Síða 1 af 1

Frí bilanagreining?

Sent: Þri 25. Jún 2013 19:14
af Glazier
Sælir.. hef nú ekki kíkt hingað inn lengi þar sem tölvan mín hefur verið biluð svoldið lengi :)

En man ég ekki rétt að það var einhver tölvuverslun sem er að bjóða uppá fría bilanagreiningu á tölvum?
Ef svo er, hvaða verslun var það? :)

Re: Frí bilanagreining?

Sent: Þri 25. Jún 2013 19:16
af Haflidi85
tölvuvirkni gerðu það hérna áður fyrr, man reyndar að bróðir minn fór með vél til þeirra í bilanagreiningu fyrir um ári síðan sem átti að vera frí og svo reyndu þeir að rukka fyrir hana, var allt mjög undarlegt en með smá þrasi þá var sú bilanagreining frí :D

Re: Frí bilanagreining?

Sent: Þri 25. Jún 2013 19:45
af Gunnar Andri
Tölvuvirkni og Start veit ekki um fleiri

Re: Frí bilanagreining?

Sent: Þri 25. Jún 2013 19:59
af Glazier
Snilld.. rúlla þá í tölvuvirkni á næstunni :)

Re: Frí bilanagreining?

Sent: Þri 25. Jún 2013 20:13
af dori
Ég held að mörg fyrirtæki felli niður gjaldið fyrir bilanagreiningu ef þú lætur gera við vélina hjá þeim. Af hverju viltu endilega fara á stað sem auglýsir fría bilanagreinginu?

Nördinn og Tölvuvinir eru a.m.k. með slíkt fyrirkomulag.

Re: Frí bilanagreining?

Sent: Þri 25. Jún 2013 20:20
af Glazier
dori skrifaði:Af hverju viltu endilega fara á stað sem auglýsir fría bilanagreinginu?

Af sömu ástæðu og ég er ekki löngu búinn að fara með vélina í bilanagreiningu, á mjööög litla peninga þessa dagana.. bíladagar voru mér mjöög dýrir.

Re: Frí bilanagreining?

Sent: Þri 25. Jún 2013 23:06
af Gúrú
Haflidi85 skrifaði:tölvuvirkni gerðu það hérna áður fyrr, man reyndar að bróðir minn fór með vél til þeirra í bilanagreiningu fyrir um ári síðan sem átti að vera frí og svo reyndu þeir að rukka fyrir hana, var allt mjög undarlegt en með smá þrasi þá var sú bilanagreining frí :D


Ég o.fl. höfum einnig lent í veseni með þessa fríu bilanagreiningu frá þeim.

Mitt vesen var t.d. að bilanagreining reyndist röng.

Re: Frí bilanagreining?

Sent: Mið 26. Jún 2013 00:01
af dori
Glazier skrifaði:
dori skrifaði:Af hverju viltu endilega fara á stað sem auglýsir fría bilanagreinginu?

Af sömu ástæðu og ég er ekki löngu búinn að fara með vélina í bilanagreiningu, á mjööög litla peninga þessa dagana.. bíladagar voru mér mjöög dýrir.

Það sem ég á við er að þegar þetta er alveg frítt þá getur það komið niður á gæðum (eins og Gúrú bendir á að hafi komið fyrir hann).