Sælir. Núna er ég farinn að spá meira og meira í "sjálfvirku heimili"(home automation) af því að mér finnst það spennandi hugmynd.
Nenni ekki að hringja í rafvirkja strax svo mig langaði að heyra í vaktinni. Mig langar sem sagt að búa til græju sem stjórnar ljósum heimilisins.
Ég er ekki að tala um það hvernig sé best að útfæra þetta hugbúnaðarlega-séð heldur vélbúnaðarlega.
Ég þyrfti helst að hafa þetta miðlægt og hafa 'switches' á einum stað þar sem þeir tengjast allir í tölvu, hversu mikið vesen er það að leggja sér lögn úr hverju ljósi í miðlægu tölvuna?
Rissaði hárnákvæma mynd af íbúðinni, þetta eru sem sagt 13 ljósastæði, en öll 6 ljósin í stofunni eru og verða tengd saman, öll þrjú í eldhúsi/gangi og bæði ljósin á klósettinu. Svo þetta eru 4 svæði sem mig langar að stýra, þar með talið svefnherbergið.
íbúð.png (133.58 KiB) Skoðað 10667 sinnum
Eins og er er þetta svona sett upp, frekar funky að ljósin á baðinu eru ekki samtengd eins og þið sjáið, þetta eru sem sagt staðsetningin á slökkvurunum sem stýra ljósunum núna, þess má geta að rafmagnstaflan er vinstra megin við skrifborðið:
íbúð2.png (138.49 KiB) Skoðað 10667 sinnum
Hversu mikið vesen er þetta? Fer það bara eftir því hvernig þetta er sett upp í hverju húsi fyrir sig? Þarf ég að fá teikningarnar af raflögnunum til þess að geta grúskað í þessu?
Með fyrirfram þökk.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 02:58
af odinnn
Myndi segja að þú þurfir að hafa betri hugmynd um hvað tækni/efni þú ætlar að nota í þetta því í engu tilviki get ég séð fyrir mér að "leggja eina lögn úr hverju ljósi" sé nóg. Það er ástæða fyrir því að það er ekki mikið um svona breytingar og aðalega notað í nýbyggingum og atvinnuhúsnæði með falskloft með nóg pláss fyrir kapalleiðir.
Hafðiru hugsað þér að nota KNX eða aðra BUS stýrða kubba? Þá þarftu venjulega rafmagnsleiðslur til að mata spennu í kubbana og svo stýristraums leiðslu til að bera stýrimerkið til stýrikubbsins og rofans. Af minni reynslu þá passar það ekki í venjulegt íslenskt rafmagnsrör plús það að þessir kaplar "eiga ekki" að vera mjög nálægt hvor öðrum uppá truflanir. Svo þarf að láta forrita allt þetta til þetta virki, ekki plug'n play.
Ef þú ætlar hleypa á og rjúfa strauminn í töflunni þá þarftu í það minnsta 2 auka leiðslur í rörin, eina frá rofa til að geta stýrt hvort straumurinn skuli vera af/á og svo leiðsla frá stýringunni í ljósið. Ég reikna með að þú þurfir ennþá að hafa fasa/núll/jörð þarna líka þar sem innstungur eru venjulega tengdar upp í loftadós og ekki viltu hafa rofa á innstungunum. Í þessari lausn myndi ég líka hafa smá áhyggjur af plássi í töflunni þar sem svona stýringar geta tekið töluvert pláss.
Ps. það er ólöglegt að "grúska" í raflögnum, svona bara svo það komi fram.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 07:11
af Oak
Dali kerfi gæti alveg gengið það eru bara 5 vírar í því. En það er líka dýrt.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 08:14
af ASUStek
en að setja bara hreyfiskynjara í stað þrýstirofa?
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 09:18
af gardar
Hvað með að skella svona perum út um allt og stjórna dótinu svo með símanum?
