Síða 1 af 1
Bílprófið og allt i kringum það..
Sent: Mið 04. Sep 2013 11:08
af Arnarmar96
Sælir, 16 ára gutti sem verður núna 17 ára i þessum manuði, en málið er að ég er ekki að ná bóklega prófinu :/
veit eitthver hvað þú "mátt" falla oft þangað til þú átt að taka ökuskóla 2 eða 1 aftur?
AFH er þetta svona fjandi dýrt.. !
ég læri og læri eins og motherfucker (afsakið orðbragðið) en kem þessu eitthvernveginn aldrei inní hausinn á mér..
Féll í fyrsta skiptið á Y með 16 villur.. svo var ég núna að falla á Z með 11 villur.. vonandi gengur mér betur næst en Móðirnáttura hvað ég er pirraður!
Re: Bílprófið og allt i kringum það..
Sent: Mið 04. Sep 2013 11:12
af playman
Búin að prófa að byðja um lesblindu astoð?
Re: Bílprófið og allt i kringum það..
Sent: Mið 04. Sep 2013 11:13
af tdog
Slakaðu þér bara aðeins, taktu 1 - 2 vikur í að fá 0 á æfingaprófunum á netinu og farðu svo í prófið. Það þýðir ekkert að taka eitt kvöld í þetta.
Re: Bílprófið og allt i kringum það..
Sent: Mið 04. Sep 2013 11:32
af Arnarmar96
playman skrifaði:Búin að prófa að byðja um lesblindu astoð?
Jabb, og það er ekki fyrr en í oktober sem ég meika eiginlega ekki
Re: Bílprófið og allt i kringum það..
Sent: Mið 04. Sep 2013 11:51
af svensven
Arnarmar96 skrifaði:playman skrifaði:Búin að prófa að byðja um lesblindu astoð?
Jabb, og það er ekki fyrr en í oktober sem ég meika eiginlega ekki
Ef þú ert viss um að ná þessu ekki eins og staðan er núna, þá gæti verið betra að bíða heldur en að henda mörgum þúsundköllum út um gluggann.
Re: Bílprófið og allt i kringum það..
Sent: Mið 04. Sep 2013 16:11
af Frantic
Mæli með að taka lesblinduprófið.
Hef heyrt að það sé allt stafað ofan í fólkið og miklu líklegra að ná því.
Re: Bílprófið og allt i kringum það..
Sent: Mið 04. Sep 2013 16:38
af Arnarmar96
Frantic skrifaði:Mæli með að taka lesblinduprófið.
Hef heyrt að það sé allt stafað ofan í fólkið og miklu líklegra að ná því.
nú versnar í því.. ég hringdi í ökukennarann og ekkert hægt að fá fyrr en í november/snemma í des
ætla taka annað próf á miðvikud. ef ég næ því ekki þá held ég að eina í stöðunni er að taka einstaklingsprófið bara
Re: Bílprófið og allt i kringum það..
Sent: Mið 04. Sep 2013 16:52
af halli7
Ertu með aðgang hér inná:
http://verkefni.aka.is/verkefni/?
Þarna er fullt af góðum verkefnum til að æfa sig á.