Síða 1 af 1

Kaupa LED ljós

Sent: Fös 19. Júl 2013 22:21
af kjarrig
Sæl öll,
Er að leita mér að LED ljósi fyrir pallinn hjá mér. Hef verið að leita á netinu af einhverjum sem vill senda til Íslands, en það hefur ekki gengið. Veit einhver um verslun á netinu sem vill senda til Íslands, eða einhverja verslun hér á landi sem hefur svona ljós. Það eru 10 ljós sem mig vantar og þau þurfa að vera á sama straumbreyti.

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Fös 19. Júl 2013 22:26
af mundivalur
Led lengjur eða hvað

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Fös 19. Júl 2013 23:21
af kfc
Jóhann Ólafsson & Co eru að selja svona http://olafsson.is/

Ættir líka að geta fengið þetta í Rafkaup

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Fös 19. Júl 2013 23:29
af roadwarrior
Johan Ronning

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Fös 19. Júl 2013 23:34
af kjarrig
Ekki LED lengjur, eins og þetta http://www.ebay.co.uk/itm/10-x-45mm-LED ... 3a816a91db.

Rafkaup er svo dýr, sá stykkið á tæplega 16.000 kall og það X10, skoðaði líka í búð í Fellsmúlanum, man ekki hvað hún heitir, en leist ekkert of vel á það. Er að skoða Jóhann Ólafsson & Co og Rönning, takk fyrir þetta :)

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Fös 19. Júl 2013 23:39
af roadwarrior
Allt spurning um gæði, ef þú finnur eitthvað ódýrt þá getur verið að það verði ónýtt eftir ár. Vatn er alltaf til vandræða sérstaklega ef þú ætlar að setja í pallgólfið.
Spjallaðu við Gunnar V hjá JR og hann ætti að geta frætt þig eitthvað um þetta

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Fös 19. Júl 2013 23:41
af kjarrig
Geri mér grein fyrir því að maður borgar fyrir gæðin. En góðar hugmyndir frá ykkur.

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Lau 20. Júl 2013 02:37
af DabbiGj
www.dx.com

færð nákvæmlega það sem þú borgar fyrir þar, athugaðu að öll verð sem þú sérð á heimasíðunni þeirra eru með sendingarkostnaði til íslands

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Lau 20. Júl 2013 08:23
af tomas52
svo veistu að led ljós eru tollfrí þannig þú þarft bara að skoða verðið og sendingakostnaðinn ég er búinn að vera kaupa mjög mikið af led ljósum frá kína á ebay virka vel og kosta mjög lítið

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Sun 21. Júl 2013 11:28
af kjarrig
Hef verið að leita á Ebay, en ekki fundið neitt, ertu með einhverja sérstaka búð á Ebay?

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Sun 21. Júl 2013 22:48
af tomas52
kjarrig skrifaði:Hef verið að leita á Ebay, en ekki fundið neitt, ertu með einhverja sérstaka búð á Ebay?


nei bara leita vel og kaupa það ódýrasta á meðan það lýtur út fyrir að vera legit ..

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Sun 21. Júl 2013 23:52
af Gunnar
keyptu bara það ódýrasta og verslaðu þér svo kítti og taktu ljósið i sundur eins vel og þú getur og kíttaðu öll samskeiti og allstaðar þar sem vatn kæmist inn. ;)

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Mán 22. Júl 2013 08:45
af roadwarrior
Johan Ronnig flytur inn td frá þessum aðila :
http://www.lenalighting.pl/en/products/

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Mán 29. Júl 2013 21:55
af tomas52

Re: Kaupa LED ljós

Sent: Mán 29. Júl 2013 22:42
af eliasarnar
passaðu bara að þetta sé CE merkt annars er hætta á því að Tollurin hleipi þessu ekki inn