Var búinn að heyra af nýju kerfi frá GIRA (S.Guðjónson) http://www.sg.is að það virki þannig að það kemur tölva frá GIRA inni í töflu og hún væri nettengd og svo kaupir þú nýja rofa í allt og þeir tala við þessa tölvu í gegnum rafmagnið þannig að það þarf ekki að breyta neinu eða bæta við vírum í húsið..
Rofarnir tala saman eins og Net yfir rafmagn gerir fyrir Ethernet.
mundi bíða aðeins með þetta eða sjá og fylgjast með hvenar þetta kemur.. held að þetta eigi að koma mitt sumar 2014
Þetta er allavega framtíðin í Home Automation.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 09:26
af Andri Þór H.
Og svo seturu upp forrit í símann eða spjaldtölvuna og forritið talar við hvern og einn rofa
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 10:46
af tdog
Oak skrifaði:Dali kerfi gæti alveg gengið það eru bara 5 vírar í því. En það er líka dýrt.
DALI er bara með 4 víra, DA/DB/+/-.
Annars myndi ég fá mér þráðlausa KNX rofaliða og setja bara í loftdósirnar. Annars er svona lagað massa vesen og getur kostað þig mikið í vinnukaupum, því þú mátt ekki eiga við þetta sjálfur sem leikmaður.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 12:26
af Viktor
Þakka öll svörin! Þetta er greinilega töluvert vesen og þessar lausnir sem bent er á hér eru allt mjög dýrar, það sem ég er að spá í myndi líklega kosta tugi þúsunda.
Þá myndi ég frekar fara í svona pælingar, þeas. að forrita þráðlausa græju sem actually ýtir á takkana:
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 12:30
af Klaufi
Hvað má vélbúnaðurinn kosta?
Ekki segja sem minnst, hvaða hugmynd hefur þú?
P.s. Ef þú ætlar í þráðlaust, kíktu á CoCo efnið í rönning, hræódýrt og þetta virðist vera í lagi..
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 12:37
af Viktor
Klaufi skrifaði:Hvað má vélbúnaðurinn kosta?
Ekki segja sem minnst, hvaða hugmynd hefur þú?
P.s. Ef þú ætlar í þráðlaust, kíktu á CoCo efnið í rönning, hræódýrt og þetta virðist vera í lagi..
Í bjartsýni minni sé ég fyrir mér 10-20 þ. fyrir amk. einn switch, með möguleika á því að bæta við fleirum.
Kíkti aðeins á þetta CoCo, góð hugmynd en langar ekki beint í svona plast-fjarstýringu heldur var pælingin að búa til hugbúnað t.d. fyrir Android og iOS til þess að stjórna
Framtíðarplönin eru svo að geta stýrt gluggatjöldunum í stofunni, hátölörum ofl. í sömu græjunni.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 12:53
af Oak
tdog skrifaði:
Oak skrifaði:Dali kerfi gæti alveg gengið það eru bara 5 vírar í því. En það er líka dýrt.
DALI er bara með 4 víra, DA/DB/+/-.
Annars myndi ég fá mér þráðlausa KNX rofaliða og setja bara í loftdósirnar. Annars er svona lagað massa vesen og getur kostað þig mikið í vinnukaupum, því þú mátt ekki eiga við þetta sjálfur sem leikmaður.
Veit að dali einingin sjálf notar bara 4 en getur líka verið með dali ljós með þrýsti rofa sem notar bara 3 en það er annað mál. Ég er samt að tala um 5 inní töflu og þú sleppur ekkert við jörðina.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 12:58
af Oak
Sallarólegur skrifaði:
Klaufi skrifaði:Hvað má vélbúnaðurinn kosta?
Ekki segja sem minnst, hvaða hugmynd hefur þú?
P.s. Ef þú ætlar í þráðlaust, kíktu á CoCo efnið í rönning, hræódýrt og þetta virðist vera í lagi..
