Síða 1 af 1

Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 19:15
af SergioMyth
Ég er að fara til hinnar einu sönnu Ameríku eftir tæplega 9 mánuði. Þar sem vélbúnaður minn er ekki upp á marga fiska þá ætla ég að endurnýja í Bandaríkjunum. Eru tölvur og íhlutir ekki mun ódýrari þarlendis heldur en hér á klakanum? Hvað ætti maður svo að kaupa? Bring out the big guns og kaupa græjurnar af NASA eða ætti maður að taka baby steps og kaupa einhvað einfalt kerfi? Ég hafði upprunalega hugsað mér að kaupa og setja saman kerfið sjálfur :) Eða ætti maður að hafa þetta einfalt og kaupa bara aðra fartölvu; etc Alienware ;) Einhverjir vel að sér í þessum málum eða bara með skoðun almennt á þessu?

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 19:15
af Yawnk
Hahaha þú ætlar svo sannarlega að vera tilbúinn! ferðin er eftir 9 mánuði? :)

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 19:28
af krat
bíddu í 8 mánuði þá hafa kannksi einhvejrir svör handa þér :happy

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 19:36
af SergioMyth
Hahaha ég er algjör early bird í þessu og vegna þess að ég klára menntó aðeins á undan jafnöldrunum og fer bara að vinna fram að háskólanum þá er þetta algjör hápunktur! :)

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 19:37
af appel
9 mánuðir... sá er spenntur. Byrjaður að telja niður dagana? :D

Persónulega nenni ég aldrei að ræflast með eitthvað drasl í gegnum flug og toll. Vil frekar bara kaupa heima og sleppa við ómakið. Verðlag á tölvubúnaði á Íslandi er almennt séð nokkuð samkeppnishæfur við útlönd, m.t.t. flutningsgjalda, vsk og svona. Það eru aðallega snjalltæki, símar, spjaldtölvur, sem er vangefið dýrt hér.

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 19:46
af SergioMyth
appel skrifaði:9 mánuðir... sá er spenntur. Byrjaður að telja niður dagana? :D

Persónulega nenni ég aldrei að ræflast með eitthvað drasl í gegnum flug og toll. Vil frekar bara kaupa heima og sleppa við ómakið. Verðlag á tölvubúnaði á Íslandi er almennt séð nokkuð samkeppnishæfur við útlönd, m.t.t. flutningsgjalda, vsk og svona. Það eru aðallega snjalltæki, símar, spjaldtölvur, sem er vangefið dýrt hér.


Ég er vangefið spenntur viðurkenni það fúslega en ekki byrjaður að telja dagana, held mig við mánuðina enda eru þeir andskoti nógu margir.... En ókey er einhverjir íhlutir ódýrari, vinnsluminni, örgjörvar eða annað slíkt? :D

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 20:17
af krat
appel skrifaði:Ég er vangefið spenntur viðurkenni það fúslega en ekki byrjaður að telja dagana, held mig við mánuðina enda eru þeir andskoti nógu margir.... En ókey er einhverjir íhlutir ódýrari, vinnsluminni, örgjörvar eða annað slíkt? :D


erfitt að gíska þar sem þú ferð út eftir 9 mánuði, keyptu "litlu" hlutina úti, minni, örgjörva, ssd, skjákort

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 20:23
af SergioMyth
krat skrifaði:
appel skrifaði:Ég er vangefið spenntur viðurkenni það fúslega en ekki byrjaður að telja dagana, held mig við mánuðina enda eru þeir andskoti nógu margir.... En ókey er einhverjir íhlutir ódýrari, vinnsluminni, örgjörvar eða annað slíkt? :D


erfitt að gíska þar sem þú ferð út eftir 9 mánuði, keyptu "litlu" hlutina úti, minni, örgjörva, ssd, skjákort


Ókey takk sá líka að harðir diskar og flakkarar eru mun ódýrari þarna úti! ;)

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 21:38
af Lunesta
kaauptu aallt þarna uti.. neema það sem þu vilt helst hafa abyrgð a og ekki kassa þvi það er tomt rugl að ætla að bera þá heim :)

