Síða 1 af 1

Hringdu og Netflix

Sent: Þri 01. Okt 2013 19:37
af Captaintomas
Sælir sælir meistarar

Er að lenda í því núna síðustu tvo daga eða svo að ná slæmu sambandi við Netflix í gegnum apple TV. Hvort er líklegra að vandamálið sé hjá Netflix eða Hringdu. Netið virkar hjá mér en er ekkert alltof hratt samt sem áður. Kannast einhver við svipuð vandræði?

Góðar kveðjur

CP

Re: Hringdu og Netflix

Sent: Þri 01. Okt 2013 19:41
af sopur
sama hér :OOOOOOO er reyndar hjá símanum

Re: Hringdu og Netflix

Sent: Þri 01. Okt 2013 19:55
af GuðjónR
Ég líka, sérstaklega eftir að þetta SuperHD kom hjá þeim.
Netflix er líka verra á kvöldin.

Fæ líka oft gula þríhyrninginn og skilaboðin að tækið nái ekki þjónustunni, þá þarf ég að restarta AppleTV, eru fleiri að lenda í því?

Re: Hringdu og Netflix

Sent: Þri 01. Okt 2013 19:58
af Captaintomas
Ég er reyndar með línuna frá símanum en í viðskipum við Hringdu. Nákvæmlega það sem ég er að lenda í Guðjón

Re: Hringdu og Netflix

Sent: Þri 01. Okt 2013 20:01
af gardar
Er gáttin hjá hringdu ekki bara búin að fyllast enn einu sinni?

Re: Hringdu og Netflix

Sent: Þri 01. Okt 2013 20:01
af Captaintomas
Var einmitt að spá í því. Best að ég hringi í þá.

Re: Hringdu og Netflix

Sent: Þri 01. Okt 2013 20:09
af rattlehead
Kannast ekki við þetta. Hins vegar tók ég að efni datt úr superhd öðru hvoru í kvöld. Er á ljósi hjá Vodafone

Re: Hringdu og Netflix

Sent: Þri 01. Okt 2013 21:43
af AntiTrust
Ekkert óeðlilegt svosem við að detta úr SuperHD í HD af og til, Netflix hafa talað um að gæðin geti hoppað á milli upplausna eftir álagi á delivery kerfinu þeirra. Ég er þó alveg búinn að vera að fá stöðugt 1080p undafarna daga, er á ljósi hjá Voda.