Síða 1 af 2

Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 13:31
af tlord
Þeir sem hræðast rafmengun telja að uppsetning á Straumbeini sé til bóta.
þetta er sýnt á:
straumbeinir.is

veit einhver hvernig þetta virkar, þe hvernig tækið lætur strauminn minnka eða hverfa?

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 13:38
af dori
Hvað er þetta? Féfletting?

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 13:45
af Stutturdreki
Er þetta ekki bara jarðtenging?

Skemmtileg notkun á 'því er haldið fram' og 'sumir halda fram' á þessari síðu..

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 13:45
af tlord
mér skilst að þetta kosti yfir 100þ !!


þetta kemur í stað vírs milli núll og jarðar - en lætur ekki renna straum (eða minkar hann amk) - hmmm ???

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 13:58
af playman
það er verið að tala um rafsegulsvið, getur lesið um það hérna
http://www.who.int/peh-emf/about/Whatis ... ndex3.html

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 13:58
af jonsig
Þetta er fasviksleiðrétting ef ég skil þetta rétt. Mjög sniðugt ef þú ert rukkaður fyrir voltamper . Annars hef ég aldrei séð sönnun fyrir því að svona lítil rafsegulgeislun sé hættuleg annars er þetta tæknilega mögulegt ,kannski spurning hvort þetta sé til hagsbóta, en pottþétt useless ef nágranni þinn í blokkinni fær sér ekki svona líka.

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 14:05
af tlord
playman skrifaði:það er verið að tala um rafsegulsvið, getur lesið um það hérna
http://www.who.int/peh-emf/about/Whatis ... ndex3.html


ég vil bara vita hvernig tækið kemur í veg fyrir að núllstraumur fari í neysluvatnslagnirnar

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 14:18
af jonsig
Hef ekki haft tíma til að skoða þetta vel, en þessi tækni er ekkert bull, þótt nothæfi hennar sé umdeilt,, og kannski búið að juicea þetta smá upp í auglýsingunni

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 14:26
af tlord
þetta gerist fyrir framan lekaliða, núllunin er sett í gegnum þetta tæki.

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 14:31
af tlord
jonsig skrifaði:Hef ekki haft tíma til að skoða þetta vel, en þessi tækni er ekkert bull, þótt nothæfi hennar sé umdeilt,, og kannski búið að juicea þetta smá upp í auglýsingunni


mig langar bara að vita hvað tækið gerir,...

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 16:30
af jonsig
Gæti trúað að þetta sé bara stór spennir ,með þéttum og tölvustýringu . Við það að taka rafmagnið úr spenninum þá leita rafeindirnar ekki í hefðbundnu jörðina. Í stað þess að rafmagnið leiti til jarðar ,þá leitar það aftur í spenninn.

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 16:56
af jonsig
kannski , ekki þetta er tæki sem er setta á milli jarðarinnar frá stofninum og jarðbindingar í húsinu XD, þetta er bara rugl verð ef þetta er 100þús fyrir litla raf spólu, frekar litlar tæknilegar upplýsingar á síðunni um virkni tækisins

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 17:17
af dabbiso
Þetta er bara einföld spóla sem að hindrar 50Hz+ strauma að renna niður í jörð.
s.s takmarkar óþarfa strauma niður í spennujöfnun/jarðskaut. Mjög einföld græja. Ekki 100þ virði

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 17:22
af jonsig
dabbiso skrifaði:Þetta er bara einföld spóla sem að hindrar 50Hz+ strauma að renna niður í jörð.
s.s takmarkar óþarfa strauma niður í spennujöfnun/jarðskaut. Mjög einföld græja. Ekki 100þ virði


Thats it ????????

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 17:23
af dabbiso
jonsig skrifaði:
dabbiso skrifaði:Þetta er bara einföld spóla sem að hindrar 50Hz+ strauma að renna niður í jörð.
s.s takmarkar óþarfa strauma niður í spennujöfnun/jarðskaut. Mjög einföld græja. Ekki 100þ virði


Thats it ????????

Jubb. Sniðug hugmynd samt..
Það er bara okur í þessu hjá þeim því að þeir eru þeir einu sem eru að búa þetta til

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 17:23
af playman
jonsig skrifaði:
dabbiso skrifaði:Þetta er bara einföld spóla sem að hindrar 50Hz+ strauma að renna niður í jörð.
s.s takmarkar óþarfa strauma niður í spennujöfnun/jarðskaut. Mjög einföld græja. Ekki 100þ virði


Thats it ????????

Meigið nú ekki gleyma ísetningar kostnaðinum :guy

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 17:33
af dabbiso
playman skrifaði:
jonsig skrifaði:
dabbiso skrifaði:Þetta er bara einföld spóla sem að hindrar 50Hz+ strauma að renna niður í jörð.
s.s takmarkar óþarfa strauma niður í spennujöfnun/jarðskaut. Mjög einföld græja. Ekki 100þ virði


Thats it ????????

Meigið nú ekki gleyma ísetningar kostnaðinum :guy

Ef að plássið er til staðar í töflu nálægt skinnum, eru þetta 5 mínútur

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 17:37
af tdog
http://www.sart.is/frettir/nr/730/

Annars skiptir mestu að vera með sem best jarðskaut. Núllstraumurinn fer bara þangað sem viðnámið er minnst, ef það er minna í vatnspípunum en í jarðskautinu fer hann eftir vatnslögninni.

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 17:53
af dabbiso
tdog skrifaði:http://www.sart.is/frettir/nr/730/

Annars skiptir mestu að vera með sem best jarðskaut. Núllstraumurinn fer bara þangað sem viðnámið er minnst, ef það er minna í vatnspípunum en í jarðskautinu fer hann eftir vatnslögninni.

Þegar að þú segir jarðskaut. Ertu þá að meina núllun í heimtaug?

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 17:57
af tdog
Nei, ég er að meina jarðbindingu í sökkulskauti. Það eru tilfelli þar sem menn hafa hreinlega grafið niður spíral af þykkum koparvír í garðinum hjá sér til þess að ná almennilegu jarðsambandi.

Mynd

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 18:01
af jonsig
Maður er að velta fyrir sér hvað það mundi kosta að smella einum 3kW spenni fyrir kvíslina í íbúðina sína hehe, fínt að zappa ekki á sér rassinn eins og ég gerði hérna í den þegar ég vann í rafvirkjun.

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 18:08
af dabbiso
tdog skrifaði:Nei, ég er að meina jarðbindingu í sökkulskauti. Það eru tilfelli þar sem menn hafa hreinlega grafið niður spíral af þykkum koparvír í garðinum hjá sér til þess að ná almennilegu jarðsambandi.

Mynd

Þetta fer allt eftir hvaða kerfi á við
http://sw.swapp.lausn.is/doc/2222?wosid=false
Þarna fer hann Þorvaldur einnig aðeins yfir straumbeininn

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 18:10
af jonsig
true

Re: Straumbeinir ??

Sent: Þri 11. Jún 2013 19:31
af Squinchy
Mynd
Kostar minna :guy

Re: Straumbeinir ??

Sent: Mið 12. Jún 2013 15:49
af tlord
hér er umsókn um einkaleyfi á Straumbeininum:

http://is.espacenet.com/publicationDeta ... cale=is_IS


þetta er spóla með járnkjarna...

þetta er bara umsókn - ætli einkaleyfið fáist?