Síða 1 af 1
Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 16:06
af GullMoli
http://www.reykjavik.is/desktopdefault. ... read-37436 Slökkt verður á götulýsingu í fjórum hverfum Reykjavíkur í kvöld vegna frábærrar norðurljósaspár Veðurstofu Íslands. Myrkvunin mun eiga sér stað á milli kl. 21:30 og 22:00 og verður slökkt á lýsingu í Öskjuhlíð, Grafarholti, Skólavörðuholti og Breiðholti-Seljahverfi. Reykvíkingum ætti því að gefast frábært tækifæri á því að sjá einstaka norðurljósasýningu á þessum stöðum í kvöld og eru íbúar hvattir til að taka þátt og slökkva ljósin í íbúðarhúsum sínum líka svo myrkvunin verði sem mest og ljósmengun sem minnst nema frá hinu frábæra sjónarspili í himinhvolfinu ef aðstæður verða réttar.
Myrkvunin er gerð í samráði við lögreglu, slökkvilið og Orkuveitu Reykjavíkur. Fólk er hvatt til að aka einstaklega varlega á þessum svæðum og sýna tillitssemi á meðan myrkvun stendur. Reykjavíkurborg vill einnig minna fólk á hin frábæru útivistarsvæði í nágrenni borgarinnar, t.a.m. Heiðmörk og Hólmsheiði þar sem hægt er að njóta norðurljósa enn betur. Takið með ykkur nesti og nýja skó.
Djöfull er ég að fýla þetta, finnst skemmtilegt þegar ljósin eru slökkt og hvað þá af svona tilefni!
Passið bara að læsa húsunum ef þið farið út og búið á þessum myrkvasvæðum
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 16:08
af dandri
Ég ætla klárlega að fylgjast með í kvöld, norðurljósin voru æðisleg í gærkvöldi þannig ég er spenntur fyrir kvöldinu.
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 16:09
af Stutturdreki
Það verður slökkt á svæðum 2, 9, 15 og 20, sjá mynd:
Þetta hjálpar örugglega eitthvað, ef það verður ekki skýjað eins og allt stefnir í, en ljósmengun verður samt töluverð. Td. efast um að þetta gagnist mikið á svæði 2 þegar allt verður upplýst allt í kring.
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 16:11
af dandri
Málið er að fara upp á einhvern stað þar sem þú ert tiltölulega yfir ljósmenguninni, hjálpar mjög mikið við að sjá norðurljósin vel.
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 16:13
af GullMoli
Náttúrulega alltaf lang best að fara út fyrir bæjarmörkin, hef sjálfur stundum farið nálægt bláfjöllum. Munar alveg stórkostlega miklu að hafa enga ljósmengun í kring.
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 16:26
af oskar9
Akureyri síðustu nótt:
Ath. þessi mynd er ekki í fullri upplausn
Canon 550D- 17-40mm ISO-400, WB-3000K
Virðast vera einhver óhreinindi í sensornum, sem útskýrir rauðu pixlana, en þessar myndir eru allveg óunnar Jpeg myndir, fóru útaf vélinni og inná Imgur, þoli ekki norðurljósa myndir sem er svo búið að djúsa upp og ýkja í photoshop
http://i.imgur.com/AkJado0.jpghttp://i.imgur.com/sBPl9Hz.jpghttp://i.imgur.com/9ciTTKp.jpghttp://i.imgur.com/KzmT61w.jpghttp://i.imgur.com/N8tlpyi.jpghttp://i.imgur.com/14f2c9T.jpg
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 16:47
af vesley
GullMoli skrifaði:Náttúrulega alltaf lang best að fara út fyrir bæjarmörkin, hef sjálfur stundum farið nálægt bláfjöllum. Munar alveg stórkostlega miklu að hafa enga ljósmengun í kring.
Eða skjótast uppí mosfellsdal.
Svo er bara að vona að það létti til.
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 16:52
af Kristján
eins gott að það verði ekki eins skýjað og það er núna....
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 17:07
af Vignirorn13
Kristján skrifaði:eins gott að það verði ekki eins skýjað og það er núna....
Nákvæmlega! það er alskýjað! En ætli það sé sniðugt að fara í Perluna og þarna út á svalirnar þar.
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 17:11
af Stutturdreki
Samkvæmt
vedur.is verður heiðskýrt á höfuðborgarsvæðinu í kvöld.. en samkvæmt þeim er líka léttskýjað akkurat núna..
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 17:20
af Vignirorn13
Stutturdreki skrifaði:Samkvæmt
vedur.is verður heiðskýrt á höfuðborgarsvæðinu í kvöld.. en samkvæmt þeim er líka léttskýjað akkurat núna..
Já, var búinn að sjá það en ég myndi ekki kalla þetta léttskýjað hahah..
edit* Var að sjá að Hafnarfjörður og Kópavogur ætla líka að slökkva öll ljós.
http://visir.is/gotuljos-einnig-slokkt- ... 3131019359
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 18:49
af Glazier
Fyrir þá sem vilja nördast..
http://www.raunvis.hi.is/~halo/leirvogur.htmlÞegar línuritið þarna fer á hreyfingu eru líkur á norðurljósum.. því meiri hreyfing því meiri virkni, sjáið t.d. í gær var mjög mikil virkni til 04:00 og róaðist eftir það
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 19:06
af Hnykill
Flott framtak.. svona haga íslendingar sér... er ákveðið stoltur að búa hér !
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 19:19
af GullMoli
Heyrði eitthvað um að það þyrfti líklegast að fara norður fyrir fjall til þess að losna við þessi ský, í kringum Hveragerði t.d.
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 23:16
af Vignirorn13
GullMoli skrifaði:Heyrði eitthvað um að það þyrfti líklegast að fara norður fyrir fjall til þess að losna við þessi ský, í kringum Hveragerði t.d.
Já, Það sást ekkert í Reykjavík :/
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 23:53
af demaNtur
Ef þið farið í hafnarfjörð, þar uppí klukkubergi er þokkalega lítil ljósmengun fyrir aftan blokkina þar
http://www.instantstreetview.com/2wnb5x ... z2cjzksz1fÞarna fyrir aftan blokkina
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Þri 15. Okt 2013 23:59
af Glazier
Miðað við virknina ættu ljósin fyrst núna að vera farin að sýna sig.. en svooldið skýjað til þess samt
http://www.raunvis.hi.is/~halo/leirvogur.html
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Mið 16. Okt 2013 00:00
af appel
Einhverskonar aprílgabb reykjavíkurborgar og veðurstofunnar? Annars finnst mér furðulegt hvað margir láta leiða sig út í eitthvað rugl bara útaf því það birtist frétt um "norðurljós" í fjölmiðlum, þá alltíeinu rennur á fólk norðurljósaæði einsog það geti ekki séð norðurljósin á öðrum góðum kvöldum næstu mánuði.
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Mið 16. Okt 2013 00:02
af danniornsmarason
enginn ský á kleifarvatni, en ekki nein norðurljós þar heldur, var þar í 3 klukkutíma að bíða eftir þeim en aldrey komu nein, rétt eitthvað sem maður sá varla
Re: Norðurljósabrjálæði í kvöld!
Sent: Mið 16. Okt 2013 19:20
af Vignirorn13
Var að heyra um að það gæti verið einhver í kvöld..
http://www.vedur.is/vedur/spar/nordurljos/ allaveganna smá virkni samkvæmt þessu og seinna í kvöld á að vera meiri.