Síða 1 af 2
Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 21:28
af Stuffz
Hvað finnst ykkur um þennan 36 mánaða pakka sem 365 er að reyna að fiska fólk með um þessar mundir.
Ég get ekki sagt að ég hafi mikinn áhuga á að færa netumferðina mína þangað yfir..
Re: Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 21:36
af Viktor
Verðin þeirra líta vel út, þó að það eigi reyndar eftir að bæta við gagnamagni fyrir 1000 kr., línugjald og leigugjald fyrir router og myndlykil.
Pakki sem segist kosta 7990 kostar í raun 7990+1000+2610+790+500 = 12890 kr. mv. 50 GB gagnamagn, myndlykil og router.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 21:38
af GuðjónR
Ég hef engan áhuga á því, segir ekki máltækið "If something sounds too good to be true, it probably is" ?
Svo fer auglýsingin þar sem "Sigmundur Davíð lookalike" býður blandaða leið, ótrúlega í taugarnar á mér.
Fannst líka tímasetningin á henni spes, daginn eftir að RUV tilkynnir niðurskurð og uppsagnir.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 21:47
af Snorrivk
Þetta getur varla verið verra en hjá Hrindu.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 22:16
af KermitTheFrog
Æj það hefur alltaf verið svo mikið vesen með internet (hjá mér amk) og það er finally orðið stabílt eftir að ljósnetið kom hjá Tal. Er að borga svipað þar og ef ég tæki þennan basic net-sjónvarp-heimasími pakka (reyndar GSM inni í hjá Tal) svo ég nenni ekki að fara að skipta og lenda í veseni.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 23:16
af FuriousJoe
Athugaði þetta í dag, þetta er bara í boði fyrir höfuðborgarsvæðið og suðurlandið sem styður ljósnet m.v þau svör sem ég fékk.
(Og mögulega fólk sem er með ljósleiðara, sem er um 15% á öllu landinu fyrir utan suðurlandið)
Sem er alveg rosalega lélegt, fölsk auglýsing, mismunun og fáránleg vinnubrögð.
Mitt álit.
Edit; póstur númer 1300 ! - Nú verður opnað bjór.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 23:23
af verba
Maður græðir 180þúsund samkvæmt auglýsingunni.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 23:48
af FuriousJoe
verba skrifaði:Maður græðir 180þúsund samkvæmt auglýsingunni.
Legðu þetta á blað fyrir okkur.
Ef ég fer yfir í 365 netið, fæ ég 180þús í vasann ?
Skil ekki hvað þú meinar.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 23:55
af rango
FuriousJoe skrifaði:Ef ég fer yfir í 365 netið, fæ ég 180þús í vasann ?
Nei enn sigmundur davíð í auglýsingunni sleppir því þá að taka 180Þ úr vasanum þínum, Augljóslega
Re: Gylliboð 365
Sent: Fim 05. Des 2013 23:56
af FuriousJoe
rango skrifaði:FuriousJoe skrifaði:Ef ég fer yfir í 365 netið, fæ ég 180þús í vasann ?
Nei enn sigmundur davíð í auglýsingunni sleppir því þá að taka 180Þ úr vasanum þínum, Augljóslega
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 00:05
af appel
Hvernig er það, er ekki lengur hægt að kaupa Stöð 2 áskrift nema vera með internetið og talsíma hjá 365?
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 00:07
af AntiTrust
appel skrifaði:Hvernig er það, er ekki lengur hægt að kaupa Stöð 2 áskrift nema vera með internetið og talsíma hjá 365?
Jújú, borgar bara það sama, fyrir utan línu- og búnaðargjöld.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 00:15
af intenz
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 00:23
af FuriousJoe
intenz skrifaði:http://www.dv.is/blogg/veisla/2013/12/5/blekkingar-365/
Mynduð þið sætta ykkur við að kaupa rétt á veitingahúsi sem á matseðli kostaði 2.000 krónur en við kassann bættist við matreiðslugjald þannig að rétturinn kostaði 2.660 krónur? Þú gætir að auki leigt hnífapör á 150 kall.
Best.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 00:59
af AlexJones
Það er líka eitt í þessu sem maður pælir doldið í.
365 er markaðsráðandi á afþreyingarmarkaði, og er þarna farinn að "böndla" saman afþreyingu+fjarskiptum, eitthvað sem aðrir aðilar hafa verið skikkaðir til að hætta að gera, t.d. þegar Vodafone og 365 voru nær sama fyrirtækið, og Síminn og Skjárinn. Núna eru fleiri netfyrirtæki, Tal, Hringdu, Hringiðan, Snerpa, Síminn, Vodafone o.fl., sem augljóslega geta ekki boðið upp á svona "bundle".
