Síða 1 af 1

Finna dóma á netinu?

Sent: Mán 07. Okt 2013 23:58
af Glazier
Mig vantar að finna nokkra dóma á netinu en finn þá bara enganveginn.. veit ekki hvern fjandan ég er að gera vitlaust :-k

En það er þó sérstaklega einn dómur sem mig vantar að finna og stendur í bréfi sem ég fékk sent heim í pósti orðrétt

"Yður er bent á endurrit dómsins fæst hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Jafnframt má finna dóminn á heimasíðu dómstólaráðs www.domstolar.is en leita má eftir ofangreindu málsnúmeri"

Ég leita eftir ofangreindu málsnúmeri og á öllum mögulegum dagsetningum en finn ekki þann dóm sem ég er að leita að :roll:

Re: Finna dóma á netinu?

Sent: Þri 08. Okt 2013 00:12
af eriksnaer
Búinn að leita hér ? http://www.domstolar.is/domaleit/

Re: Finna dóma á netinu?

Sent: Þri 08. Okt 2013 00:15
af worghal
einvher nafngreindur?
getur leitað að nafni í frekari leit.

Re: Finna dóma á netinu?

Sent: Þri 08. Okt 2013 00:15
af Glazier
eriksnaer skrifaði:Búinn að leita hér ? http://www.domstolar.is/domaleit/

Já.. hélt ég hefði sagt það með þessari setningu..
Glazier skrifaði:Ég leita eftir ofangreindu málsnúmeri og á öllum mögulegum dagsetningum en finn ekki þann dóm sem ég er að leita að :roll:


worghal skrifaði:einvher nafngreindur?
getur leitað að nafni í frekari leit.

Búinn að reyna nafn/nöfn alveg í bak og fyrir, líka google :/

Re: Finna dóma á netinu?

Sent: Þri 08. Okt 2013 00:24
af rapport
Spes, var þetta nokkuð mál sem fékk afbrigðilega málsmeðferð á einhvern hátt?

þá as in speedy trial eða kynferðisbrot eða e-h sem ætti að fara leynt til að vernda brotaþola?

Re: Finna dóma á netinu?

Sent: Þri 08. Okt 2013 00:27
af Glazier
rapport skrifaði:Spes, var þetta nokkuð mál sem fékk afbrigðilega málsmeðferð á einhvern hátt?

þá as in speedy trial eða kynferðisbrot eða e-h sem ætti að fara leynt til að vernda brotaþola?

Sá dómur sem mig vantar hvað mest að finna ætti ekki að hafa fengið neina afbrigðilega málsmeðferð, þar sem ég er brotaþoli í þeim dómi þá myndi ég sennilega vita af því ef svo væri :-"

Re: Finna dóma á netinu?

Sent: Þri 08. Okt 2013 05:30
af Danni V8
Leitin á þessari síðu er nokkuð straight forward og ítarleg. Ef þú nærð ekki að finna dóminn út frá dómsnúmeri eða nafni þá annað hvort er dómurinn ekki aðgengilegur almenningi í gegnum síðuna, hann ekki kominn inn á síðuna ennþá eða þú að gera eitthvað vitlaust í leitinni.