Í bjartsýni minni sé ég fyrir mér 10-20 þ. fyrir amk. einn switch, með möguleika á því að bæta við fleirum.
Kíkti aðeins á þetta CoCo, góð hugmynd en langar ekki beint í svona plast-fjarstýringu heldur var pælingin að búa til hugbúnað t.d. fyrir Android og iOS til þess að stjórna
Framtíðarplönin eru svo að geta stýrt gluggatjöldunum í stofunni, hátölörum ofl. í sömu græjunni.
Miðað við þessar pælingar væri náttúrulega lang best að bygga þér nýtt hús þar sem þú getur gert ráð fyrir öllu þessu dóti. En það er alltaf einhver lausn á þessu máli hjá þér.
Það er til bæði Android og IOS app fyrir CoCo og er eina raunhæfa lausnin sem að kostar ekki einhverja rosapeninga (ég er samt hlutdrægur)
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 19:39
af Viktor
Oak skrifaði:http://www.smarthome.com/android_apps.html Hefurðu skoðað þetta eitthvað? Var bara að googla þetta sjálfur ekkert búinn að skoða en þetta gæti kannski verið ein lausn.
Kíki á þetta, takk.
beatmaster skrifaði:Það er til bæði Android og IOS app fyrir CoCo og er eina raunhæfa lausnin sem að kostar ekki einhverja rosapeninga (ég er samt hlutdrægur)
Bara þetta unit kostar ~30k, þá á eftir að græja allt annað
Er að fara í gegnum þetta núna, athuga hvort Kínverjinn geti ekki reddað einhverju á skikkanlegu verði, rosalegt að vera að versla af aðilum sem flytja inn frá Kína yfir til sín og svo frá þeim til Íslands.
Home automation er dýrt ef þú ætlar að breyta gamalli raflögn. Annað mál gildir ef þú ert að byggja, þá er kostnaðarmunur á "venjulegri raflögn" og home automation ekki svo mikill (ef reiknað er inn í dæmið hitastýringar, dimmaliðar og rofar).
Ef þú hefur hug á að stýra bara ljósum, þá benti einhver á kickstarter programið Lifx, sem er reyndar farið af stað samkvæmt nýjustu heimildum en löng bið enn þá eftir perum.
Annað sem hægt er að skoða er Hue frá Philips, mjög svipuð hugmynd og Lifx, þ.e. það er app í símann sem stjórnar perunum yfir WiFi, starter kitið er á ~250$ á ebay.
Ef þú ert bara að hugsa um að stýra ljósum, þá eru þessar perur málið.
Ef þú ferð útí það að skipta út búnaði fyrir KNX/DALI/instersystemname er kostnaður farinn að hlaupa á tugum þúsnunda fyrir hverja kveikingu.
Mbk,
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 22:27
af roadwarrior
beatmaster skrifaði:Það er til bæði Android og IOS app fyrir CoCo og er eina raunhæfa lausnin sem að kostar ekki einhverja rosapeninga (ég er samt hlutdrægur)
x2
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Fös 08. Nóv 2013 23:14
af Viktor
roadwarrior skrifaði:
beatmaster skrifaði:Það er til bæði Android og IOS app fyrir CoCo og er eina raunhæfa lausnin sem að kostar ekki einhverja rosapeninga (ég er samt hlutdrægur)
Á því miður ekki 70-130 þúsund krónur til þess að eyða í ljósaperur, en jújú, I wish
Er núna farinn að pæla í WIFI switch, hún talar um að það þurfti 'neutral' wire, sem sagt heitt, kalt, ground og neutral, er ekki ólíklegt að maður sé með slíkt í 20-30 ára gömlu húsi? http://store.linksys.com/Belkin-WeMo-Li ... ewprod.htm
Ég trúi varla að menn geti rukkað svona upphæðir eins og þessir aðilar sem hafa verið bent á í þessum þræði gera. Jújú, ekki sömu gæði eða möguleikar, en cmon.

