Síða 1 af 2

Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 21:42
af þorri69
Jæja, þá er maður búinn að upplifa það sem sumir hafa gengið í gegn, í sambandi við Tölvulistann. Ég keypti harðan disk um daginn og setti skömmu seinna í tölvuna hjá mér, og var þess strax var að það hummaði í turninum mínum, og það mikið að það leiddi út í borðið sem hann stendur á, þó að það séu gúmmí fætur á turninum. Ég færði diskinn neðst í turninn hávaðinn minkaði til muna en ekki nóg til að ég væri ánægður. ekki var hann laus í festingum og ef ég ýtti á diskin með nokkura Kg. þrýstingi þá hvarf hljóðið alveg.Ég tók líka eftir að nýi diskurinn titraði mjög mikið miðað við hinn diskinn sem ég hef í turninum.
Ég hringdi í TL og sagði þeim söguna hér að ofan og fék þau svör að ég ætti að koma með diskinn á verkstæðið og láta meta þetta, sem ég gerði daginn eftir.
Sagði verstæðismanninum hvað væri að, hann tók diskinn, prófaði og kom til baka og sagði að honum fyndist hann ekkert titra neitt óeðlilega mikið. Ég þori að veðja að hann hafi ekki verið með annan disk til samanburðar, hvað þá að leggja diskinn á borð og hlusta því það var útvarp í fullum gangi og einhverjir gaurar að tala hástöfum inni á verkstæði.
Ég þakkaði pennt fyrir mig, sagði að hérna kæmi ég ekki aftur, opnaði hurðina (sem er á annari hæð) og dúndraði diskinnum niður á bílaplanið og lokaði síðann hurðinni sallarólegur. :megasmile þetta eiga að vera svaka fagmenn, allavegana miðað við pappíra sem héngu upp á vegg í afgreiðslunni :-"
Tók síðann diskinn, labbaði í verslunina og hitti þar einn prúðann afgreiðslumann við afgreiðsuborðið. Ég sagði honum frá öllu sem hafði gengið á, sem að sýndi með miklum áhuga og undrun hvernig hafði gengið, ég rétti honum diskinn og sagði sallarólegur " þetta er seinasta skiptið sem að ég kem hérna inn, ég mun aldrei versla við ykkur aftur".

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 21:46
af thehulk
Það er fólk eins og þú sem skemmir fyrir öðrum með góða þjónustu og ofl... Hvað græddir þú á því að dúndra disknum í jörðina? Og afhverju talarðu ekki bara við verslunina og baðst um að skipta um annan disk?

Ég held að þú hafir grafið þína eigið gröf með þessari hegðun þinni

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 21:51
af Yawnk
thehulk skrifaði:Það er fólk eins og þú sem skemmir fyrir öðrum með góða þjónustu og ofl... Hvað græddir þú á því að dúndra disknum í jörðina? Og afhverju talarðu ekki bara við verslunina og baðst um að skipta um annan disk?

Ég held að þú hafir grafið þína eigið gröf með þessari hegðun þinni


Skemmir fyrir öðrum? Ég hef varla heyrt neina einustu góða sögu frá verkstæðinu hjá Tölvulistanum, hef lent í því líka með hátalaraviðgerð sem lofað var að tæki 4 daga tók 2-3 vikur.

Og afhverju talarðu ekki bara við verslunina og baðst um að skipta um annan disk? - Gerði hann það ekki? fór hann ekki með diskinn á verkstæðið og lét skoða hann og ''ekkert var að''?

:happy

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 21:56
af thehulk
Já það er svona spondant hegðun að vera með dramatíska stæla að henda disk af annari hæð á malbik, sem lætur oft viðskiptavini líta asnalega út fyrir sölumenn og fólk sem vinnur á verkstæði.

Ef ég þekki rétt yfirmann verkstæðis og Sæma sem sér um verslunina - þá held ég að þeir hefðu skipt disknum auðveldlega ef viðskiptavinurinn hefði beðið um það. Þá sérstaklega að þetta á að vera nýr diskur.

Fyrirtæki eiga að vera heiðarleg gagnvart viðskiptavinum og vice versa

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:04
af Baraoli
Átt að fara strax þegar þú tekur eftir þetta á kaup degi eða daginn eftir með þetta niður í verslun til þeirra. Ath Verslun ekki verkstæði því nýr hlutur á ekkert erindi inná verkstæði.

Ég hef tvisvar þurft að koma með nýjan gallaðan hlut til þeirra, aflgjafa sem vældi við minnsta álag og vegna óhljóða í mús sem ég keyti hjá þeim. Sagði einfaldlega hvað væri að og gekk út með nýjan hlut í staðinn 5 min seinna bæði skiptin.
Topp þjónusta.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:05
af appel
Ég skil ekki tilganginn með þessum þræði.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:08
af Hnykill
Hvað ætlaru að segja við sölumanninn þegar hann svarar.. ég henti hörðum disk í jörðina og nú virkar hann ekki ??

