Síða 1 af 1

Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 20:48
af FuriousJoe
Sorglegar fréttir að berast..


http://visir.is/hemmi-gunn-latinn/article/2013130609613

:cry:

Fjölmiðlamaðurinn ástsæli, Hermann Gunnarsson, er látinn, 66 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur á Tælandi í dag þar sem hann var staddur í fríi.

Hermann, sem flestir landsmenn þekkja sem Hemma Gunn, var einn fremsti knattspyrnumaður Íslendinga á árum áður, og spilaði meðal annars með landsliðinu.

Hermann starfaði við fjölmiðla árum saman og náðu sjónvarpsþættir hans, Á tali hjá Hemma Gunn, miklum vinsældum á 9. áratugnum. Einkennisorð Hemma í þáttunum voru: „Verið hress, ekkert stress, bless bless.“

Þá starfaði hann um árabil hjá 365, bæði við dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Hermann lét af störfum hjá fyrirtækinu í lok apríl og hugðist leggja lokahönd á sjálfsævisögu sína, Lífshlaup Hemma

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 20:53
af worghal
what! :O
ég sá hann svo hressann um daginn :(

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 20:54
af GuðjónR
Þetta er ömurlegt! Mér líður eins og ég hafi misst ættingja þó ég hafi aldrei hitt manninn.
Furðulegt tilfinning. Blessuð sé minning hans.

Síðustu orð hans á Facebook.

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 21:08
af hagur
Einhvernveginn hálf óraunverulegt ... sorglegt.

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 21:12
af Tesy
Ég heyrði þetta í útvarpinu á leiðinni heim úr vinnu.. Var shocked!
R.I.P Hemmi Gunn

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 22:09
af BjarniTS
Hemmi var flottastur.
Blessuð sé minning hans.

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 22:21
af lukkuláki
Blessuð sé minning Hermanns Gunnarssonar. 9.desember 1946 - 4.júní 2013
Mynd

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 23:06
af J1nX
RIP Hemmi..

Verið hress, ekkert stress, bless bless!

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 23:19
af techseven
.
.
. Hvíldu í friði Hermann Gunnarrsson, þú varst einn hressasti maður sem við höfum átt.
.
.

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 23:23
af Icelandgold
Hvíldu í friði Hermann, Hvíldu í friði. :dissed :cry:

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 23:26
af appel
RIP Hemmi.

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Þri 04. Jún 2013 23:38
af vesi
Blessuð sé minning Hemma.

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Mið 05. Jún 2013 00:45
af Snikkari
Ég er ánægður fyrir hans hönd, að deyja í þokkalegum gír.
Þurfa ekki að vesælast uppí rúmí eldgamall mígandi og skítandi á sig.
Skál og farwell, og til lukku Hemmi með flutninginn.

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Mið 05. Jún 2013 01:17
af Yawnk
RIP :dissed

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Mið 05. Jún 2013 02:32
af Nördaklessa
Hvíldu í friði hemmi

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Mið 05. Jún 2013 11:01
af zobbah
Frábær og yndislega jákæður maður sem gaman var að vinna með í gamla daga á RÚV. Það leið sjaldan mínúta á milli þess sem að maður heyri þennan smitandi signature hlátur hans Hemma þegar við vorum á settinu "á tali með Hemma Gunn"
Mun sakna bjartsýni og jákvæðni póstana á facebook sem maður reyndi alltaf að taka sem veganesti inní daginn.

Hemmi átti 2 líf, en 2003 var dó hann í 8 mínútur af völdum hjartaáfalls. Eftir það kallaði hann sig "Nýji Hemmi"

Hvíl í frið meistari Hemmi

Re: Hemmi Gunn látinn

Sent: Mið 05. Jún 2013 18:48
af GuðjónR
Mynd