Síða 1 af 1

Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 20:43
af appel
Einn daginn hringir í þig forsætisráðherran og segir að búið er að samþykkja að byggja nýja borg á Íslandi, c.a. 50-100 þús manna, og þú hafir orðið fyrir valinu til að ráða því algjörlega hvernig sú borg á að vera og hvar hún á að vera. Segjum að 1.000 milljarðar dugi til verksins, þannig að þú mátt ekki byggja allt úr gulli.

Hvernig myndi þessi útópía þín líta út?
Hvar myndi þú staðsetja hana? (má vera þar sem lítill bær fyrir nú þegar)
Hvernig yrðu samgöngur? Bæði innan borgarinnar og út á við.
Hvernig væri hún ólík því sem við þekkjum á Íslandi í dag?

Komdu með hugmyndir og færðu rök fyrir hlutunum.


Besta tillagan fær sigurlaun. Líklega bara thumbs up, en samt, það er nú eitthvað.

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 21:11
af rango
Ég myndi segja sama og er núna bara bæta við öflugu rafmagnsdrifnu metro kerfi og taka út strætó.


Enn þegar tæknin er komin þá þurfum við að fara byggja öðruvísi borgir,
Þeas borgir sem rísa upp og flugtengd fyrirbæri munu taka við af bílum.

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 21:13
af JoiMar
http://en.wikipedia.org/wiki/Shimizu_Mega-City_Pyramid

Eitthvað í þessum stíl, þeas eins sjálfbært og mögulegt er, fullkomið samgöngukerfi innan borgarmarka, allur úrgangur enduruninn o.s.fr. Ég veit ekki alveg með lögunina og stærðin á engan veginn við. En mér finnst conceptið skemmtilegt.

Staðsetningin yrði svo líklega fyrir norðan eða austan, fer eftir því hvor fjórðungurinn nær því að byggja upp höfn/hafnir fyrir norðurslóða siglingar og mögulega olíu vinnslu.

Ps. Mæli eindregið með Extreme Engineering: City in a Pyramid.

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 22:08
af trausti164
Ég myndi byggja menntaborg með góðum high budget háskóla og bókasöfnum.
Annars myndi ég redda fiber interneti og hafa gott strætó kerfi.
Ég myndi staðsetja borgina fyrir norðan í einhverjum dalnum til þess að aðeins fólk sem að væri að leitast eftir góðri menntaborg myndi flytja þangað og forðast þannig sníkjudýr.

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 22:09
af appel
Staðsetning: Borgarnes.
Þar er víðáttumesta flatlendi Íslands sem er við sjó, er á jarðfræðilega tryggum stað og með nóg af orku og vatni nálægt.
Mikilvægt finnst mér að byggja á flatlendi, þar sem slíkt einfaldar mjög allt skipulag, gatnaframkvæmdir og svo þarf fólk ekki að puða við það að hjóla upp stíga... úff...

Ég myndi byggja mjög þétt og banna bíla í borginni. Einu vélknúnu faratækin eiga að vera almenningssamgöngur/leigubílar, neyðarbílar, og vöruflutningar.. allt saman rafmagnsknúið og smærri farartæki en við þekkjum. Það á að vera byggt yfir gatnakerfið, þannig að notalegt sé að ferðast á veturnar á hjóli eða gangandi, slíkt útilokar þannig nagladekk, vetrarófærð, og hálku og rykmengun. En basically, burt með einkabílinn... getur notað hann fyrir utan borgina.



Ég er ekki alveg hrifinn af svona einni byggingu sem borg, finnst það svolítið áhættusamt m.t.t. elds og hryðjuverka og svona.

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 22:27
af Pandemic
Ég er sammála Appel og ég myndi bæta við það að hafa hjólastíga og góðan infastructure fyrir hjól.

