Síða 1 af 1

Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking sorp

Sent: Fim 29. Ágú 2013 21:58
af hakkarin
Ég verð að viðurkenna að ég varð frekar spenntur þegar að ég heyrði að það væri Íslensk grín teiknimynd að koma á Rúv.

Þegar þetta er skrifað þá er fyrsti þátturinn núna á RúV, ég gat ekki horft á hann í nema svona 5-7 mín áður en ég gafst upp á honum. Djöfull er þetta mikið fokking rusl.

Animationið lýtur út eins og að 14 krakki hafi teiknað þetta í MS paint, og næstum allir "brandaranir" eru bara eitthvað samhengislaust "kúkur piss typpi hahaha". Sumir benda á að mikið af skopmyndum Hugleiks séu oft þannig, en það er ekki það sama að bera með þannig brandara í 2 ramma skopmynd og þætti sem að maður á að horfa á 10-20 min.

Ég get allavega sagt það að þetta er líklega með því mesta sorpi sem að er á RúV í augnarblikinu, eða í það minsta þegar það kemur að skemmtiefni.

Horfuð þið á þáttinn? Og ef hvernig fannst ykkur hann vera?

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fim 29. Ágú 2013 22:11
af Haflidi85
Þetta var mjög steykt, en ég fílaði þetta vel

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fim 29. Ágú 2013 22:13
af SIKk
Enga spoilera takk :mad , ég ætla að horfa á sjálfur :happy

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fim 29. Ágú 2013 22:18
af littli-Jake
fanst lögreglustjórinn semy findinn en annars. Mehhhh

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fim 29. Ágú 2013 22:23
af urban
zjuver skrifaði:Enga spoilera takk :mad , ég ætla að horfa á sjálfur :happy


afhverju í ósköpunum skoðaru þá þennnan þráð ?

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fim 12. Sep 2013 22:35
af Dagur
Það er ekki hægt að dæma þætti af örfáum mínútum. Mér finnst þeir frábærir.

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fim 12. Sep 2013 22:43
af Baldurmar
Ég hef alltaf fílað Hugleik Dagsson, þessir þættir eru snilld !

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fim 12. Sep 2013 22:59
af Eraserhead
Sammála með fyrsta þáttinn. Hann var ekki nógu góður. en þættir 2 og 3 voru frábærir.

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fim 12. Sep 2013 23:00
af GullMoli
Er bara búinn að sjá fyrsta og annan. Mér finnst þetta alveg ágætlega fyndið, þokkalegt gróft haha.

"To the batmobile!" :lol:

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fös 13. Sep 2013 02:25
af Gummzzi
Gott stöff :happy

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fös 13. Sep 2013 09:06
af Plushy
Finnst aðeins of mikið af fólki hylja hann sem einhvern guð grínleikans og allt efni sem hann snertir með vinstri eistanu breytist í hvítagull.

Stundum finnst mér það sem hann gerir fynndið, stundum finnst mér eins og hann hefði mátt sleppa því.

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fös 13. Sep 2013 09:27
af Viktor
Þessir þættir eru hrein snilld.

Mynd

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fös 13. Sep 2013 09:34
af Talmir
Svona húmor er voða persónulegur.

Sumir horfa á brandarana sem bara einhvern gubb og typpa húmor, aðrir horfa á þetta sem algera snilld.

Mér þykir þættirnir góðir því það er verið hnitmiðað að skíta yfir alla hvort sem það er lögreglan, gelgja að tala í síma, vaxtarræktartröll, friend-zoned náunginn, treflarnir eða einhver önnur íslensk stereótýpa. Jújú, þetta eru typpa og píkubrandarar upp til hópa, en þeir eru "vandaðir" að því leitinu til að hann notar þá ekki bara til að segja "Typpi! Hahahaha", heldur er smá meiri húmor í kringum það.

En eftir allt þá eru þetta bara þættir teiknaðir af gaur út í bæ sem endurspeglar algerlega hans húmor. Ef einhver fílar ekki húmorinn þá er bara best fyrir þann aðila að horfa ekki á þáttinn. Það er yfir nógu miklu að kvarta þessa dagana án þess að bæta íslenskum teiknimyndum við hrúguna.

Re: Hulli: Nýja teiknimyndinn frá Hugleiki Dagsson..Fokking

Sent: Fös 13. Sep 2013 09:55
af Stutturdreki
Hugleikur er svona svipaður og Klovn, fer oft langt yfir strikið og maður hlær stundum meira af því að þetta setur vandræðalegar/vafasamar kringumstæður í kaldhæðnislega spaugilegar aðstæður. En er alls ekkert fyrir alla.