Síða 1 af 1

Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 16:45
af tlord
NOVA er að auglýsa eftir starfskrafti..

þeir hefðu átt að enda með því að segja

'Mikki Mús og Andrés Önd munu taka vel á móti þér!'

:)

Notendaþjónusta og tæknirekstur
Nova

Leitum að hressum og skemmtilegum starfsmanni í notendaþjónustu
Nova sem sinnir tækniþjónustu við aðra starfsmenn
Nova (hafa ekki allir séð The IT Crowd?)

Liðsfélagi sem elskar að gera, redda, græja, er skipulagður,
stundvís og góður í samskiptum. Þjónusta og tæknirekstur
verslana, þjónustuvers og skrifstofu er hluti af starfinu sem og
náið samstarf við kerfisstjóra og aðra starfsmenn Nova.
Ekkert endilega að fara með þeim í golf um helgar en
bara vera næs, þú veist.

Starfsmaður þarf að hafa góða þekkingu á
Windows stýrikerfi og reynsla á uppsetningu
og viðhaldi á algengum skrifstofuhugbúnaði
og auðvitað skrifstofuhúsgögnum (kunna að
stilla bakið og hækka og lækka og svona).

Re: Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 16:50
af Kristján
ekkert að þessu.

Re: Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 16:58
af tlord
Kristján skrifaði:ekkert að þessu.


rétt, en amk broslegt

Re: Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 17:16
af rapport
Þetta sigtar bara frá þá umsækjendur sem hafa vott af sjálfsvirðingu...

Re: Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 17:31
af hkr
rapport skrifaði:Þetta sigtar bara frá þá umsækjendur sem hafa vott af sjálfsvirðingu...


Tja.. ég held að þetta sigtar nú bara nákvæmlega fólkið sem nova vill ekki, t.d. fýlupúka sem tuða yfir öllu (hint.. hint..) :guy

Re: Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 17:39
af I-JohnMatrix-I
Alveg sammála, finnst bara ekkert að þessari auglýsingu. Fátt jafn leiðinlegt og að vinna með einhverjum fýlupúka, tala nú ekki um að vinna undir fýlupúka.

Re: Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 17:56
af einarhr
hkr skrifaði:
rapport skrifaði:Þetta sigtar bara frá þá umsækjendur sem hafa vott af sjálfsvirðingu...


Tja.. ég held að þetta sigtar nú bara nákvæmlega fólkið sem nova vill ekki, t.d. fýlupúka sem tuða yfir öllu (hint.. hint..) :guy


:happy

Re: Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 19:12
af rapport
einarhr skrifaði:
hkr skrifaði:
rapport skrifaði:Þetta sigtar bara frá þá umsækjendur sem hafa vott af sjálfsvirðingu...


Tja.. ég held að þetta sigtar nú bara nákvæmlega fólkið sem nova vill ekki, t.d. fýlupúka sem tuða yfir öllu (hint.. hint..) :guy


:happy

:oops:

Re: Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 19:19
af lukkuláki
Hvað getið þið ímyndað ykkur að Nova sé að borga mönnum í laun fyrir svona vinnu ?

Re: Æ nei ... NOVA

Sent: Mán 01. Júl 2013 19:25
af rapport
lukkuláki skrifaði:Hvað getið þið ímyndað ykkur að Nova sé að borga mönnum í laun fyrir svona vinnu ?


350þ.+, finnst þessi auglýsing hljóma eins og hún sé fyrir liðlétting fyrir þá sem sjá raunverulega um innri tæknimál hjá þeim.