Síða 1 af 1
Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 20:32
af BrynjarD
Titillinn segir margt. En er að spá í að fara með kærustuna í verslunarferð og vorum að hugsa um Boston. Mjög skiptar skoðanir á þeirri borg. En eru menn með einhverja góða reynslu af góðum og semi ódýrum verslunarferðum?
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 20:39
af Gunnar
london? oxford street!
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 20:47
af BrynjarD
Gunnar skrifaði:london? oxford street!
Jáá, það var hugmyndin fyrst. En hef komið þar nokkuð oft og London er einnig nokkuð dýr.
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 20:49
af mercury
berlín!
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 20:54
af depill
úff ekki tími ég verðinu í búðunum í London. En þetta fer soldið eftir flugverð to shopping ratio.
Frá reynslu myndi ég mæla með Washington, yndisleg borg þannig það er nóg að gera og stutt niðrí Virginia og Delaware og þar eru geðveik outlet þar sem er hægt að minna sig í fyrir lítið. Chelsea Premium Outlet í Leesburg er bara geðveikt
http://www.premiumoutlets.com/outlets/outlet.asp?id=14, muna bara að fara með þessa afsláttarbók
http://www.icelandair.is/servlet/file/C ... ENT_ID=776 frá Icelandair ( grafin á síðunni þeirra, en gefur geðveikan afslátt, sem virkar ofan á aðra afslætti sem eru veittir í verslunum ).
Stutt líka í 4th July ef þið eruð að hugsa þetta í náinni framtíð og eigið smá pening fyrir flugfarinu. Mæli samt með að gista í Virginia eða Maryland það muna miklu, bara staðsetja sig við Metroið, það er ódýrt og gott til að komast í bæinn. Hins vegar mæli ég með bílaleigubíl daginn sem þið farið í Leesburg, þegar ég var að vinna þarna leigði ég bara bíl fyrir sólarhringinn þegar mig vantaði að komast úr Maryland annars virkaði Metroið og lappirnar mjög vel fyrir allt mitt.
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 21:08
af CendenZ
Boston, NY eða Orlando
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 21:36
af Snorrivk
oxford street er nú bara ein dýrasta verslunagata í heim. En ef þú ferð aðeins út fyrir hana þá ertu kominn í allt annað verðlag
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 21:45
af Gunnar
mér fannst h&m, sport direct og primark ekki það dýrt :/
kannski ekki 1 class búðir en mjög fínar.
auðvitað full af rándýrum búðum en þessar búðir og zara og öruglega fleirri hljóta að vera með fínu verði!
eða hvað eru þær ekkert það ódýrar?
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 21:51
af BrynjarD
CendenZ skrifaði:Boston, NY eða Orlando
Mæliru með einhverju góðu (frekar ódýru þó) hóteli í Boston?
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 22:15
af Lexxinn
Boston tvímælalaust. Er þar núna og búið að vera mjög gaman
Newbury street og miðbærinn standa vel undir sínu. Verðlagið líka hérna er gjöf en ekki gjald miðað við á íslandi.
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 22:20
af CendenZ
Finndu hótel á tripadvisor, expedia eða hotels.
Sérð þar reviews um hótelið og hvað er gott og slæmt.
Passaðu þig bara að taka "rétt" mark á hlutunum, þú ert að fara til að versla. Þá skiptir fjarlægðin málin, bílastæði fyrir bílaleigubílinn þinn og svona hlutir.
Ekki taka mark á hlutum eins og að morgunmaturinn sé vondur, klósettin á ganginu ekki þrifin nógu oft etc... Þú ert að fara sofa þarna og geyma draslið, that's it
Re: Hvert er best að fara í verslunarferð?
Sent: Mán 17. Jún 2013 23:20
af J1nX
Glasgow