Lögbannskröfu rétthafa hafnað
Sent: Fös 11. Okt 2013 12:34
http://ruv.is/frett/logbannskrofu-retthafa-hafnad
Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði í morgun lögbannskröfu nokkurra rétthafasamtaka á fimm fjarskiptafyrirtæki. Sú krafa var gerð að fjarskiptafyrirtækin lokuðu fyrir aðgang notenda sinna að skráarskiptasíðunum Deildu.net og Pirate Bay. Ákvörðun sýslumanns verður skotið til héraðsdóms.
Að sögn Tómasar Jónssonar, lögmanns samtakanna, taldi sýslumaður að þar sem starfsemi þessara vefsíðna hefði verið í gangi lengi væri hagsmunum samtakanna betur borgið með því að fara í skaðabótamál við umræddar vefsíður.
Heimild er í lögum fyrir að láta loka vefsíðum á borð við deildu.net og Pirate Bay. Tómas segir að sýslumaður hafi viljað túlka þessa heimild mjög þröngt með tilliti til mannréttindaákvæðis og tjáningarfrelsis.
Tómas sagðist í samtali við fréttastofu vera mjög ósáttur með þennan úrskurð sýslumanns og að honum yrði skotið til héraðsdóms.