Síða 1 af 2

Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Mán 29. Júl 2013 17:58
af ASUStek
sælir veit að ég ætti alveg að skrifa þetta inná live2cruize en hérna en ég hef fundið að þið eru nú meira í specconum ekki lookinu
en þú veist áður en ég fer í bland-mode :baby

þá er ég að leita af 4"/10cm hátalara og 6x9 hátalara í bílinn minn þar sem einn fremmri er farinn go báðir afturí rosaslæm gæði
er samt soldið fátækur á þann hátt að ég ætla ekkert að eyða mánaðarlaunum í þetta, hvaða hátalarar eru að performa svona best?
ef það munar 2-5þ kalli á einhverju en sá dýrari er betra brand eða gæði etc þá er það náttúrulega no brainer :sleezyjoe

er jafnvel til að kaupa notað frá einhverjum hérna sem er með gott rep :guy

er líka að skoða lítið box+magnara :-" \:D/

stofan er besti staðurinn fyrir þetta því ég er líka bara leita af umræðum um hvað ég ætti að gera! :happy

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Mán 29. Júl 2013 19:00
af aggibeip
Ég er nýbúinn að endurhátalaravæða bílinn minn og ég fékk mér þessa:

Framan
Aftan

Ég er reyndar með þetta tengt við magnara.. En það er allavega þrusugott sound í þessu :)

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Mán 29. Júl 2013 19:26
af DJOli
Þegar ég var að pæla í hátölurum í bílinn minn ákvað ég að gera allt *rétt* og leita uppi CEA-2006 vottuðum hátölurum.

Ég fékk mér hátalara frá Jbl, vegna þess að 1. Þá eru þeir vottaðir, og upplýsingatölurnar eru allar vottaðar. Þar að auki hljóma þeir þrusuvel.

Framhátalarar:
http://sm.is/product/10cm-90w-2-way-hatalarar
Bakhátalarar:
http://sm.is/product/6x9-300w-3-way-hatalarar

Fyrir gæði, og vottaðar tölur um kraft, þá finnst mér ekki vera mikið að borga 3,140kr.- meira.

Þar sem ég tel mig nokkuð vel fróðan um hljómtæki hlæ ég að því að þeir hjá audio.is auglýsi hátalarana sem 'topp merki fyrir lengra komna' án þess að með fylgi í auglýsingunni, né á síðu framleiðanda PDF skjöl með öllum vatta tölum (bæði w, og w rms) auk þeirra vottana sem fylgja ef einhverjar eru til staðar.

Hér hinsvegar, fást bæklingar fyrir hátalarana að ofan, og auðvitað eru þeir fríir.

Hér má finna helstu upplýsingar um hátalarana, rms vött, og fleira.
http://www.jbl.com/images/media/GTO938_OM_EN.pdf

Hér er Ábyrgðarbæklingurinn sem fylgir með hátölurunum hvar sem þú kaupir þá, og er í honum tekið fram að hátalararnir séu CEA vottaðir

http://www.jbl.com/images/media/JBL%20G ... 010_04.pdf

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Mán 29. Júl 2013 20:20
af ASUStek
Aggi ég var akkúrat að pæla í þessum og hafa þá bara tengda beint í útvarpstækið, Djoli líst reyndar líka vel á jbl en bara það sem stendur á specconum á þeim vs SSL LS hjá audio.is er bara erfitt að líta undan

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Mán 29. Júl 2013 20:25
af DJOli
ASUStek skrifaði:Aggi ég var akkúrat að pæla í þessum og hafa þá bara tengda beint í útvarpstækið, Djoli líst reyndar líka vel á jbl en bara það sem stendur á specconum á þeim vs SSL LS hjá audio.is er bara erfitt að líta undan

Það þýðir ekkert að taka mark á 'spekkum' nema þeir fáist svartir á hvítu með einhverri vottun um að það sé ekki verið að ljúga upp í opið fésið á þér.

Auk þess eru 4ohm mjög óhentugt þegar kemur að hljómtækjum í bíla, magnararnir kosta mun mun meira en þeir sem ætlaðir eru 2ohm.

