Síða 1 af 1
Að tengja DualShock 3 við PC?
Sent: Mán 04. Nóv 2013 23:39
af Xovius
Ég var að eignast eitt stykki DualShock 3 stýripinna (ps3) og langar að tengja hann við tölvuna, það væri svosem ekkert vesen (fann til dæmis þetta og fleira
http://www.youtube.com/watch?v=TpSaOJJIun8) nema hvað ég á ekki MiniUSB-b í USB-A snúruna sem ég þarf víst til að tengja þarna á milli, ég er með bluetooth á móðurborðinu og ég á gamalt hleðslutæki með MiniUsb-b tengi svo ég get hlaðið fjarstýringuna og notað hana, ég virðist bara ekki getað installað driverum og svona. Þegar ég læt bluetoothið mitt leita og kveiki á stýripinnanum sér tölvan ekkert. Ég tjékkaði hvort hún sæi símann minn og það virkaði svo það er ekki bluetooth í tölvunni sem er að feila.
Get ég fundið þessa drivera einhversstaðar annarsstaðar eða er það kannski ekki vandamálið?
Er kannski alveg nauðsynlegt að finna sér svona snúru?
Re: Að tengja DualShock 3 við PC?
Sent: Mán 04. Nóv 2013 23:53
af MrSparklez
Er ekki viss með að nota bluetooth en mín ps3 fjarstýring virkar vel með snúru og DS3 driverunum
Re: Að tengja DualShock 3 við PC?
Sent: Þri 05. Nóv 2013 00:01
af Xovius
MrSparklez skrifaði:Er ekki viss með að nota bluetooth en mín ps3 fjarstýring virkar vel með snúru og DS3 driverunum
Arg!
Veit að ég á alveg að geta tengt hana með bluetooth (þannig tengist hún ps3) en samkvæmt þeim leiðbeiningum sem ég hef fundið þarf maður þessa snúru til að setja þetta upp. Ætli ég endi ekki bara með því að fá snúru lánaða hjá einhverjum til að installa :/
Re: Að tengja DualShock 3 við PC?
Sent: Þri 05. Nóv 2013 00:03
af worghal
þetta bluetooth á tölvunni getur ekki séð það, en það er hægt að fá bluetooth dongle sem getur það. eitthvað encoded shit býst ég við.
verður bara að redda þér snúru.
Re: Að tengja DualShock 3 við PC?
Sent: Þri 05. Nóv 2013 09:44
af diabloice
þarft að vera með forrit sem heitir motioninjoy , og svo þarf spes blutetooth dongle til að tengja þær í gengum bluetooth við pc en lítið mál að tengja með usb með þessu forriti
Re: Að tengja DualShock 3 við PC?
Sent: Þri 05. Nóv 2013 09:52
af rubey
Þarft snúru til að tengja hana við pc, alveg eins með ps3. Þannig veit hún hverju hún á að tengjast með bluetooth sem virkaði fínt á lappanum mínum.
Re: Að tengja DualShock 3 við PC?
Sent: Þri 05. Nóv 2013 12:07
af stjani11
þú þarft þessa snúru til að hlaða batteríin á fjarstýringunni svo að ef þú átt hana ekki þá geturu ekkert notað fjarstýringuna
Re: Að tengja DualShock 3 við PC?
Sent: Þri 05. Nóv 2013 18:29
af Xovius
stjani11 skrifaði:þú þarft þessa snúru til að hlaða batteríin á fjarstýringunni svo að ef þú átt hana ekki þá geturu ekkert notað fjarstýringuna
Ef þú hefðir lesið upprunalega postinn hefðirðu séð að ég er með hleðslutæki...