þeir bönnuðu almenna byssueign. Kannski væri reyndin ekki söm hér vegna smæðar en það kom mér á óvart hvað tölfræðin segir skýrt í stærri lönum að byssueign minnkar glæpi, ég var með hinn hefðbunda íslenska bias um vopnin, bara vitleysingar sem vilja þetta og svo framv.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 13:41
af Klemmi
Templar skrifaði:Morð, rán og innbrot hafa t.d. aukist í Ástralíu frá 20% upp í 40% í einstökum liðum eftir að þeir bönnuðu almenna byssueign. Kannski væri reyndin ekki söm hér vegna smæðar en það kom mér á óvart hvað tölfræðin segir skýrt í stærri lönum að byssueign minnkar glæpi, ég var með hinn hefðbunda íslenska bias um vopnin, bara vitleysingar sem vilja þetta og svo framv.
Ég er ekki að segja að raunin sé endilega sú í dæminu sem þú tekur, en tölfræði getur auðveldlega blekkt. Það eru margir aðrir þættir sem geta haft áhrif á fjölda glæpa annar en almenn byssueign og því erfitt að henda fram tölum í kjölfarið og segja að það eitt hafi orsakað þessa breytingu. Ég gæti sagt að aukning ferðamanna hafi bein áhrif á hlutfall þeirra Íslendinga sem eiga snjallsíma. Vissulega hefur bæði aukist síðustu árin en ég efast um að það séu mikil bein tengsl þarna á milli.
Einfalt er að benda á tölfræðina í Bandaríkjunum sem mótdæmi, þar sem almenn byssueign er svakaleg en alvarlegir glæpir hlutfallslega miklu fleiri en hér heima, enda margt annað en endilega byssueign sem hefur áhrif á það.
Einnig er vert að taka fram að það þyrfti að taka löggjöfina alvarlega í gegn ef við ætluðum að leyfa almenna byssueign, þar sem að miðað við núverandi löggjöf mættirðu ekki beita vopninu nema glæpamaðurinn væri sjálfur vopnaður byssu. Mín skoðun er sú að það ætti að byrja á því að leyfa fólki að verja sig og heimili sitt. Ef ég kæmi að innbrotsþjófi hér heima hjá mér, þá ætti ég á hættu að vera lögsóttur skyldi ég ráðast að honum með hafnaboltakylfu, jafn vel þó hann væri vel víraður 120kg vöðvabolti.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 13:52
af littli-Jake
Klemmi skrifaði:Templar skrifaði:Morð, rán og innbrot hafa t.d. aukist í Ástralíu frá 20% upp í 40% í einstökum liðum eftir að þeir bönnuðu almenna byssueign. Kannski væri reyndin ekki söm hér vegna smæðar en það kom mér á óvart hvað tölfræðin segir skýrt í stærri lönum að byssueign minnkar glæpi, ég var með hinn hefðbunda íslenska bias um vopnin, bara vitleysingar sem vilja þetta og svo framv.
Ég er ekki að segja að raunin sé endilega sú í dæminu sem þú tekur, en tölfræði getur auðveldlega blekkt. Það eru margir aðrir þættir sem geta haft áhrif á fjölda glæpa annar en almenn byssueign og því erfitt að henda fram tölum í kjölfarið og segja að það eitt hafi orsakað þessa breytingu. Ég gæti sagt að aukning ferðamanna hafi bein áhrif á hlutfall þeirra Íslendinga sem eiga snjallsíma. Vissulega hefur bæði aukist síðustu árin en ég efast um að það séu mikil bein tengsl þarna á milli.
Einfalt er að benda á tölfræðina í Bandaríkjunum sem mótdæmi, þar sem almenn byssueign er svakaleg en alvarlegir glæpir hlutfallslega miklu fleiri en hér heima, enda margt annað en endilega byssueign sem hefur áhrif á það.