2ohm er lægra viðnám en 4ohm. Því hærra sem viðnámið er, því erfiðara er að keyra hlutinn.

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Mán 29. Júl 2013 20:31
af ASUStek
jájá það er alveg rétt. er líka svona eeeh afhverju er svona erfitt að finna reveiws á SSL dóti miðað hvað þeir eru ódýrir og góðir...
ætla skoða JBL meira

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Mán 29. Júl 2013 20:59
af oskar9
Ég er með 180W Dali gólfhátalara hjá mér, ætli þessir 250W SSL séu þá betri og háværari :guy

ódýr merki sem auglýsa einhverjar insane wattatölur eru bara prettir, svo þeir geti bent fólki sem veit lítið um þetta á sína hátalara og sagt að þeir séu fleiri wött en dýrari hátalarar frá öðrum merkjum. Þetta eru merki sem maður forðast en duga fullvel fyrir einhvern sem er bara að skipta út ónýtum hátölurum án þess að vera að leita að uppfærslu sérstaklega, ef þú ert að losa þig við orginal hátalara úr venjulegum bíl þá ætti þetta að duga fínt.

Annars er ég alltaf sáttur við DLS, JBL, Alpine( þá Type S,R,X) þeir eru með Type-G sem eru ódýrari og eru fínir.

Svo eru Audiobahn murdered out hjá Audio.is að fá ágætis dóma sem budget mid range hátalarar

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Þri 30. Júl 2013 09:09
af aggibeip
Ég var bara að pæla í að hátalararnir væru ódýrir og góðir þegar ég keypti þessa. En ef þú getur fengið JBL hátalara sem eru betri, fyrir svipaðann pening, held ég að það sé algjörlega málið.

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Þri 27. Ágú 2013 01:54
af jardel
Mig langar að fá mér góða hátalara, DJOli og fleiri hér, ég sé að þið eru mjög fróðir um þessi málefni,
Gætuð þið t.d mælt með mjög góðum fram og aftur hátölurum sem passa í passat 2000 árg og fleiri bíla.

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Þri 27. Ágú 2013 02:10
af Son of a silly person
Ég hef nú ekki verslað á mörgum stöðum en get sérstaklega mælt með nesradíó í síðumúla með alpine hátalara. Hef verslað við þau lengi með marga bíla og hef alltaf fengið mjög góða þjónustu og ráðleggingar.

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Mið 28. Ágú 2013 02:43
af jardel
Nesradio hentar mér ekki

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Mið 28. Ágú 2013 04:54
af KillEmAll
Ekki kaupa soundstorm eða ssl eða hvað það nú er á audio.is Brenndi mig á því þegar ég var að byrja í bílgræjum að kaupa af honum. Algjört no name drasl. Hinsvegar er Audiobahn algjör snilld, ef hann á eitthvað svoleiðis

Tékkaðu á þessari síðu hér: http://www.sonicelectronix.com/

Hef verslað við þá nokkrum sinnum í gegn um tíðina og eru þeir mjög góðir. Senda international og alles.

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Fim 29. Ágú 2013 03:00
af jardel
Þakka fyrir svörin vil helst kaupa þetta hérna á íslandi

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Fim 29. Ágú 2013 05:35
af Ripparinn
Sjónvarpsmiðstöðin, JBL, mæli hiiiiklaust með þeim!

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Lau 31. Ágú 2013 19:32
af stefankarl
Er með JBL-GTO938 og Kenwood KDC-U31R, skellti video af þeim á youtube http://www.youtube.com/watch?v=SXEdBAeLHW4

GTO938 fást í sjónvarpsmiðstöðinni

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Lau 31. Ágú 2013 19:34
af mercury
Audio.is eina vitið.

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Sun 01. Sep 2013 01:34
af DJOli
mercury skrifaði:Audio.is eina vitið.

audio.is er drasl.

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Sun 01. Sep 2013 01:55
af I-JohnMatrix-I
DJOli skrifaði:
mercury skrifaði:Audio.is eina vitið.

audio.is er drasl.

What he said.