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 22:29
af Icelandgold
Well ef ég mæti ráða myndi ég gera kinda modern City,Myndi staðsetja hana þar sem Þórshöfn er Atm,

Myndi taka alla vegi(Hafa samt allar gangstéttir eftir ,Maður verður að geta hlupið smá og labbað ) og seta metro kerfi

Væri til í stóra og góðaskóla(Ekki með svona Computers,
1205521904_or_71723.jpg
1205521904_or_71723.jpg (228.4 KiB) Skoðað 1157 sinnum
,Góða Löggeslu og Sjúkrahús



Hef ekki hugmynd hvað hún yrði stór ,líklega bara á meðan fjármögn leyfa .

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 22:47
af oskar9
Icelandgold skrifaði:Well ef ég mæti ráða myndi ég gera kinda modern City,Myndi staðsetja hana þar sem Þórshöfn er Atm,

Myndi taka alla vegi(Hafa samt allar gangstéttir eftir ,Maður verður að geta hlupið smá og labbað ) og seta þessi farartæki sem eiga að fara frá reykjavík til egillsstaða á 45 min,Einhverjar kinda lestar. Man ekki hvað það heitir :dissed Þar sem á næstu árum verður bílum skipt út (Held ég).

Væri til í stóra og góðaskóla(Ekki með svona Computers,
15521904_or_71723.jpg
,Góða Löggeslu og Sjúkrahús

Þessi borg yrði frábundinn öllum borgum landsins,svo ef fólk kæmi á bíl bara að henni væri það vandamál?Personulega myndi ég seta hátæknibílarstæðar hús or some eithvað af því undergrund og eithvað sjáanlegt ofc í smá Modern Style :sleezyjoe

Hef ekki hugmynd hvað hún yrði stór ,líklega bara á meðan fjármögn leyfa .


Dafuq did i just read :droolboy

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 22:58
af Icelandgold
\:D/ kom mjög fuckd up út

Breyti þessu mjög :klessa

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 23:17
af Viktor
:-"

Mynd

Re: Ný borg

Sent: Fim 10. Okt 2013 23:19
af kax
þessar pælingar eru ekki nýjar eins og búast má við en sumir hafa obsessast yfir svona hugmyndum svo ákaft að ekkert annað kemst fyrir í hausnum þeirra
t.d. Jacque Fresco en hann er búinn að hugsa upp hið "fullkomna samfélag" en auðvitað er ekkert fullkomið en hann er nú kominn slatti nálægt því! engir peningar, engin mengun og allt grænt og gott. og það besta er að þetta actually virkar!(myndi virka)

lesa má meira um þetta hér: [url]thevenusproject.com[/url]
og heimildarmynd hér: http://www.youtube.com/watch?v=5zn8MRKOskw

hvað finnst ykkur?

Re: Ný borg

Sent: Fös 11. Okt 2013 03:24
af Baldurmar
oskar9 skrifaði:
Icelandgold skrifaði:Well ef ég mæti ráða myndi ég gera kinda modern City,Myndi staðsetja hana þar sem Þórshöfn er Atm,

Myndi taka alla vegi(Hafa samt allar gangstéttir eftir ,Maður verður að geta hlupið smá og labbað ) og seta þessi farartæki sem eiga að fara frá reykjavík til egillsstaða á 45 min,Einhverjar kinda lestar. Man ekki hvað það heitir :dissed Þar sem á næstu árum verður bílum skipt út (Held ég).

Væri til í stóra og góðaskóla(Ekki með svona Computers,
15521904_or_71723.jpg
,Góða Löggeslu og Sjúkrahús

Þessi borg yrði frábundinn öllum borgum landsins,svo ef fólk kæmi á bíl bara að henni væri það vandamál?Personulega myndi ég seta hátæknibílarstæðar hús or some eithvað af því undergrund og eithvað sjáanlegt ofc í smá Modern Style :sleezyjoe

Hef ekki hugmynd hvað hún yrði stór ,líklega bara á meðan fjármögn leyfa .


Dafuq did i just read :droolboy

Er ekki viss, eina sem ég er viss um í þessu samhengi er, að ég væri í til kinda-lestir..