Síða 1 af 1

Mythbusters

Sent: Lau 14. Sep 2013 12:36
af Stuffz
Er búinn að vera að gera rasíu í að horfa á þetta efni síðustu vikur, datt í hug að stofna þráð hérna fyrir spjall tengt þessum tilraunum.

Væri gaman að vita t.d eftirminnilegustu tilraunirnar sem menn muna eftir úr þáttunum

og hvaða tilrauna niðurstöðum maður er ósammála, og þá hversvegna og hvað gleymdist/hefði mátt prófa betur o.s.f.

ég er búinn að sjá allt að seríu 6 en bara einstaka þætti úr seinni seríum, svona 2 mánuðir í að maður verði búinn að sjá þetta allt.


Svo líka er það ýmindun hjá manni eða hafa þættirnir verið sleikjulegir þegar viðkemur goðsögnum sem tengjast opinbera geiranum, maður hefur rekist á það alloft í efni frá Discovery Channel að þeir virðast njóta ýmissa forréttinda í samskiptum við hinar ýmsu stéttir hins opinbera, ásamt aðgengi að sérstökum stöðum, tæknibúnaði, efnum o.s.f. til samanburðar ég efast Íslenski ríkisfjölmiðillinn komist með tærnar þar sem þeir hafa hælana í svona eyrarkaupum.

Re: Mythbusters

Sent: Lau 14. Sep 2013 15:28
af Zorky
Breaking Bad þátturin var snilld, ég er líka hooked á þessum þáttum :)

Re: Mythbusters

Sent: Lau 14. Sep 2013 15:32
af biturk
elska þessa þætti er búnað sjá þá flest alla og horfi alltaf á þetta á vaktafríum á discovery channel sæll og glaður

í gærmorgun voru nokkrir þættir í röð og ég fór ekki frá sjónvarpinu þann tíma

Re: Mythbusters

Sent: Sun 15. Sep 2013 16:35
af Stuffz
Zorky skrifaði:Breaking Bad þátturin var snilld, ég er líka hooked á þessum þáttum :)


ekki séð hann ennþá, en sá brot úr honum á discovery vefsíðunni, eitthvað með vatn og málm sem springur right?

Re: Mythbusters

Sent: Sun 15. Sep 2013 17:20
af Zorky
Stuffz skrifaði:
Zorky skrifaði:Breaking Bad þátturin var snilld, ég er líka hooked á þessum þáttum :)


ekki séð hann ennþá, en sá brot úr honum á discovery vefsíðunni, eitthvað með vatn og málm sem springur right?


Nei það er verið að prófa sýru og sprengja krystal efni eins og í breaking bad.

Re: Mythbusters

Sent: Sun 15. Sep 2013 20:00
af Viktor
Virkilega skemmtilegir þættir, Adam og Jamie eru snillingar.
Þoli hins vegar ekki þetta lið, koma alltaf út eins og lélegir leikarar:

Mynd

Re: Mythbusters

Sent: Mið 18. Sep 2013 10:22
af tdog
Kari er eina ástæðan fyrir því að ég horfi á þetta.

Re: Mythbusters

Sent: Mið 18. Sep 2013 14:12
af Output
Elska þessa þætti. Einu tveir hlutirnir sem ég hata er þegar þau eru að kynna myth-in í byrjun á þátunum (Þau eru bara lélegir leikarar og ekkert hægt að gera í því). Og síðan hata ég hvað þau þurfa alltaf útskýra myth-in í hverju atriði, það er frekar óþolandi.

Re: Mythbusters

Sent: Sun 22. Sep 2013 11:32
af Stuffz
Output skrifaði:Elska þessa þætti. Einu tveir hlutirnir sem ég hata er þegar þau eru að kynna myth-in í byrjun á þátunum (Þau eru bara lélegir leikarar og ekkert hægt að gera í því). Og síðan hata ég hvað þau þurfa alltaf útskýra myth-in í hverju atriði, það er frekar óþolandi.


Já varðandi blaðrið á milli o.s.f þá ef ég er ekki að gera neitt annað á meðan ég er að horfa þá hef prófað að horft á nokkra þætti á 150% hraða og það er jafnvel bara meira skemmtilegra, styttra á milli atriða.

Jamie er sennilega eini hæfi (expert) einstaklingurinn á hópnum, en hann er sjálfsagt ekki nógu "camera friendly" eins og Adam frá sjónarhorni framleiðandanna.

Mynd Mynd

upphaflega valið á þeim virðist hafa verið að finna tvo ólíka einstaklinga fyrir svona reality-TV drama fíling í kringum mögulega ekki nógu áhugaverð viðfangsefni en svo eftir að verða mjög vinsælt efni þá var bætt við yngra uppfyllingarefni Kari o.s.f