Síða 1 af 1

hahahahaha ég fékk 48 hamborgara á 1200kr!

Sent: Mið 21. Ágú 2013 01:59
af hakkarin
Djöfull elska ég desperate ofur-útsölur!

Málið er að ég og bróðir minn vinnum i STRAX á Flúðum og búðinn þar keypti fullt af hamborgurum (4 í pakka með brauði) til að selja öllum ferðamönnunum sem að voru að koma. En búðarinar til undrunar seldist þetta bara voða lítið. Þá varð fólk desperate og vildi losa sig við þetta áður en þetta skemmist, og þessu skellt á massive útsölu, þar sem að pakkinn kostaði ekki nema 100 kr.

Ég og bróður minn vissum að þetta myndi fjúka út eins og skot, þannig að við ákváðum á meðan það var hægt að kaupa 12 pakka (48 hamborgara), þurftum ekki að borga nema 1200kr fyrir það :P :P :P

Munnið það bara næst þegar þið látið okra á ykkur á eitthverjum eitthverstaðar að á meðan þið eruð að borga 1400kr fyrir 1 borgara og gos að þá sitt ég ofan á fjalli af borgurum sem að ég borgaði næstum ekkert fyrir.

hahahhaaha.

Re: hahahahaha ég fékk 48 hamborgara á 1200kr!

Sent: Mið 21. Ágú 2013 02:20
af worghal
frábært :D
þá býður þú í grill núna á næstunni =D>

Re: hahahahaha ég fékk 48 hamborgara á 1200kr!

Sent: Mið 21. Ágú 2013 06:59
af Bjosep
Þjóðnýta þessa hamborgara !!!

Re: hahahahaha ég fékk 48 hamborgara á 1200kr!

Sent: Mið 21. Ágú 2013 07:55
af urban
hakkarin skrifaði:Munnið það bara næst þegar þið látið okra á ykkur á eitthverjum eitthverstaðar að á meðan þið eruð að borga 1400kr fyrir 1 borgara og gos að þá sitt ég ofan á fjalli af borgurum sem að ég borgaði næstum ekkert fyrir.


Ef að ég borga 1400 kall fyrir borgara og gos einhver staðar þá
A. fæ ég fraskar með.
B. fæ ég ost á hann og líklegast beikon líka.
C. ég elda hann ekki sjálfur.
D. ég þarf ekki að vaska upp eða þrífa grillið eða pönnuna.
E. Sjoppuhamborgarar hafa þetta "eitthvað" sem að gerir þá bara einfaldlega öðruvísi en þegar að maður eldar þá sjálfur (ekkert endilega betri, en öðruvísi)

og hvernig í ósköpunum datt manninum til hugar að annars vegar panta svona mikið, í öðru lagi að selja þetta svona rosalega ódýrt og í þriðjalagi að leyfa starfsfólkinu hjá sér að kaupa svona mikið af þessu ?

Re: hahahahaha ég fékk 48 hamborgara á 1200kr!

Sent: Mið 21. Ágú 2013 08:10
af lukkuláki
Fyndið ég var þarna um daginn og keypti 5 pakka af þessum ofur-tilboðs-borgurum (verð áður 998kr. nú 100.-kr.) grillaði alla borgarana um kvöldið og kryddaði, setti svo 1 borgara og brauð í hvern poka og skellti þeim í frystinn.
Krakkarnir skella þessu svo í örbylgjuna og setja það sem þau vilja á hann bara þægilegt verst er að 90 gramma borgarar eru ekki mönnum bjóðandi það á ekki að selja neitt minna en 120gr.

Re: hahahahaha ég fékk 48 hamborgara á 1200kr!

Sent: Mið 21. Ágú 2013 10:09
af dori
lukkuláki skrifaði:Fyndið ég var þarna um daginn og keypti 5 pakka af þessum ofur-tilboðs-borgurum (verð áður 998kr. nú 100.-kr.) grillaði alla borgarana um kvöldið og kryddaði, setti svo 1 borgara og brauð í hvern poka og skellti þeim í frystinn.
Krakkarnir skella þessu svo í örbylgjuna og setja það sem þau vilja á hann bara þægilegt verst er að 90 gramma borgarar eru ekki mönnum bjóðandi það á ekki að selja neitt minna en 120gr.

Ætti að vera bannað að kalla þetta eitthvað annað en "krakkaborgara".

Re: hahahahaha ég fékk 48 hamborgara á 1200kr!

Sent: Mið 21. Ágú 2013 10:24
af Klemmi
hakkarin skrifaði:Munnið það bara næst þegar þið látið okra á ykkur á eitthverjum eitthverstaðar að á meðan þið eruð að borga 1400kr fyrir 1 borgara og gos að þá sitt ég ofan á fjalli af borgurum sem að ég borgaði næstum ekkert fyrir.


Þegar verzlanir þurfa að borga með vörum þá þýðir það ekki að aðrar verzlanir séu að okra.

Minnir mig á umræðu um verzlun sem greiddi ekki innflutningsgjöld af vörunum sem hún seldi en kallaði aðrar verzlanir okurbúllur...