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 21:42
af Viktor
Lunesta skrifaði:kaauptu aallt þarna uti.. neema það sem þu vilt helst hafa abyrgð a og ekki kassa þvi það er tomt rugl að ætla að bera þá heim :)


Ef þú ert með temmilega stóra tösku geturðu smellt kassa þar í og sett eitthvað af farangri í kassann :)

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 22:13
af bigggan
Mundu að fara í rauða svæðið, þú skítur á fótinn á þér ef þau fara að tékka farangurinn þina í tollinum og finna alt þetta dót.

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fim 28. Nóv 2013 22:17
af Xovius
Byrjaðu að fylgjast með reviewum á youtube og hvað fólk hérna er að kaupa sér og þá verðurðu nógu inní þessu eftir 9 mánuði til að ákveða þetta sjálfur. Ekkert vit í því að velja hluti núna því verðin munu breytast og allskonar nýtt skemmtilegt dót á eftir að koma á markaðinn...

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fös 29. Nóv 2013 10:49
af SergioMyth
Takk fyrir ábendingarnar! :) Á maður að versla þetta í Costco?

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fös 29. Nóv 2013 11:53
af Kristján Gerhard
Costco er ódýrt en það er ekki hægt að treysta vöruúrvalinu þar. Sumt er bara til í x-langan tíma og kemur ekki aftur. Costco er líka members only.

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fös 29. Nóv 2013 14:37
af bjornvil
Passaðu þig allavega á því að vera með á hreinu í hvaða búð þú ætlar að fara og hvort það sé ekki örugglega til svona tölvuíhlutir.

Ég var í USA um daginn og var að gæla við að versla mér mögulega örgjörva og móðurborð. Ég var búinn að finna út úr því að það væri BestBuy nálægt molli sem að ég var að fara í þannig að ég bjóst við að geta fundið þetta þar en sú var ekki raunin. Þegar ég spurði starfsmann út í svona "PC Hardware" þá varð hann hálf glær og sagði að það væri ekki hjá þeim og hafði ekki hugmynd um hvar væri hægt að kaupa svoleiðis. Þótt svona hlutir séu á BestBuy.com er ekki pottþétt að það sé í búðunum. Einn sem vinnur með mér bjó í Boston í einhver ár og sagðist aðeins hafa fundið eina svona "walk in" búð þar sem hægt væri að kaupa svona hluti, annars væri allt svona venjulega pantað af netinu.

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fös 29. Nóv 2013 14:51
af steinarorri
bjornvil skrifaði:Passaðu þig allavega á því að vera með á hreinu í hvaða búð þú ætlar að fara og hvort það sé ekki örugglega til svona tölvuíhlutir.

Ég var í USA um daginn og var að gæla við að versla mér mögulega örgjörva og móðurborð. Ég var búinn að finna út úr því að það væri BestBuy nálægt molli sem að ég var að fara í þannig að ég bjóst við að geta fundið þetta þar en sú var ekki raunin. Þegar ég spurði starfsmann út í svona "PC Hardware" þá varð hann hálf glær og sagði að það væri ekki hjá þeim og hafði ekki hugmynd um hvar væri hægt að kaupa svoleiðis. Þótt svona hlutir séu á BestBuy.com er ekki pottþétt að það sé í búðunum. Einn sem vinnur með mér bjó í Boston í einhver ár og sagðist aðeins hafa fundið eina svona "walk in" búð þar sem hægt væri að kaupa svona hluti, annars væri allt svona venjulega pantað af netinu.


Getur líka pantað af bestbuy.com, borgað með íslensku kreditkorti og látið senda í Bestbuy verslun nálægt þér.

Re: Verðlag á Íslandi? Verslunarferð til Bandaríkjana!

Sent: Fös 29. Nóv 2013 14:55
af SergioMyth
Takk fyrir þetta bjornvil og góð ábending steinarorri! :) Kannski nýti ég mér bara þetta ;)