Síða 1 af 1
LED ljós
Sent: Lau 27. Júl 2013 19:47
af Frantic
Ég á svona stykki og þrjár LED strips með frekar stuttum vírum.
Hvar fær maður (helst ódýran) straumbreytir til að keyra þetta og framlengingar á þessa víra?
EDIT:
Bæklingurinn segir "Maximum output power (for 12V Input): 72W"
Re: LED ljós
Sent: Lau 27. Júl 2013 20:24
af Saber
72W / 12V = 6 Amper
Kíktu í Íhluti eða Miðbæjarradíó.
Re: LED ljós
Sent: Lau 03. Ágú 2013 15:29
af Frantic
Hef einu sinni verslað straumbreyti í Íhlutum.
Mér fannst það bara viðbjóðslega dýrt.
Er engin verslun sem sérhæfir sig í LED eða einhverju álíka sem gæti átt svona straumbreytir?
Re: LED ljós
Sent: Lau 03. Ágú 2013 16:07
af mundivalur
Ódýrasti leynist ofan í skúffu 12v 2a
Mínir seljast á 2500kr með póst fyrir svona 5m led
Það væri best að lóða lengri víra að eða lóða við þessa víra !
Re: LED ljós
Sent: Lau 03. Ágú 2013 17:13
af playman
Gætir alltaf notað bara venjulegan PSU úr einhverju hræji, þeir eru með 12v sem þú þarft.
Vertu bara viss um að hann sé að gefa lágmark 75w/6A út af því rail sem þú ætlar að nota.
Re: LED ljós
Sent: Lau 03. Ágú 2013 18:06
af Frantic
Takk fyrir svörin.
Eftir smá leit í straumbreytakassanum fann ég einn straumbreytir sem er að gefa 20V og 3,5A en bæklingurinn segir að það er hægt að nota annað hvort 12V eða 24V straumbreytir en alltaf 6A.
Er búinn að prófa og allt virðist virka eins og á að gera.
Er ég að steikja eitthvað eða er allt í góðu því þetta er á milli 12V og 24V?
Þetta er að gefa rosalega góða birtu, er ekkert smá ánægður með útkomuna en þori varla að hafa kveikt á þessu í langan tíma nema að fá staðfestingu frá einhverjum sem þekkir eitthvað til að þetta sé í góðu.