Síða 1 af 1
Made in China
Sent: Fös 18. Okt 2013 14:50
af svanur08
Hvað finnst ykkur um ef fræg merki eins og Sony eða Panasonic vörur eru stundum vörur frá þeim Made in China þó þetta sé nú Japönsk merki? Til dæmis Playsation 2 og 3 eru made in china, skiptir það einhverju máli hvaða landi?
Re: Made in China
Sent: Fös 18. Okt 2013 14:56
af oskar9
haha já vitanlega, þó eitthvað sé framleitt þar þá sjá fyrirtækin um gæðastjórnun og ráðningar og passa að aðbúnaður og tækni sé 100% því þau þurfa að passa uppá orðsporið.
þetta er bara vegna þess að fyrirtækin þurfa að borga fólki svo lág laun. gætirðu ýmindað þér hvað 42" LED sjónvarp myndi kosta sem væri framleitt á Íslandi eða Noregi t.d., þar sem laun við slíka vinnu væri sirka 300-400 þús á mánuði
Hins vegar ef kínverskt fyrirtæki framleiðir eitthvað, þá er það oftast eitthvað cheap knock off af öðrum vörum
Re: Made in China
Sent: Fös 18. Okt 2013 14:59
af svanur08
Þannig að ef fyrirtækið er frá öðru landi og kannski sumt frá þeim framleitt í kína ætti það að vera good quality?
Re: Made in China
Sent: Fös 18. Okt 2013 14:59
af appel
Ég myndi segja að fyrirtækin passi upp á að þetta sé góð framleiðsla. Vörumerkin eru mikilvæg, og passað er upp á að slæm framleiðsla eyðileggi þau ekki. Því eru oftast japanir sem stjórna framleiðslunni þarna, en kínverskur verkaskríll sér um handavinnuna.
En ef þetta er kínverskt vörumerki, framleitt í Kína, þá er það orðið vafasamt enda allt aðrar gæðakröfur.
Re: Made in China
Sent: Fös 18. Okt 2013 15:07
af Garri
ps3 allavega fat útgáfan var algjört drasl. Lélegt kælikrem og iðulega of mikið sett á bæði örrann og þann grafíska.
Menn geta gúglað yellow ligt til að fá smá mynd af "herlegheitunum"