Þetta fjarskiptaumhverfi er flókið á Íslandi, sérstaklega þegar þú ert byrjaður að samtvinna afþreyingarþjónustu og fjarskiptaþjónustu.
In theory, þá gætir þú verið með
- internetið hjá tal
- farsímann hjá nova
- talsímann hjá símanum
- línuna hjá mílu
- sjónvarpið hjá vodafone
- stöðvaáskriftir hjá 365
- oz appið hjá oz
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 08:33
af GuðjónR
AlexJones skrifaði:Það er líka eitt í þessu sem maður pælir doldið í.
365 er markaðsráðandi á afþreyingarmarkaði, og er þarna farinn að "böndla" saman afþreyingu+fjarskiptum, eitthvað sem aðrir aðilar hafa verið skikkaðir til að hætta að gera, t.d. þegar Vodafone og 365 voru nær sama fyrirtækið, og Síminn og Skjárinn. Núna eru fleiri netfyrirtæki, Tal, Hringdu, Hringiðan, Snerpa, Síminn, Vodafone o.fl., sem augljóslega geta ekki boðið upp á svona "bundle".
Þetta fjarskiptaumhverfi er flókið á Íslandi, sérstaklega þegar þú ert byrjaður að samtvinna afþreyingarþjónustu og fjarskiptaþjónustu.
In theory, þá gætir þú verið með
- internetið hjá tal
- farsímann hjá nova
- talsímann hjá símanum
- línuna hjá mílu
- sjónvarpið hjá vodafone
- stöðvaáskriftir hjá 365
- oz appið hjá oz
Og það myndi kosta þig 25.000.- kr. á ári í seðilgjöld.
P.S. hvað er erlent niðurhal mikið á mánuði í þessum 365 pakka?
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 09:03
af Daz
GuðjónR skrifaði:Og það myndi kosta þig 25.000.- kr. á ári í seðilgjöld.
P.S. hvað er erlent niðurhal mikið á mánuði í þessum 365 pakka?
Auðvitað það minnsta, 10 gb. Svo 40 gb á
1000 kr (upp í 6x40 gb =250 gb myndi ég halda, er það ekki svoleiðis í venjulega netinu hjá þeim?). Ég vil hrósa þeim fyrir nákvæmlega þann part af áskriftarkerfinu, gígabætin kosta alltaf jafn mikið og hámarkið er sæmilega hátt. Mig minnir að það hafi líka verið þannig að það bættist við sjálfkrafa, svo maður þarf ekki að panta 250 gb fyrirfram, en ég nenni ekki að lesa skilmálana til að staðfesta það.
Annars finnst mér einmitt frekar óheppilegt að tengja svona saman afþreyingarsöluaðilann og netþjónustuna. Ég vil helst geta keypt hvern hlut stakann og valið það sem ég vil.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 09:14
af GuðjónR
Það er nú sanngjarnt hjá þeim, þ.e. 10GB á 100 kr. en ekki 1.700.- miðað við 250GB notkun þá væri það 600 kr. auka.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 09:48
af Daz
GuðjónR skrifaði:Það er nú sanngjarnt hjá þeim, þ.e. 10GB á 100 kr. en ekki 1.700.- miðað við 250GB notkun þá væri það 600 kr. auka.
Vantaði eitt núll í þetta hjá mér. 100 kr væri frábært, en líklega ekki raunhæft.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 10:14
af GuðjónR
Daz skrifaði:GuðjónR skrifaði:Það er nú sanngjarnt hjá þeim, þ.e. 10GB á 100 kr. en ekki 1.700.- miðað við 250GB notkun þá væri það 600 kr. auka.
Vantaði eitt núll í þetta hjá mér. 100 kr væri frábært, en líklega ekki raunhæft.
Þar fór glansinn af því.
Þeir auglýsa pakkann á 7990, en ég þyrfti þá að bæta við 6000 (til að jafna það niðurhal sem ég hef) síðan línugjald og IPTV + router leiga? 4000 samtals?
Það vantar sem sagt amk.10.000.- kr. til viðbótar við 7.990.- kr. kannski viðgeigandi að nota svikadæmi ríkisstjórnarinnar í auglýsingunni.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 10:21
af Daz
GuðjónR skrifaði:Daz skrifaði:GuðjónR skrifaði:Það er nú sanngjarnt hjá þeim, þ.e. 10GB á 100 kr. en ekki 1.700.- miðað við 250GB notkun þá væri það 600 kr. auka.
Vantaði eitt núll í þetta hjá mér. 100 kr væri frábært, en líklega ekki raunhæft.
Þar fór glansinn af því.
