Síða 1 af 1

Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 17:17
af hakkarin
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/ ... att_a_ruv/

Nei, nú er nóg komið.

Burt með þetta Rúv helvíti. Kæri mig ekki um að fólk þurfi að borga skatta fyrir þetta bull.

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 17:31
af tdog
Þú veist að RUV er líka á auglýsingamarkaði er það ekki?

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 17:35
af hakkarin
tdog skrifaði:Þú veist að RUV er líka á auglýsingamarkaði er það ekki?


Sem að er bara mjög ósiðlegt...

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 17:54
af littli-Jake
Alveg löngu kominn tími á að loka þessu drasli. Verst að þá mundi 365 stenda einir eftir sem alvöru fjölmiðill á íslandi.

Eina ástæðan fyrir að það er ekki búið að beila á þessu drasli er að Páll Magnússon er besti vinur aðal.

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 17:55
af appel
Vísir ætlar að gefa Barnaspíta Hringsins peninga.
Sólarhring síðar...
RÚV ætlar að gefa 10 milljónir (af skattfé) til örugglega einhvers sem þarf ekki á því að halda.


Good move RÚV.

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 18:03
af Nariur
Ég elska þegar fólk dæmir hluti án þess að vita neitt um þá.
Í fyrsta lagi sjá Spilavinir um vinninginn og í öðru lagi eru næstum engar líkur á að einhver gangi út með neitt sem nálgast 10 milljónir.
Ég var viðstaddur við upptökur á fyrsta þættinum.

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 18:23
af Moldvarpan
Sé ekkert að þessu.

Kostaður RÚV er dropi í hafið....


Farið frekar að tala um hlutina sem að skipta eitthverju máli.

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 18:34
af hakkarin
Nariur skrifaði:Ég elska þegar fólk dæmir hluti án þess að vita neitt um þá.
Í fyrsta lagi sjá Spilavinir um vinninginn og í öðru lagi eru næstum engar líkur á að einhver gangi út með neitt sem nálgast 10 milljónir.
Ég var viðstaddur við upptökur á fyrsta þættinum.


Ef að það eru einkaaðilar sem að eru að borga fyrir þetta þá er alveg hægt að spyrja sig af hverju rúv þarf penninga frá ríkinu yfir höfuð, ef að hægt er að finna einkaaðila til þess að sponsera sjónvarpsefni.

Moldvarpan skrifaði:Sé ekkert að þessu.

Kostaður RÚV er dropi í hafið....


Farið frekar að tala um hlutina sem að skipta eitthverju máli.


Djöfull þoli ég það ekki þegar fólk notar þessa fáránlegu rökfærslu til þess að réttlæta bruðl.

"Nei mitt bruðl er svo ómerkilegt og lítið ráðist frekar á eitthvað annað bruðl í staðinn!" :thumbsd

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 19:01
af Moldvarpan
Ég hef rök fyrir þessari skoðun minni þó ég nenni ekki að rífast við þig á netinu.

Ég er ánægður með Ruv og skoðaðu kostnað Ruv í samhengi við öll útgjöld ríkisins.
Með því að vera eyða tíma í þetta, þá er verið að draga athyglina frá því sem raunverulega skiptir máli.

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 19:11
af vesley
Moldvarpan skrifaði:Ég hef rök fyrir þessari skoðun minni þó ég nenni ekki að rífast við þig á netinu.

Ég er ánægður með Ruv og skoðaðu kostnað Ruv í samhengi við öll útgjöld ríkisins.
Með því að vera eyða tíma í þetta, þá er verið að draga athyglina frá því sem raunverulega skiptir máli.



Ástæðan fyrir því að talað er um Rúv er útaf því að það má alveg vel við niðurskurði, missum ekki neitt frá samfélaginu með smá tekjuskurði hjá Rúv.

Helmingur útgjalda Rúv til spítalans og við væru bara nokkuð flottir!

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 21:37
af Nariur
hakkarin skrifaði:Ef að það eru einkaaðilar sem að eru að borga fyrir þetta þá er alveg hægt að spyrja sig af hverju rúv þarf penninga frá ríkinu yfir höfuð, ef að hægt er að finna einkaaðila til þess að sponsera sjónvarpsefni.

SERIOUSLY?! Einkaaðilar covera ekki allan kostnaðinn. Þó að þátturinn væri ekki sponsaður væru svona útgjöld í fínu lagi þar sem verðlaunakostnaður er ekki nema brot af framleiðslukostnaði þáttarins. Það gengur ekki einhver út með 10 millur í hverri viku. Það er mjög auðvelt að framleiða mikið dýrari þætti.

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 22:02
af tdog
Þið vitið væntanlega strákar að RÚV er eini fjölmiðillinn sem fólk í dreifbýlinu getur reitt sig á. Ykkur sem finnst ekki réttlátt að borga undir fjölmiðlaþjónustu fyrir þann hluta landsmanna finnst væntanlega líka fáránlegt að borga vegi undir þann hluta landsmanna?

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Mið 06. Nóv 2013 23:33
af Gislinn
tdog skrifaði:Þið vitið væntanlega strákar að RÚV er eini fjölmiðillinn sem fólk í dreifbýlinu getur reitt sig á. Ykkur sem finnst ekki réttlátt að borga undir fjölmiðlaþjónustu fyrir þann hluta landsmanna finnst væntanlega líka fáránlegt að borga vegi undir þann hluta landsmanna?


Einnig er RÚV skilt að senda út á langbylgju sem aðrir fjölmiðlar þurfa ekki að gera, langbygljan er mjög mikilvægur liður í almannavörnum.

Hinsvegar þá finnst mér að það mætti leggja RÚV niður sem sjónvarpsstöð og halda þessu batterý-i eingögnu úti sem útvarpsþjónustu (með tilheyrandi fréttastofu). Eða aðskilnað sjónvarpsins og útvarps og reka sjónvarpið þannig að það standi undir sér sjálft (á auglýsingatekjum). :fly

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Fim 07. Nóv 2013 00:06
af bigggan
Ég er ekki að fara borga mafiosuna i 365 8000 kall fyrir 5 stöðvar þar sem ég mún bara horfa á tveimur þeirra örfárra skipti. Alt sem ég þarf er á netflix og HBO, og fleira flottum stöðum.

Það er gott að ísland rekur einn al íslensk stöð sem allir hafa möguleiki á að horfa á, með litið magn auglýsingar og eru ekki eins og Bandarikin þar sem það er auglýsing á 5 min fresti i 10 mínútur.

Reyndar ér ég sammála úm að ef þetta er skattpening sem fer í þetta mátti það sleppa þvi, ef þetta var þeirra eigin tekjur eða "gjafir" þá finnst mér það i lagi.

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Fim 07. Nóv 2013 01:59
af Viktor
Mér finnst að það eigi að selja Rúv. Það breytir þó ekki þeirri staöreynd að það er ekkert að því að framleiða þennan þátt, rolur ;)

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Fim 07. Nóv 2013 02:22
af worghal
djöfull nenni ég ekki þessu bauli alltaf í þér Hakkarinn.
hefuru heirt um "jumping to conclusions"?

](*,)

Re: Rúv ætlar að gefa 10 millur í spurningaþætti!

Sent: Fim 07. Nóv 2013 13:39
af einarhr
worghal skrifaði:djöfull nenni ég ekki þessu bauli alltaf í þér Hakkarinn.
hefuru heirt um "jumping to conclusions"?

](*,)


:happy