Síða 1 af 1
Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 13:02
af Tiger
Sælir, er að leita að upplýsingum um ákveðið erlent fyrirtæki sem selur fæðubótaefni. Er að reyna að finna hver er ábyrgðarmaður, sér um auglýsingar eða bara forstjóri. En ég finn ekki neitt, whois.net gefur mér ekki neinar info, google ekki neinar.
Hvernig er best að finna svona upplýsingar? Finn engan lista yfir bandaríks fyrirtæki sem hægt er að flétta upp eða álíka.
Ef einhver vill spreyta sig, endilega sendið mér pm og ég læt ykkur vita nafnið á fyrirtækinu.
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 13:04
af hfwf
Smelltu því bara inn hér, þá geta allir hjálpast að
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 14:33
af Swanmark
Afhverju settiru nafnið bara ekki í OP?
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 15:42
af rapport
Hann vill vera efst í píramídanum þegar þetta fer í sölu hér á klakanum ;-)
Þetta er NuHerbWare eða Tupper-A-Skin
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 16:16
af Tiger
Ég hef mínar ástæður, og nei engin píramídabissness hérna. Spurning um höfundarvarið efni og þjófnað á því (ekki neitt smáís neitt samt).
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 18:45
af ManiO
Better business bureau? Mæli með að tjékka þar.
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 19:15
af Tiger
ManiO skrifaði:Better business bureau? Mæli með að tjékka þar.
Finn ekkert þar.
En ég hendi bara út hérna hvaða fyrirtæki þetta er, en það er
http://www.nutriforcesports.com sem ég er að leita að upplýsingum um, ábyrgðarmanni eða einhverjum til að ná sambandi við í sambandið við svona mál.
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 19:19
af svensven
Spyrja Annie Mist
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 19:29
af Swanmark
Registrant Street: DomainsByProxy.com
Einhver sem vill ekki að þú vitir hver hann er
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 19:30
af Tiger
Swanmark skrifaði:Registrant Street: DomainsByProxy.com
Einhver sem vill ekki að þú vitir hver hann er
Jebb það er það sem ég er búinn að reka mig á útum allt.....
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 19:37
af hfwf
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 19:41
af Tiger
hfwf skrifaði:http://www.manta.com/c/mmjl3hn/nutri-force-nutrition
Nutriforce nutrition og nutriforce sports er ekki sama fyrirtækið.
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 19:45
af hfwf
ok ok ok
http://www.linkedin.com/pub/michael-alfaro/62/2ab/659 RhinoCo Fitness eiga fyrirtækið. Þeas RhinoCo Fitness og Nutriforce nutritions saman.
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 19:51
af Swanmark
Ég myndi samt halda mig frá þessu. Leitaði af símanúmerinu sem að kmr upp á
whois færslunni og fékk aftur upp þetta DomainsByProxy, þetta greinilega mikið notað fyrir scam fyrirtæki.
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Fös 06. Des 2013 20:35
af Tiger
Swanmark skrifaði:Ég myndi samt halda mig frá þessu. Leitaði af símanúmerinu sem að kmr upp á
whois færslunni og fékk aftur upp þetta DomainsByProxy, þetta greinilega mikið notað fyrir scam fyrirtæki.
Já er ekki að fara í nein viðskipti við þá, og samkvæmt þessu verður erfitt að rukka þá líka fyrir ólögleg notkun á myndum...
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Lau 07. Des 2013 01:27
af bigggan
Eftir smá tima á google fann ég þessa grein:
http://www.popphoto.com/how-to/2013/07/ ... n-now-what(ef þú ert i vandræðum að þau notar þinar mýndir.)
Annars vegar þá fann ég þetta heimilisfáng:
1395 Brickell Ave Suite 800 Miami, FL 33131
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Lau 07. Des 2013 01:51
af Gúrú
Þetta heimilisfang er ekki þeirra að eign, heldur bara staður sem að leigir út pláss til fyrirtækja.
http://www.questworkspaces.com/miami.htm
Re: Finna upplýsingar um erlent fyrirtæki
Sent: Lau 07. Des 2013 02:10
af Tiger
Þakka. Myndstef sér um alla lögfræðivinnu og rukkanir, en bara takmarkað hvað þau komast langt held ég. Kemur í ljós.