Ef þú ert að leita af hátölurum sem framleiða góðan hljóm fyrir lítinn pening þá færðu þér JBL eða Kenwood. Ef þú ert að leita þér að hátölurum sem búa til læti þá ferðu í audio.is og verslar þér sounstorm.

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Sun 01. Sep 2013 05:07
af demaNtur
doublepost

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Sun 01. Sep 2013 05:08
af demaNtur
DJOli skrifaði:
ASUStek skrifaði:Aggi ég var akkúrat að pæla í þessum og hafa þá bara tengda beint í útvarpstækið, Djoli líst reyndar líka vel á jbl en bara það sem stendur á specconum á þeim vs SSL LS hjá audio.is er bara erfitt að líta undan

Það þýðir ekkert að taka mark á 'spekkum' nema þeir fáist svartir á hvítu með einhverri vottun um að það sé ekki verið að ljúga upp í opið fésið á þér.

Auk þess eru 4ohm mjög óhentugt þegar kemur að hljómtækjum í bíla, magnararnir kosta mun mun meira en þeir sem ætlaðir eru 2ohm.

2ohm er lægra viðnám en 4ohm. Því hærra sem viðnámið er, því erfiðara er að keyra hlutinn.

Vottun, vottun, vottun.... Skiptir engu máli ef þú færð að heyra í hátölurunum áður enn þú kaupir þá, audio.is er mjög sanngjarn kall og ég get vottað að SSL hátalarnir frá þeim eru ekkert djók, var með tvö 450w hátalara í afturhillunni hjá mér og tvö litla 150w frammí... Þurfti ekki bassabox til að hlusta á góða tónlist, enn ég kaus það samt (17-18 ára, nú vill ég bara tært hljóð með ekki of miklum bassa, né háum tíðnum..)

Enn annars, SSL eru mjög fínir hátalarar, allaveganna sem ég hef átt.. JBL/Kenwood/alpine eru líka helvíti góðir :happy

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Sun 01. Sep 2013 10:23
af DJOli
demaNtur skrifaði:

1. Vottanir skipta máli fyrir þá sem vilja vita upp á hár hvað þeir eru að kaupa.
2. Án vottana eru auglýstar vattatölur algjörlega gagnslausar og ótreystandi.
3. Þú ert enginn vottur, né tekur á þig ábyrgð vattatölu ssl hátalara.

[kaldhæðni]Ég er með 6 gazillion watta bassakeilu í skottinu á bílnum mínum. Hún var framleidd af soundstream.[/kaldhæðni] (soundstream?. æl.)

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Sun 01. Sep 2013 14:09
af atlifreyrcarhartt
Soundstream tarantula eða alpine type r, ég veit hvað ég vill þarsem ég er með 4700rms og 7800w i skottinu hjá mér

Alpine er i rándyrari kanntinum.. en you get wat you pay for!

Soundstream er odyrara en eg mæli með að skoða dyrari typurnar frá þeim (þetta selst i bilanaust)

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Sun 01. Sep 2013 14:43
af RazerLycoz
getur eitthver sagt mér hvort þessi hátalari http://sm.is/product/165cm-180w-2-way-hatalarar er ekki helv...góður ? :oops:

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Sun 01. Sep 2013 15:23
af atlifreyrcarhartt
RazerLycoz skrifaði:getur eitthver sagt mér hvort þessi hátalari http://sm.is/product/165cm-180w-2-way-hatalarar er ekki helv...góður ? :oops:

Allsekki slæmir en það eru til betri á svipaðan pening :)

Re: Bílhátalarar-Er að leita af

Sent: Sun 01. Sep 2013 15:35
af RazerLycoz
atlifreyrcarhartt skrifaði:
RazerLycoz skrifaði:getur eitthver sagt mér hvort þessi hátalari http://sm.is/product/165cm-180w-2-way-hatalarar er ekki helv...góður ? :oops:

Allsekki slæmir en það eru til betri á svipaðan pening :)

:happy :happy en þú mátt líka koma með eitthvað betra á svipaðan pening :D en ég er svoldið into JBL vörurnar sko [-o<