Hljómar ekki vel ert það ?

Hann virkaði ekki þegar þú fékkst hann og þannig áttiru að skila honum til baka.. ekki betri eða verri.. bara í því ástandi sem þú fékst hann ! ekki grýta honum í jörðina og segja að hann virkar ekki :Þ

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:12
af Squinchy
Þetta verður hláturs efni búðarinnar næstu vikurnar

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:24
af GuðjónR
þorri69 skrifaði:...opnaði hurðina (sem er á annari hæð) og dúndraði diskinnum niður á bílaplanið og lokaði síðann hurðinni sallarólegur

Ég hefði hringt á sjúkrabíl og látið vista þig á viðeigandi stofnun, svona gerir ekki eðlilegt fólk. :no
Lýsingin á þessum disk hljómar eins og um Seagate sé að ræða, ég hef aldrei átt Seagate disk sem hefur ekki a) drepist b) víbrað svona og verið með leiðindar hávaða.
Ef þú vilt fá disk sem heldur kjafti þá kaupir þú WD Red eða WD Green eða sættir þig við 2.5" diska eða það allra besta ferð í SSD.
p.s. hef ekki reynslu af Hitachi og get því ekki tjáð mig um þá.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:28
af BugsyB
Eg er með wd green disk sé er bilaður er einmitt að fara með hann á verkstæði á morgunn til að fá nýjan. Hef alltaf verið á móti wd en ákvað að prufa því hef heyrt að þeir séu orðnir góðir en var svikinn

Sent from my GT-I9505 using Tapatalk 2

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:34
af Yawnk
GuðjónR skrifaði:
þorri69 skrifaði:...opnaði hurðina (sem er á annari hæð) og dúndraði diskinnum niður á bílaplanið og lokaði síðann hurðinni sallarólegur

Ég hefði hringt á sjúkrabíl og látið vista þig á viðeigandi stofnun, svona gerir ekki eðlilegt fólk. :no

:megasmile :megasmile

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:39
af OverClocker
Þetta hljóð magnast upp í kassanum og þú áttir auðvitað að fara með alla tölvuna á verkstæðið, ekki bara diskinn. Allir diskar titra smá en það er tölvukassinn sem magnar upp hljóðið. Mig grunar að þú sért með ódýran kassa sem veldur þessu hljóði.
Ég giska á að þú hafir verið með WD black disk sem titrar meira en venjulegir diskar.

En að vera með einhverja stæla og henda disk í jörðina segir meira um þig en þá !!!!!!

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:49
af Bjosep
Þessi þráður er frábær ef maður hlustar á basscop með Merzedes Club á meðan maður les hann :guy

http://www.tonlist.is/Music/Song/81534/ ... touch_you/

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:51
af Tbot
Þetta er dæmigerður a...gangur hjá búð/verkstæði. Áttu einfaldlega að biðja hann um að koma með turninnn sem diskur var í. Hægt að setja vélina í gang og klára málið strax frammi í afgreiðslu.

En því miður virðist Tl vera enn við það sama.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:53
af rango
þorri69 skrifaði:Ekkert til að monta mig af.....


Hittir naglan á hausinn þarna, Greyið starfsfólkið.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 23:00
af jojoharalds
ég held það skiptir litlu máli hvar marr verslar á íslandi þjónustu er alltaf eitthvað sem vantar.
Nema einstaka sinnum hef ég nú verið hifaður úr skónum (fekk svo góða afgreiðslu)
Tölvutek (mjög góð þjónusta midað við það að þetta eru "mest megnis" krakkar sem vinna þarna)
Tölvulistinn(sorry ég segji þetta það er eins og að fara í bónus ENGIN þjonusta né fagmennska)
Tölvuvirkni (geðveik þjónusta reyna alltaf að hjálpa manni og ábyrgðar dót klikkar aldrei hjá þeim(hef reyndar bara einu sinni þurft að lenda í þvi)
Tölvutækni(Mjög fínt,Samt svoltið eins og Bónus,Afgreiddu þíg sjálf búð vantar stundum þjónustulundinn.)
Att.is (geðveik þjónusta gott fólk,fagmannsleg vinnubrögð,og yfirleitt gott verð)
Kisildalur(geðveik þjónusta gott fólk,fagmannsleg vinnubrögð)

svona í lok er EKKI að dæma fólkið heldur bara fyrirtækið .

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 23:24
af TraustiSig
þorri69 skrifaði:og sagði sallarólegur


Eftir að þú varst búinn að dúndra disknum í jörðina og labba út. Hvað í ****** græddiru á því?