Einnig er vert að taka fram að það þyrfti að taka löggjöfina alvarlega í gegn ef við ætluðum að leyfa almenna byssueign, þar sem að miðað við núverandi löggjöf mættirðu ekki beita vopninu nema glæpamaðurinn væri sjálfur vopnaður byssu. Mín skoðun er sú að það ætti að byrja á því að leyfa fólki að verja sig og heimili sitt. Ef ég kæmi að innbrotsþjófi hér heima hjá mér, þá ætti ég á hættu að vera lögsóttur skyldi ég ráðast að honum með hafnaboltakylfu, jafn vel þó hann væri vel víraður 120kg vöðvabolti.
Ég er reyndar alfarið sammála þessu. Eins og reglurnar eru í dag þarftu eginlega að bíða eftir að fá fyrsta höggið áður en þú mátt verja þig. Ef að einhver plebbi brýst inn til þín og er ekki nægilegja fljótur að koma sér í burtu áður en þú nærð í hann er alveg réttlætanlegt að láta gerpið finna aðeins fyrir þér.
Re: Ofbeldið í undirheimunum
Sent: Þri 10. Des 2013 14:19
af jagermeister
littli-Jake skrifaði:Klemmi skrifaði:Templar skrifaði:Morð, rán og innbrot hafa t.d. aukist í Ástralíu frá 20% upp í 40% í einstökum liðum eftir að þeir bönnuðu almenna byssueign. Kannski væri reyndin ekki söm hér vegna smæðar en það kom mér á óvart hvað tölfræðin segir skýrt í stærri lönum að byssueign minnkar glæpi, ég var með hinn hefðbunda íslenska bias um vopnin, bara vitleysingar sem vilja þetta og svo framv.
Ég er ekki að segja að raunin sé endilega sú í dæminu sem þú tekur, en tölfræði getur auðveldlega blekkt. Það eru margir aðrir þættir sem geta haft áhrif á fjölda glæpa annar en almenn byssueign og því erfitt að henda fram tölum í kjölfarið og segja að það eitt hafi orsakað þessa breytingu. Ég gæti sagt að aukning ferðamanna hafi bein áhrif á hlutfall þeirra Íslendinga sem eiga snjallsíma. Vissulega hefur bæði aukist síðustu árin en ég efast um að það séu mikil bein tengsl þarna á milli.
Einfalt er að benda á tölfræðina í Bandaríkjunum sem mótdæmi, þar sem almenn byssueign er svakaleg en alvarlegir glæpir hlutfallslega miklu fleiri en hér heima, enda margt annað en endilega byssueign sem hefur áhrif á það.
Einnig er vert að taka fram að það þyrfti að taka löggjöfina alvarlega í gegn ef við ætluðum að leyfa almenna byssueign, þar sem að miðað við núverandi löggjöf mættirðu ekki beita vopninu nema glæpamaðurinn væri sjálfur vopnaður byssu. Mín skoðun er sú að það ætti að byrja á því að leyfa fólki að verja sig og heimili sitt. Ef ég kæmi að innbrotsþjófi hér heima hjá mér, þá ætti ég á hættu að vera lögsóttur skyldi ég ráðast að honum með hafnaboltakylfu, jafn vel þó hann væri vel víraður 120kg vöðvabolti.
Ég er reyndar alfarið sammála þessu. Eins og reglurnar eru í dag þarftu eginlega að bíða eftir að fá fyrsta höggið áður en þú mátt verja þig. Ef að einhver plebbi brýst inn til þín og er ekki nægilegja fljótur að koma sér í burtu áður en þú nærð í hann er alveg réttlætanlegt að láta gerpið finna aðeins fyrir þér.
Ég þori ekki að fullyrða það en ég er nokkuð viss um að það skipti engu máli hvort að hann kýli þig fyrst eða öfugt. Ef einhver ræðst á þig og þú lemur hann svo í stöppu værir þú líklegast ákærður fyrir líkamsárás.