Síða 1 af 6
Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 08:02
af GuðjónR
Maður hélt að þetta gerðist bara í útlöndum? Skjóta að lögreglunni'???
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... sumanninn/
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:04
af Nördaklessa
Þetta er svakalegt :/ er orðlaus
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:06
af paze
Spurning hvort þettta sé þá ekki útlendingur...
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:10
af GuðjónR
paze skrifaði:Spurning hvort þettta sé þá ekki útlendingur...
Gæti verið útlendingur eða einhver ósáttur við niðurfellingarleið ríkisstjórnarinnar.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:20
af worghal
Thad er til nog af heimsku folki a islandi, bara otrulegt ad thetta gerist ekki oftar
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:39
af capteinninn
paze skrifaði:Spurning hvort þettta sé þá ekki útlendingur...
Við skulum nú ekki byrja alveg strax að spekúlera á þennan hátt.
Nokkuð reglulega sem það er í fréttum einhver vopnaður og ruglaður sem víkingasveitin þarf að yfirbuga en í þetta sinn virðist hann hafa verið það ruglaður að skjóta á lögregluna
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:46
af appel
Merkilegast að maðurinn skuli hafa lifað þetta af.
Í Bandaríkjunum hefði hann verið skotinn í tætlur af lögreglunni.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:49
af rapport
***
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:51
af GuðjónR
Er árbærinn að verða sama slömmið og fellin?
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:55
af C2H5OH
appel skrifaði:Merkilegast að maðurinn skuli hafa lifað þetta af.
Í Bandaríkjunum hefði hann verið skotinn í tætlur af lögreglunni.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... er_latinn/
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 09:57
af Nördaklessa
paze skrifaði:Spurning hvort þettta sé þá ekki útlendingur...
já því allir útlendingar eru villimenn
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 10:20
af Tesy
Nördaklessa skrifaði:paze skrifaði:Spurning hvort þettta sé þá ekki útlendingur...
já því allir útlendingar eru villimenn
og Íslendingar eru englar
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 10:21
af Stutturdreki
GuðjónR skrifaði:Er árbærinn að verða sama slömmið og fellin?
Að verða?
Ég bjó þarna í 20 ár og gekk í Árbæjarskóla, hef ekki tölu á hversu margir úr mínum árgangi hafa verið viðriðnir hin og þessi 'stóru' hitt og þetta mál síðustu 15 árinn.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 10:25
af paze
Nördaklessa skrifaði:paze skrifaði:Spurning hvort þettta sé þá ekki útlendingur...
já því allir útlendingar eru villimenn
Ofbeldisfullar nauðganir og svona alvarlegir ofbeldisglæpir í evrópu eru oftast tengdir við innflytjendur.
http://en.wikipedia.org/wiki/Immigration_and_crimeÉg er ekki að segja að það þýði að þessi maður sé innflytjandi, en það kæmi mér bara ekki á alls óvart.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 10:32
af Gislinn
Þessi umræða sem er í þessum þræði er notendum vaktarinnar til skammar að mínu mati.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 10:34
af Daz
Gislinn skrifaði:Þessi umræða sem er í þessum þræði er notendum vaktarinnar til skammar að mínu mati.
Sá partur af umræðunni sem er til skammar er þeim sem taka þátt í henni til skammar. Ég get t.d. voðalega lítið skammast mín fyrir umræðu sem ég tek ekki þátt í.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 10:37
af paze
Gislinn skrifaði:Þessi umræða sem er í þessum þræði er notendum vaktarinnar til skammar að mínu mati.
Hvaða notendum nákvæmlega og af hverju?
Af því tölfræði er tabú ef hún inniheldur minnihlutahópa?
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 10:42
af Gislinn
Daz skrifaði:Gislinn skrifaði:Þessi umræða sem er í þessum þræði er notendum vaktarinnar til skammar að mínu mati.
Sá partur af umræðunni sem er til skammar er þeim sem taka þátt í henni til skammar. Ég get t.d. voðalega lítið skammast mín fyrir umræðu sem ég tek ekki þátt í.
Mjög góð ábending. Vissulega átti ég við að umræðan væri skammarleg fyrir þá sem taka þátt í henni.
paze skrifaði:Hvaða notendum nákvæmlega og af hverju?
Af því tölfræði er tabú ef hún inniheldur minnihlutahópa?
Þessi þráður er nú ekki svo langur að fólk geti ekki lesið yfir hann og metið sjálft hvað því finnst. Mitt mat er einfaldlega að umræðan í þessum þræði er óviðeigandi.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 10:45
af Stutturdreki
paze skrifaði:Af því tölfræði er tabú ef hún inniheldur minnihlutahópa?
Það er eitt að halda því fram að einhver tölfræði sé til, annað að leggja hana fram máli sínu til stuðnings.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 11:09
af appel
Lögreglan skaut hann til bana. Lögreglumaður særðist einnig.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 11:18
af Garri
Það má alveg lesa á milli lína að þessi einstaklingur hafi verið veikur á geði.
En.. kannski bara ódýrast að skjóta þessi grey.. frekar en að búa mannsæmandi að þeim, ekki svo ósvipað og í landi tækifæranna.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 11:23
af appel
Held að þetta séu tímamót, lögreglan á Íslandi hefur aldrei drepið neinn með beinum hætti. Hingað til hefur lögreglan, sérsveitin, ætíð náð að afvopna og handsama vopnaða menn án þess að þurfa beita skotvopnum. En burtséð frá þessum hörmungum þá má segja að sérsveitin hafi misst sveindóminn í morgun, og krimmar þurfi að passa sig að vera ekki ógnandi gagnvart henni.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 11:46
af rapport
paze skrifaði:Gislinn skrifaði:Þessi umræða sem er í þessum þræði er notendum vaktarinnar til skammar að mínu mati.
Hvaða notendum nákvæmlega og af hverju?
Af því tölfræði er tabú ef hún inniheldur minnihlutahópa?
Tölfræðin á Íslandi sýnir að aðfluttir Íslendingar eru almennt löghlíðnari en meðal innfæddir Íslendingar.
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 12:00
af littli-Jake
Garri skrifaði:Það má alveg lesa á milli lína að þessi einstaklingur hafi verið veikur á geði.
En.. kannski bara ódýrast að skjóta þessi grey.. frekar en að búa mannsæmandi að þeim, ekki svo ósvipað og í landi tækifæranna.
uuuuu? Bara svo að ég sé að skilja þig rétt. Finst þér semsagt að það hafi verið óþarfi að skjóta manninn?
Re: Hvað er í gangi í Árbænum?
Sent: Mán 02. Des 2013 12:05
af Plushy
Þessi kall á víst að hafa verið til vandræða áður.