Síða 1 af 1
Tollar á úrum?
Sent: Mið 27. Nóv 2013 00:35
af capteinninn
Er að spá að panta nokkur úr frá Amazon UK.
Vitiði nokkuð hvernig tollar eru á þeim?
Ætlaði að kaupa Casio úr hjá Meba en sá að þau kosta um 10 þús en um 1500-6000 kr á Amazon.
Er að spá að kaupa allavega 2-4 úr þarna í einu því þau eru það ódýr þarna og ég ætla kannski að gefa þau í jólagjafir.
Önnur spurning líka því það er langt síðan ég pantaði af Amazon. Það eru mismunandi sellerar á úrin sem ég ætla að kaupa, myndi þetta þá koma í tvemur sendingum og þá tvöfaldur sendingarkostnaður?
Annað mál, er eitthvað verra að panta úr frá Amazon US frekar en UK?
Re: Tollar á úrum?
Sent: Mið 27. Nóv 2013 01:10
af zedro
Varðandi tollana sjá reiknivél á Tollur.is ->
http://tollur.is/default.asp?cat_id=1700Jebb pakkarnir koma frá mismunandi stöðum. Þegar þú ert búinn að fara í gegnum ferlið geturðu séð hvað flutningur kostar og hvort þetta endar í 1 eða fl. sendingum áður en þú pantar.
US vs UK fer alfarið eftir verði og hver er tilbúinn að senda til Íslands
Re: Tollar á úrum?
Sent: Mið 27. Nóv 2013 09:22
af capteinninn
Zedro skrifaði:Varðandi tollana sjá reiknivél á Tollur.is ->
http://tollur.is/default.asp?cat_id=1700Jebb pakkarnir koma frá mismunandi stöðum. Þegar þú ert búinn að fara í gegnum ferlið geturðu séð hvað flutningur kostar og hvort þetta endar í 1 eða fl. sendingum áður en þú pantar.
US vs UK fer alfarið eftir verði og hver er tilbúinn að senda til Íslands
Snilld takk fyrir þetta, sá að þeir eru líka með 120gb SSD á Black Friday tilboði svo ég hendi líklega einum svoleiðis með, 120gb á 12 þús með tollum án sendingarkostnaðar.
Re: Tollar á úrum?
Sent: Mið 27. Nóv 2013 09:46
af Daz
Amazon sendir ekki tölvubúnað til Íslands svo þú færð örugglega ekki SSD frá þeim. (Marketplace seljendur gætu sent slíkt, en ekki Amazon)
Re: Tollar á úrum?
Sent: Mið 27. Nóv 2013 22:57
af capteinninn
Daz skrifaði:Amazon sendir ekki tölvubúnað til Íslands svo þú færð örugglega ekki SSD frá þeim. (Marketplace seljendur gætu sent slíkt, en ekki Amazon)
Olræt þá panta ég bara úrin og sleppi tölvubúnaðinum. Þakka ábendinguna
Re: Tollar á úrum?
Sent: Lau 30. Nóv 2013 19:14
af capteinninn
Fulfilled by Amazon?
Þýðir það að þeir sjá um að senda þetta og allt það? Gæti ég pantað bæði sem er Sold by Amazon.com og Fulfilled by Amazon.com og það kæmi í sömu sendingunni?