Halli13 skrifaði:Er í smá erfiðleikum með að heilda e
='D Sorry þetta var of fyndið.
En allavega:
Ég myndi checka á wolframalpha.com sem er (var) go-to síða allra nemenda í stærðfræði í nokkur ár, en þarfnast nú borgaðs aðgangs til þess að fá "step-by-step explanation" sem var obv besti fídusinn. Þú getur samt fengið loka svarið þar yfirleitt, í undantekningar tilvikum færðu eitthvað rugl en síðan er í sífelldri betrumbót.
Betra fyrir þig væri hins vegar að fara bara á Khanacademy.com og einfaldlega LÆRA að gera þetta. Sal Khan er sennilega einn besti kennari í heiminum og án efa sá auðveldasti að nálgast sem kennir námsefni á háskólastigi. Síðan hýsir þúsundir myndbanda um allt milli himins og jarðar, og þessi gaur hefur alveg sérstakan hæfileika fyrir því að útskýra stærðfræði á skiljanlegan hátt.
Svarið sem þú ert að leita að hins vegar, er svona:
f(x)=3e^2x, þumalputtaregla þegar heildað er yfir e er að nota breytuskipti. Látum 2x = u. Þá eru 2dx=du, eða dx= du/2.
Nú sést að undir heildinu er aðeins ein skalar stærð, 3/2, margfaldað við fallið e^u*du. Við tökum þá bara skalarinn út fyrir heildið og heildum e^u *du.
Það er augljóslega bara aftur e^u. Nú skiptum við aftur um breytu, svo u verður aftur 2x, margföldum útkomu heildisins við stærðina fyrir utan (3/2) og við sjáum að svarið er
3/2 *e^2x.
Þetta er hugsanlega vont að skilja svona í texta, en ég mæli sterklega með khanacademy og wolframalpha ef þú ert kominn í það öngstræti að spyrja hér á spjallinu.