Síða 1 af 1

Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 18:33
af GönguHrólfur
Hvenar öðluðust yður kæru tölvuáhugamenn fyrstu tölvu yðar? Ég fékk mína fyrstu tölvu þegar ég var 13 ára í fermingargjöf og var það Dell tölva með pentium 4 örgjörva sem ég notaði einkum í Guild Wars og Counter strike source iðkun.

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 18:37
af GönguHrólfur
Oh, ég ætlaði að vera ógeðslega sniðugur og segja t-a-lva, en það breyttist víst að sjálfum sér úr því að það er of mikil synd hér að orða það sem svo.

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 18:41
af trausti164
Mín fyrsta tölva var annaðhvort eMac G4 eða Pentium 3 linux box, var svo ungur að ég man ekki hvort kom fyrst.

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 18:43
af oskar9
Fyrsta tölvan mín var gömul IBM (held ég) þessar sem lágu á hliðinni og maður hafði skjáinn ofan á þeim, spilaði gamlan flight simulator leik í henni og líka Return to Castle Wolfenstein

Good times :lol: :lol:

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 18:44
af Vignirorn13
Mín var eldgömul Toshiba-fartölva man ekki hvað var í henni en 1 gb ram og ég notaði hana í cs 1,6 þegar hann var spilaður mikið.

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 18:45
af littli-Jake
GönguHrólfur skrifaði:Oh, ég ætlaði að vera ógeðslega sniðugur og segja t-a-lva, en það breyttist víst að sjálfum sér úr því að það er of mikil synd hér að orða það sem svo.


Bara ekkert athugavert við að hafa auto corect á þessu. Kanski að menn læri þá.

En annars var fyrsta vélin mín fermingarvél með Pendium 3 örgjörva og gig af sdram. Man ekki frekari specs

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 18:59
af BugsyB
386 20mhz - 2mb edo ram - 200mb hdd minnir mig.

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:05
af Klaufi
Hálftengdir þræðir, svona til skemmtunar:

viewtopic.php?f=9&t=44377
viewtopic.php?f=9&t=50676

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:06
af hfwf
littli-Jake skrifaði:
GönguHrólfur skrifaði:Oh, ég ætlaði að vera ógeðslega sniðugur og segja t-a-lva, en það breyttist víst að sjálfum sér úr því að það er of mikil synd hér að orða það sem svo.


Bara ekkert athugavert við að hafa auto corect á þessu.Kanski að menn læri þá.

En annars var fyrsta vélin mín fermingarvél með Pendium 3 örgjörva og gig af sdram. Man ekki frekari specs


Kannski* :)
Correct* :)
Pentium* :)
Svona fyrst menn vilja læra ;)

Annars var mín gömul Tulip 66mhz ef ég man rétt með varla ekkert ram , man ekki nægilega og 20 eða 40mb harður diskur :)

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:11
af sakaxxx
fyrsta tölvan mín var einhver hyundai drusla early 90s með dos hún kom með 2x 5.25 floppy og eitt 2.5 floppy drif man ekki meira var svo ungur

spilaði aðalega scorched earth og fyrsta duke nukem leikin :D

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:17
af BugsyB
sakaxxx skrifaði:fyrsta tölvan mín var einhver hyundai drusla early 90s með dos hún kom með 2x 5.25 floppy og eitt 2.5 floppy drif man ekki meira var svo ungur

spilaði aðalega scorched earth og fyrsta duke nukem leikin :D


ja akkurat min var einmitt hyundai líka var að muna það núna hahahahahahahahaha eru enþá til hyundai tölvur í dag?

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:18
af Gilmore
Acorn Electron, fékk ég eitthvað um 1986 eða 87.

http://en.wikipedia.org/wiki/Acorn_Electron

Fyrstu PC vélina fékk ég um 1995 en ég er með hana í undirskriftinni.

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:19
af worghal
BugsyB skrifaði:
sakaxxx skrifaði:fyrsta tölvan mín var einhver hyundai drusla early 90s með dos hún kom með 2x 5.25 floppy og eitt 2.5 floppy drif man ekki meira var svo ungur

spilaði aðalega scorched earth og fyrsta duke nukem leikin :D


ja akkurat min var einmitt hyundai líka var að muna það núna hahahahahahahahaha eru enþá til hyundai tölvur í dag?

held þeir geri bara skjái núna í dag
http://www.hyundaiit.com/

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 19:19
af GönguHrólfur
Klaufi skrifaði:Hálftengdir þræðir, svona til skemmtunar:

viewtopic.php?f=9&t=44377
viewtopic.php?f=9&t=50676


Þessi þráður var fyrst og fremst gerður í ákveðnu grínskyni til að sjá hversu margir myndu brjálast út í mig fyrir að segja "t-a-lva" heheh :guy , en einnig er auðvitað gaman að vita hversu old school margir hérna eru =D>

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 21:07
af jojoharalds
Pentium 2 1998árg,
með 233mhz örgjörva oc 390mhz
128mb vinnsluminni
ati Rage 128 Pro
6GB harðadiskur(hann var freaking hlunkur
250watta powersupply

og eitthvað aðeins meira sem ég man ekki.

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Mán 30. Sep 2013 21:27
af siggik
fyrsta tölvan sem ég komst í snertingu við var hjá bróður mínum

http://upload.wikimedia.org/wikipedia/c ... 040STf.jpg

og á ég hana núna ennþá í geymslu :D , margir skemmtilegir leikir sem var spilað á þessu

fyrsta tölvan sem ég eignaðist sjálfur fyrir utan Nintendo var eitthvað sem ég fékk í fermingar gjöf, man nú ekki hvað það var AMD eitthvað

Re: Hvað var fyrsta tölvan þín?

Sent: Þri 01. Okt 2013 00:05
af peer2peer
Amd Athlon K7 400mhz
128mb minni @133mhz
8mb Geforce