Síða 1 af 1

Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Þri 03. Des 2013 23:16
af FuriousJoe
Sælir, var að vafra um og kanna þessi lækkuðu verð á iPhone í kvöld og rakst á eitt undarlegt...

Skv vefsíðu símans;
iPhone 5S 32GB er dýrari en 16GB, samt borgaru meira mánaðarlega fyrir 16gb útgáfuna.
Seinustu daga var iPhone 4S á léttkaupi, 2.990kr mánaðarlega en er nú 4.190 kr
Eins munurinn á iPhone 5C og iPhone 5S 32gb mánaðarlega, er ekki nema um 100 krónur... ^^

Læt myndirnar tala.


Ath aðeins vangaveltur, verð rólegur í kvöld.

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Þri 03. Des 2013 23:23
af SolidFeather
Ok.

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Þri 03. Des 2013 23:24
af Klaufi
Jafnmargir mánuðir?

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Þri 03. Des 2013 23:25
af AntiTrust
Þessar tölur eru miðaðar við mismunandi lengd á láninu, sérð það með mouseover.

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Þri 03. Des 2013 23:25
af FuriousJoe
Þetta er allt miðað við 18 mánuði, skv þeim upplýsingum sem ég fékk.

Edit; Nei sé það núna, svona er maður blindur stundum :)
Þetta platar mann svolítið :)

Fannst þetta eitthvað skrítið.

Velti fyrir mér enþá afhverju 4S hækkaði úr 2.990 í 4.190

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 00:17
af hagur
Nennir einhver að segja þeim hjá Símanum að maður segir og skrifar "örgjörvi" en ekki "örgjafi".

Ouch, my eyes!

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 10:06
af Pandemic
Er ég sá eini sem er að velta því fyrir mér af hverju Epli er byrjaðir að selja símana á sama verði og authorized resellers hérna á Íslandi?
Hafa þeir s.s alltaf verið með þessi verð beint frá Apple og smurt svo 50 þúsund kall á símana?

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 10:12
af Tesy
Pandemic skrifaði:Er ég sá eini sem er að velta því fyrir mér af hverju Epli er byrjaðir að selja símana á sama verði og authorized resellers hérna á Íslandi?
Hafa þeir s.s alltaf verið með þessi verð beint frá Apple og smurt svo 50 þúsund kall á símana?


Ég var líka að velta þessu fyrir mér um daginn þegar ég sá fb post frá þeim. Það kæmi mér alls ekki á óvart ef að þeir hafa tekið 50k aukalega enda eru vörurnar frá Epli alltaf lang dýrastir.

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 10:58
af dori
Mér finnst líklegast að þeir hafi bara skipt yfir í að kaupa ný tæki af einhverju fjarskiptafyrirtækinu á heildsöluverði og afskrifað það sem gamall lager kostaði aukalega því að annars myndu þeir aldrei losna við þá.

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 11:43
af stefhauk
Þó það sé búið að lækka þetta þá er þetta ennþá alltof dýrt miðað við Samsung s4

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 12:27
af halldorjonz
Munar 10þúsund kalli? hvernig er það alltof dýrt fyrir meiri gæði

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 13:11
af KermitTheFrog
stefhauk skrifaði:Þó það sé búið að lækka þetta þá er þetta ennþá alltof dýrt miðað við Samsung s4


5S er "kynslóð á undan", ef svo má segja. 64bit CPU, betri myndavél og hvaðeina.

Loksins eru þessar iVörur að komast á eðlilegt verð myndi ég segja.

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 14:58
af Pandemic
dori skrifaði:Mér finnst líklegast að þeir hafi bara skipt yfir í að kaupa ný tæki af einhverju fjarskiptafyrirtækinu á heildsöluverði og afskrifað það sem gamall lager kostaði aukalega því að annars myndu þeir aldrei losna við þá.


Þeir hafa verið authorized resellers í mjög langan tíma og ef þú ert AR þá færðu símana beint frá Apple.

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 15:55
af dori
Ok, ég vissi það ekki. Ertu alveg viss? Ég held að iPhone síminn minn hafi verið keyptur þar og hann var með svona bresku hleðslutæki. Frekar spes ef þeir fá þá beint frá Apple þar sem þeir eru búnir til með svona "euro" hleðslutæki.

Re: Vangaveltur með verðlag á iPhone, nýju verðin.

Sent: Mið 04. Des 2013 18:10
af Tiger
Pandemic skrifaði:
dori skrifaði:Mér finnst líklegast að þeir hafi bara skipt yfir í að kaupa ný tæki af einhverju fjarskiptafyrirtækinu á heildsöluverði og afskrifað það sem gamall lager kostaði aukalega því að annars myndu þeir aldrei losna við þá.


Þeir hafa verið authorized resellers í mjög langan tíma og ef þú ert AR þá færðu símana beint frá Apple.


Já á öllu nema iPhone símunum, hafa þurft krókaleiðir eins og aðrir með þá.