Þeir auglýsa pakkann á 7990, en ég þyrfti þá að bæta við 6000 (til að jafna það niðurhal sem ég hef) síðan línugjald og IPTV + router leiga? 4000 samtals?
Það vantar sem sagt amk.10.000.- kr. til viðbótar við 7.990.- kr. kannski viðgeigandi að nota svikadæmi ríkisstjórnarinnar í auglýsingunni.
Er ekki DV bloggið með að línugjaldið og routerleigan sé 3100 samtals? Kosturinn sem ég var að telja upp er að þú þarft ekki að borga fyrir þessi 250 gb, nema þú notir þau. Borgar bara fyrir hver byrjuð 40 gb. Það er reyndar eini kosturinn við þennan pakka, nema fyrir þá sem eru með internet áskrift OG stöð2 áskrift nú þegar, eða langar rosalega mikið í einhverja áskrift hjá 365 miðlum. Fyrir okkur hin þá er þetta einhver afsláttur af áskriftargjöldum að stöð sem við viljum ekki vera áskrifendur að.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 13:42
af KermitTheFrog
Fyrir utan það að aukaniðurhal notenda bætir engum raunverulegum kostnaði við fyrir fyrirtækið.
10GB er ekki neitt. Þeir vita það alveg.
Það er löngu orðið tímabært að losa um þetta gagnamagnsþak.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 14:13
af beatmaster
FuriousJoe skrifaði:intenz skrifaði:http://www.dv.is/blogg/veisla/2013/12/5/blekkingar-365/
Mynduð þið sætta ykkur við að kaupa rétt á veitingahúsi sem á matseðli kostaði 2.000 krónur en við kassann bættist við matreiðslugjald þannig að rétturinn kostaði 2.660 krónur? Þú gætir að auki leigt hnífapör á 150 kall.
Best.
Ég hef ekki áhuga á að kommenta inni á DV en bloggarinn góði lætur eins og þetta séu blekkingar 365 sem að þetta eru ekki, þetta eru blekkingar allra þjónustuaðila sem bjóða upp á Internettengingu, 365 er bara komið í þann pakka og ef að fólk eins og þesi tiltekni bloggari vill vera að frussa úr visku sinni um eitthvað sem viðgegnist hefur á íslandi í alltof mörg ár þá má hann alveg endilega gera það án þess að taka eina netveitu fyrir sérstaklega.
Ég hugsa að ég sé jafnvel spá í að taka þessu tilboði frá þeim ef að ég get hækkað gagna magnið og notað þetta í gegnum ljósleiðarann (ég hélt að ég gæti hvorugt) þá er þetta talsvert ódýrara fyrir mig en að vera hjá Hringdu og áskrifandi að Stöð 3 (til þess eins að hafa krakkastöðina) og ég fæ Stöð 2 í kaupbæti, ég ætla líka að gera ráð fyrir því að ef að ég geri 3 ára samning að mánaðarverðið haldist óbreytt næstu 3 árin
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 14:21
af Vaktari
Ég ætla að leyfa mér að efast um að þetta verð haldist eins í 3 ár.
Hlýtur að standa eitthvað í skilmálum um þetta hjá þeim um að verðbreytingar séu óháðar samningsbundnatímanum.
Re: Gylliboð 365
Sent: Fös 06. Des 2013 14:23
af svensven
beatmaster skrifaði:Ég hef ekki áhuga á að kommenta inni á DV en bloggarinn góði lætur eins og þetta séu blekkingar 365 sem að þetta eru ekki, þetta eru blekkingar allra þjónustuaðila sem bjóða upp á Internettengingu, 365 er bara komið í þann pakka og ef að fólk eins og þesi tiltekni bloggari vill vera að frussa úr visku sinni um eitthvað sem viðgegnist hefur á íslandi í alltof mörg ár þá má hann alveg endilega gera það án þess að taka eina netveitu fyrir sérstaklega.
Ég hugsa að ég sé jafnvel spá í að taka þessu tilboði frá þeim ef að ég get hækkað gagna magnið og notað þetta í gegnum ljósleiðarann (ég hélt að ég gæti hvorugt) þá er þetta talsvert ódýrara fyrir mig en að vera hjá Hringdu og áskrifandi að Stöð 3 (til þess eins að hafa krakkastöðina) og ég fæ Stöð 2 í kaupbæti, ég ætla líka að gera ráð fyrir því að ef að ég geri 3 ára samning að mánaðarverðið haldist óbreytt næstu 3 árin
Held að það séu engar líkur á því, það stendur klárlega í samningum "365 má gera það sem þeim sýnist við þennan samning" - kannski öðruvísi orðað og í smærra letri