Síða 1 af 1
Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Þri 29. Okt 2013 22:29
af appel
Allavega virðast verslanirnar vilja það... var í IKEA fyrir 2-3 vikum síðan og þá var verið að setja upp jólaskrautið. Núna er allt komið á fullt! En jólaskraut í miðjum október... úff... ég man þegar ég var krakki og þá var farið snemma í desember að skoða jólaskreytingar sem verslanir voru nýbúnar að setja upp... 1. des var þá svona það snemmsta.
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Þri 29. Okt 2013 22:36
af Yawnk
Svo sannarlega, enda fæ ég bílpróf á aðfangadag!!!
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Þri 29. Okt 2013 22:38
af AlexJones
Yawnk skrifaði:Svo sannarlega, enda fæ ég bílpróf á aðfangadag!!!
Núh, innpakkað og allt?
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Þri 29. Okt 2013 23:41
af beggi90
Þó að jólaskrautið fari nett í taugarnar á mér verð ég að viðurkenna að ég er farinn að kaupa jólaölið.
Jólastemmingin sjálf kemur sjaldnast fyrr en ég fer niðrí bæ um kvöldið 23. des og fylgist með stressuðu fólki.
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Mið 30. Okt 2013 07:57
af biturk
ég gæti alveg huxað mér góða steik, gott rauðvín og hlýja stund um kvöldið með kakó í faðmi fjölskyldunnar að horfa á jólamynd
já það er smá stemning komin í mig
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Mið 30. Okt 2013 08:28
af Moldvarpan
Nei... engin jólastemning í október hjá mér.
Annars er ég sammála Appel, að þetta á ekkert að byrja fyrr en uppúr desember.
En svo finnst mér líka eins og það hafi verið jól fyrir stuttu, þetta ár búið að líða hratt, og fólk strax farið að spá í jólunum,... úfff.
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Mið 30. Okt 2013 08:37
af jericho
Var akkúrat í gær að nefna það við konuna að það styttist heldur betur í jólin... "
ég kemst í jólafíling" eins og Baggalútur söng
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Mið 30. Okt 2013 08:52
af playman
NEI!
Hef ekki verið alvöru jólaskapi síðustu 10-15 ár, þetta byrjar alltof snemma.
Mér fynnst að ekkert jóladrasl eigi að byrja fyrr en í Desember, fyrirtæki ættu ekkert að byrja auglísa
eða setja upp jóladót fyrr en í fyrstalagi 1 Des, og í rauninni fynst mér
að það ættu að vera lög um það!
Hverninn er hægt að vera í jólaskapi í 2-3 mánuði á ári???
Bara sorry en með þessu áframhaldi þá geta verslanir alveg eins sleppt því að taka niður jólaskrautið
og byrjað að auglísa jólin í Janúar!
Ég sniðgeng allar verslanir eins og ég get sem eru byrjaðar svona snemma með Jólin.
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Mið 30. Okt 2013 09:09
af appel
playman skrifaði:NEI!

af ASUStek
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Mið 30. Okt 2013 09:11
af HalistaX

Svo hjartanlega sammála. Ég er kannski dauður að innan en ég hef allavegana ekki fundið fyrir jólunum í nokkur ár. Er svo lítið spenntur fyrir jólunum að mig hlakkar meira til að verða tvítugur þann 21.des.....og ég drekk ekki einu sinni...
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Mið 30. Okt 2013 09:13
af ASUStek
ég elska jólin! jólastemmingin kemur bara þegar þú lætur það koma! ekki bíða þangað eitthvað fyrirtæki byrjar að skreyta.
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Mið 30. Okt 2013 10:38
af Akumo
Jólastemmingin kemur þegar maður kemst í fyrsta jólabjórinn
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Mið 30. Okt 2013 11:44
af Jón Ragnar
Akumo skrifaði:Jólastemmingin kemur þegar maður kemst í fyrsta jólabjórinn
Nei
Drakk jólabjór í ágúst. virkaði ekki
EN það er J-dagurinn á föstudag. Hlutir gætu breyst þá þót að Tuborg Jólabjórinn er ekkert best í heimi
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Sun 17. Nóv 2013 01:25
af Tesy
Jæja, jólastemningin er komin til mín.. Nú er ég með jólamyndaæði svo.. hver er ykkar uppáhalds jólamynd eða er eh sérstök mynd sem þig mælið með?
Re: Er komin jólastemmning í þig?
Sent: Sun 17. Nóv 2013 01:38
af urban
Tesy skrifaði:Jæja, jólastemningin er komin til mín.. Nú er ég með jólamyndaæði svo.. hver er ykkar uppáhalds jólamynd eða er eh sérstök mynd sem þig mælið með?
að sjálfsögðu home alone og die hard, ekkert hægt að halda jól nema kíkja á þessar