Síða 1 af 1

Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 11:39
af Benzmann
Rakst á þessa frétt

http://www.visir.is/lan-skattur-kynntur ... 3130629358

Svíþjóð er nátt eitt skattahæðsta land sögunnar, ætli þetta komi ekki líka til íslands eftir nokkur ár, þar sem við erum rétt á eftir þeim í röðinni.

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 11:43
af Stutturdreki
Well.. þeir eru basically að segja að tölvur séu spilakassar.

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 11:43
af Plushy
Ekki eins og við séum með stór lanmót eins og svíarnir, nema kannski HR-ingurinn sem er þó ekki það stór.

Annars finnst mér þetta frekar fáránlegt. Tölvur notuð í leiki eru spilakassar :P

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 11:47
af BugsyB
þetta muna bara bitna á notendunum - ríkið leggur skatt á þetta og fyritækið hækkar gjaldið um það svo notandinn borgar og fyrirtækið græðir jafn mikið oig finnur ekkert fyrir þessu.

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 11:49
af hakkarin
Benzmann skrifaði:Rakst á þessa frétt

http://www.visir.is/lan-skattur-kynntur ... 3130629358

Svíþjóð er nátt eitt skattahæðsta land sögunnar, ætli þetta komi ekki líka til íslands eftir nokkur ár, þar sem við erum rétt á eftir þeim í röðinni.


Gamla skattastjórnin er farinn, þannig að nei.

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 15:00
af Viktor
Þetta er hræðilegt :thumbsd

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 19:01
af Stuffz
náttúrulega hljómar eins og þetta séu fávitar, held samt að ástæðan sé friðþægingar pólitík.

X mikið um að menn taki flakkarana sína með LAN mót og hvaða aðilar eru óhressastir með alla deilingu efnis sem þeir geta ekki stjórnað.

manni dettur í hug önnur lagaleg skítafix eins og Marijuana Tax Act frá 1937, en forsendur þeirra laga kristallast einmitt í "Heimildarmyndinni" Reefer Madness frá árinu áður :D

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 19:14
af appel
Öfgafasistar dauðans. Ef Ögmundur hefði verið hér innanríkisráðherra áfram þá hefði honum þótt þetta góð hugmynd.

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 19:19
af GuðjónR
appel skrifaði:Öfgafasistar dauðans. Ef Ögmundur hefði verið hér innanríkisráðherra áfram þá hefði honum þótt þetta góð hugmynd.

Hann var byrjaður að herma efir þeim:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/ ... laggirnar/

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 19:25
af appel
Hver er munur á "LAN" og internetinu?

Next stop: INTERNETSKATTUR


En hvað með þá sem fara á ráðstefnur með fartölvur sínar? Eða eru á LAN í skóla? Á að skattleggja alla staði þar sem tölvur geta talað saman á LANi?

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 19:41
af GuðjónR
appel skrifaði:Hver er munur á "LAN" og internetinu?

Next stop: INTERNETSKATTUR


En hvað með þá sem fara á ráðstefnur með fartölvur sínar? Eða eru á LAN í skóla? Á að skattleggja alla staði þar sem tölvur geta talað saman á LANi?


Skattur ef það er LAN með cat5 en ekki ef það er LAN með WiFi ? :-k
Spurning hvenær súrefnisskatturinn verður settur á.

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 20:17
af Haffi
Eins og ég skil þessa frétt þá er verið að skattleggja keppnir þar sem peningar eiga í hlut, en ekki einkasamkvæmi eða frjálsa spilun.

Greinin segir "...requests all companies and economic associations which organize games on computers in a LAN environment to apply for a permit.". Þá er verið að tala um lan mót sem haldin eru af fyrirtækjum sem sérhæfa sig í slíku, sem oftast er þá keppt uppá peninga og menn borga x upphæð til að vera með.

Það er nákvæmlega sama uppsetning og á Póker mótum - menn borga x til að vera með og þeir sem sigra standa uppi með stórar upphæðir.

Þetta á ekki við þegar stór vinahópir LANar í sumarbústað, eða háskóli er með Dota keppni milli deilda og þess háttar.



Sá þetta svar á facebook og ég get ekki skilið þetta öðruvísi. Finnst ekkert að þessu!

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 20:23
af Xberg
GuðjónR skrifaði:
appel skrifaði:Hver er munur á "LAN" og internetinu?

Next stop: INTERNETSKATTUR


En hvað með þá sem fara á ráðstefnur með fartölvur sínar? Eða eru á LAN í skóla? Á að skattleggja alla staði þar sem tölvur geta talað saman á LANi?


Skattur ef það er LAN með cat5 en ekki ef það er LAN með WiFi ? :-k
Spurning hvenær súrefnisskatturinn verður settur á.



Erum við ekki að borga hálfgerðan súrefnisskatt með þessum blessaða nefskatti :hnuss

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 20:25
af appel
Haffi skrifaði:
Eins og ég skil þessa frétt þá er verið að skattleggja keppnir þar sem peningar eiga í hlut, en ekki einkasamkvæmi eða frjálsa spilun.

Greinin segir "...requests all companies and economic associations which organize games on computers in a LAN environment to apply for a permit.". Þá er verið að tala um lan mót sem haldin eru af fyrirtækjum sem sérhæfa sig í slíku, sem oftast er þá keppt uppá peninga og menn borga x upphæð til að vera með.

Það er nákvæmlega sama uppsetning og á Póker mótum - menn borga x til að vera með og þeir sem sigra standa uppi með stórar upphæðir.

Þetta á ekki við þegar stór vinahópir LANar í sumarbústað, eða háskóli er með Dota keppni milli deilda og þess háttar.



Sá þetta svar á facebook og ég get ekki skilið þetta öðruvísi. Finnst ekkert að þessu!


Er ekki nóg að skattleggja vinninga?

Það er spilað til fjár í fullt af sportum. Peningarnir eru líklega mestir í fótboltanum. EN það er líka spilað til fjár í golfi.

Hví á að taka "e-sports" sérstaklega fyrir? Þetta hefur verið vaxandi sport undanfarin ár, og DreamHack laðar að sér helstu spilara heims í "e-sports". Núna er útlit fyrir að þessi keppni leggist kannski af. Skattar nefnilega drepa allt svona frumkvöðladót. Aðeins risafyrirtæki geta ráðið við svona skattlagningu þar sem þau velta þessu bara út í vöruverðið. En mót einsog DreamHack er haldið af hugsjón, og hugsjónin drepst þegar ráðist er á hana með skattpíningu. Ekki það að keppnin ráði ekki við það fjárhagslega (veit ekki reyndar), heldur er þetta bara óréttlæti.

Re: Hvað finnst mönnum um þetta ? Skattur á að Lana ?

Sent: Fim 27. Jún 2013 22:13
af Cikster
Eða þessir aðilar flytja sig bara til annars lands og halda mótið þar. Afleiðing af því = færri "ferðamenn" sem koma og þar af leiðandi minni skatttekjur.