Skoðaði dimmerinn, sé enga CE merkingu á honum. (Gætir hugsanlega galdrað Kína CE merkingu á hann). Trúlega sama á við hluta af hinu sem þú vísar á.
Þannig að það má ekki flytja búnaðinn inn og enginn rafvirki mun tengja hann.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Mán 11. Nóv 2013 10:24
af beatmaster
Svona til að áretta þá er þessi CoCo lausn sem að þú talar um að kosti 56.000 kr. með 4 móttökurum ódýrt miðað við að KNX lausn myndi væntanlega kosta aldrei kosta undir 500.000 kr.
Ekkert að því sem að þú hefur fundið ódýrt á ebay sýnist mér vera löglegt á Íslandi og myndi væntanlega verða eyðilagt í tollinum eða þér boðið að senda hlutina til baka, því miður þá kostar að fá CE vottun og ódýrir kínaframleiðendur eru ekkert að hafa áhuga á því, þú verður allavega að passa að það sé örugglega CE merkt það sem að þú pantar þér af netinu til þess að það fái að komast í gegnum tollinn
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Mán 11. Nóv 2013 10:35
af Garri
Er núna farinn að pæla í WIFI switch, hún talar um að það þurfti 'neutral' wire, sem sagt heitt, kalt, ground og neutral, er ekki ólíklegt að maður sé með slíkt í 20-30 ára gömlu húsi?
Neutral wire, oftast hvítur, er eins og annað skautið á geymi eða batterí. Riðstraumur þarf tvo víra rétt eins og jafnstraumur til að mynda hringrás. Riðstraumur fer fram og til baka en jafnstraumur frá mínus í plús.
Þannig að neutral vír er í öllum húsum, hvort sem þau eru gömul eða ný.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Mán 11. Nóv 2013 12:10
af Swanmark
Arduino er tilvalið í svona!
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Mán 11. Nóv 2013 14:30
af tdog
Swanmark skrifaði:Arduino er tilvalið í svona!
Arduino rýfur ekkert álag. Þyrftir held ég tvö relay bara til þess að stýra einu ljósi. Eitt sem stýrir stýrispennu, T.d 12V (skilrofi) finder liði sem opnar og lokar fyrir 230V stýrispennu og svo 230V relay (aflrofa) sem opnar og lokar fyrir ljósið sjálft.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Mán 11. Nóv 2013 15:07
af Tbot
Garri skrifaði:
Er núna farinn að pæla í WIFI switch, hún talar um að það þurfti 'neutral' wire, sem sagt heitt, kalt, ground og neutral, er ekki ólíklegt að maður sé með slíkt í 20-30 ára gömlu húsi?
Neutral wire, oftast hvítur, er eins og annað skautið á geymi eða batterí. Riðstraumur þarf tvo víra rétt eins og jafnstraumur til að mynda hringrás. Riðstraumur fer fram og til baka en jafnstraumur frá mínus í plús.
Þannig að neutral vír er í öllum húsum, hvort sem þau eru gömul eða ný.
Núllið er blátt (ljós blátt) samkvæmt IST 200.
Re: Rafvirkjar! Tengja öll ljós miðlægt
Sent: Mán 11. Nóv 2013 15:19
af upg8
"Leggja" loftljósunum, þú hefur miklu betri stjórn á lýsingu með lömpum og þá þarft þú ekkert að eiga við raflagnirnar.
Fáðu þér sett af RF fjarstýrðum rofum 230V, CE vottuðum og setur á hvern lampa. Stillir fjarstýringuna og ljósin, tekur síðan fjarstýringuna í sundur og lætur arduino stjórna rofunum á henni... getur svo bætt við kerfið smám saman, -er nokkur reglugerð sem bannar það? Tek það fram að ég er ekki rafvirki og þvi varpa eg þessu fram sem spurningu.