Afhverju baðstu ekki um yfirmann og útskýrðir þetta fyrir honum. Sé ekkert að disknum og hann er 2vikna gamall þá skipta þeir honum væntanlega út. Tæknimaðurinn/Móttökumaðurinn sem tók á móti þér var kannaski ekki alveg að kveikja á hvað þú varst að meina? (hefur hugsanlega ekkert heyrt um málið fyrr en þarna á staðnum)

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 23:36
af þorri69
Er með coolermaster silencio 550 og tók það fram í símanum og á verkstæðinu. þetta var WD blue. er með ssd fyrir stýrikerfi.
Hef fengið góða þjónustu í TL en það var áður en þeir fluttu, hef hinsvegar fengið bara frábæra þjónustu hjá Tölvutek :happy , ætli ég snúi mér ekki alfarið til þeirra.
Samt betra fyrir þá að vera með öryggishjálma ef ég kæmi með bilaða vöru :megasmile :megasmile

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fim 13. Jún 2013 23:51
af J1nX
spurning um að farað ganga með þennan?
http://static.tumblr.com/rfhifik/gtNlbf ... elmogo.jpg
Mynd

edit: vantar endann á myndinni :/ en þið sjáið myndina á linknum

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 00:33
af rapport
Ég er ekki að fatta þessa gagnrýni á viðbrögðin hjá þessum gæja.

Hann kemur hingað og segir frá þeim og ég skil hann bara nokkuð vel.

Ekki að ég mundi haga mér svona en vá, oft mundi mig langa til þess þegar maður lendir á þjónustuaðila sem hreinlega pirrar mann meira frekar en að hlusta og reyna að skilja.

Tölvulistinn hefur núna val:

a) Hlæja að þessu (sem þeir virðast ætla að gera)

b) Gera ekkert.

c) Gera eitthvað fyrir þennan gaur.


Valkostur b er skynsamlegastur og meikar alveg sens, þessi gaur verður líklega aldrei ánægður með TL ever again.

Fólk á ekki eftir að skipta um skoðun á TL vegna þessa þráðar en það fer ekki og kaupir HDD þarna.

En að hlæja að þessu og hreinlega ætla ekki að reyna skilja að þeir eru að selja drasl vöru sem gerði viðskiptavin MJÖG óánægðan, það er bara bad business og hrein og klár heimska.

Ef standardinn þeirra er ekki hærri, þá má taka það til sín og hugsa málið hvar maður verslar.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 00:48
af Farcry
GuðjónR skrifaði:
þorri69 skrifaði:...opnaði hurðina (sem er á annari hæð) og dúndraði diskinnum niður á bílaplanið og lokaði síðann hurðinni sallarólegur

Ég hefði hringt á sjúkrabíl og látið vista þig á viðeigandi stofnun, svona gerir ekki eðlilegt fólk. :no
Lýsingin á þessum disk hljómar eins og um Seagate sé að ræða, ég hef aldrei átt Seagate disk sem hefur ekki a) drepist b) víbrað svona og verið með leiðindar hávaða.
Ef þú vilt fá disk sem heldur kjafti þá kaupir þú WD Red eða WD Green eða sættir þig við 2.5" diska eða það allra besta ferð í SSD.
p.s. hef ekki reynslu af Hitachi og get því ekki tjáð mig um þá.


Ég hef eingöngu keypt Seagate diska undan farin ár aldrei neitt vesen er með 8.stk í tölvunni núna frá 500gb-3000gb
Hef ekki góða reynslu af Wd diskum, ég hlyt að vera afskaplega óheppin þegar ég hef keypt wd diska(margir sem mæla þeim) þeir hafa bilað eða svakalegt leguhljóð í þeim.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 02:13
af Elisviktor
Er það TL að kenna að WD diskarnir eru stundum með hljóð?

Hef bara fengið góða þjónustu þarna :)

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 02:21
af Haflidi85
Mér finnst þetta skemmtileg saga og ég er sammála Rapport þ.e. ég skil þessi viðbrögð, en ég persónulega myndi seint gríta disknum í jörðina (kannski vantar bara allar hreðjar i mann :D ). En allavega þá hef ég einnig ömurlega viðskiptasögu af Tölvulistanum sem ég nenni ekki að fara frekar útí, en ég virðist samt allat asnast til að versla eitthvað þarna af og til.

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 02:21
af worghal
það sem ég sé við þetta að þú tapaðir einhverjum þúsundköllum og TL græddu nokkra þúsundkalla. :happy

Re: Tölvulistinn.

Sent: Fös 14. Jún 2013 02:54
af Sigurður Á
Hef ekkert nema gott um Tölvulistann að segja alltaf verið topp þjónusta þar fyrir mig.