Síða 1 af 1

Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 12:53
af AciD_RaiN
Sælir félagar. Nú kann ég ekkert á hátalara en ég keypti nú nýverið notaða M-Audio BX5a studio monitora og ég er bara að fá hljóð úr öðrum þeirra.

Ég er búinn að prófa Jack í RCA og XLR í RCA, búinn að athuga hvort það sé tengið á hljóðkortinu, búin að prófa að skipta um öryggi en ekkert af þessu er vandamálið.

Það kemur alveg ljós á hann og heyrist svona suð úr honum eins og hann sé í gangi... Mér var að detta í hug eitthvað sambandsleysi inní honum en eins og ég sagði ofar þá kann ég ekkert á hátalara :face

Er einhver með einhverjar hugmyndir handa mér? Er kannski hægt að henda þessu í viðgerð einhversstaðar?

Mynd af hátölurunum
Mynd

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 12:56
af playman
Ef þú átt þér ferð inná Akureyri þá skal ég með glöðu geði kíkka á þetta hjá þér.

Annars geturðu prófað að tengja framhjá öllu heila klabbinu og tengt bara beint í hátalaran og séð hvað hann gerir þá.
Þá meina ég snúru beint úr magnara og beint í hátalaran.

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 13:07
af AciD_RaiN
playman skrifaði:Ef þú átt þér ferð inná Akureyri þá skal ég með glöðu geði kíkka á þetta hjá þér.

Annars geturðu prófað að tengja framhjá öllu heila klabbinu og tengt bara beint í hátalaran og séð hvað hann gerir þá.
Þá meina ég snúru beint úr magnara og beint í hátalaran.

Þakka kærlega fyrir það :D

Ef ég á að segja eins og er þá reyndi ég að opna hann um daginn en mér tókst bara rétt að opna að framan en var ekki að þora að fikta mikið í þessu ef ég myndi nú skemma eitthvað vegna fávisku minnar í þessum málum :-k

Ég á reglulega leið inn á Akureyri þannig að ef ekkert finnst út úr þessu þá fæ ég að þiggja þetta fallega boð hjá þér ;)

Hvað myndirðu rukka fyrir þetta?

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 13:17
af playman
Tjah örugglega ekki neitt, þú ert búin að vera svo góður í viðskiptun ;)
Getum allaveganna byrjað á því að skoða hann og reynt að fynna út hvað sé að hrjá hann, ef að
þetta reynist vera einhver aðgerð þá get ég skotið á þig einhverju góðu verði.

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 13:21
af AciD_RaiN
playman skrifaði:Tjah örugglega ekki neitt, þú ert búin að vera svo góður í viðskiptun ;)
Getum allaveganna byrjað á því að skoða hann og reynt að fynna út hvað sé að hrjá hann, ef að
þetta reynist vera einhver aðgerð þá get ég skotið á þig einhverju góðu verði.

Algjör snilld :) Ég ætla að prófa að skoða hann einu sinni enn en ef ég kem ekki auga á neitt þá verð ég í bandi við þig ;)

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 13:33
af playman
Gerðu það :)

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 14:04
af I-JohnMatrix-I
Eru hátalararnir ekki í ábyrgð? Margir hátalaraframleiðendur eru með 5-10 ára ábyrgð á hátölurum hjá sér.

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 14:12
af AciD_RaiN
I-JohnMatrix-I skrifaði:Eru hátalararnir ekki í ábyrgð? Margir hátalaraframleiðendur eru með 5-10 ára ábyrgð á hátölurum hjá sér.

Nú bara veit ég það ekki. Ég held líka að pósturinn hafi misst kassann með þeim því volume takkinn á þessum var brotinn og það er smá dæld á umgjörðinni að aftan :(

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 14:19
af I-JohnMatrix-I
Hefðir eiginlega átt að senda pakkann tilbaka strax og þú tókst eftir því.

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 14:42
af AciD_RaiN
I-JohnMatrix-I skrifaði:Hefðir eiginlega átt að senda pakkann tilbaka strax og þú tókst eftir því.

Held að það hefði gert lítið gagn að senda þá til baka. Ég var búinn að borga þá og ég er bara ekki þannig að ég sé að reyna að fá endurgreitt frá seljanda nema ef þetta hefði verið honum að kenna...

Tók 2 myndir. Finnst þetta nú vera helvíti subbulegir capacitors... Er möguleiki á að þeir séu að leka eða er þetta bara flux?

Mynd
Mynd

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 14:45
af playman
Mér sýnnist á öllu að þetta sé bara lím, sem er svosem ekkert óeðlilegt að finna þarna.

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 14:48
af AciD_RaiN
playman skrifaði:Mér sýnnist á öllu að þetta sé bara lím, sem er svosem ekkert óeðlilegt að finna þarna.

Datt það svosem í hug þar sem þeir eru ekkert bólgnir og þetta er úti um allt þarna...

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 15:06
af Garri
Þarna eru tvö öryggi.. tékkaðu á þeim með 1.5v batterý eða með viðnámsmæli.

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 15:20
af AciD_RaiN
Garri skrifaði:Þarna eru tvö öryggi.. tékkaðu á þeim með 1.5v batterý eða með viðnámsmæli.

Skal fara í það. Þau líta út fyrir að vera heil samt...

Þegar pósturinn missti pakkann og volume takkinn brotnaði þá hefur þetta líka brotnað... Gæti þetta ekki verið orsökin?
Mynd

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 15:27
af Squinchy
Bingó!, skipta út stilliviðnáminu

Stendur aftan á honum hvað hann er stór, getur líka haft samband við hljóðfærahúsið, þeir eru að flytja þessa inn og gera við

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 15:48
af AciD_RaiN
Squinchy skrifaði:Bingó!, skipta út stilliviðnáminu

Stendur aftan á honum hvað hann er stór, getur líka haft samband við hljóðfærahúsið, þeir eru að flytja þessa inn og gera við

Er búinn að senda þeim mail... Vona bara að þetta sé ekki dýr aðgerð :face

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 15:56
af axyne
Geturðu tekið mynd hinum megin við stilliviðnámið ?

Ef þú átt lóðbolta og smá tin gæti verið að þú getur bara gert við þetta sjálfur í staðinn fyrir að vesenast.

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 16:25
af AciD_RaiN
axyne skrifaði:Geturðu tekið mynd hinum megin við stilliviðnámið ?

Ef þú átt lóðbolta og smá tin gæti verið að þú getur bara gert við þetta sjálfur í staðinn fyrir að vesenast.

Nei það er fullta af einhverju dóti fyrir bakhliðinni þannig ég næ ekki mynd :(

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 17:00
af playman
Squinchy hefur rétt fyrir sér, og án efa er þetta eina biluninn.
Einnig gætirðu prófað að heyra í Miðbæjarradíói www.mbr.is nokkuð viss um að þeir eigi þetta.

Ef þú getur ekki eða treystir þér ekki til þess að skipta um þetta þá gæti ég gert það.
Ef að stilliviðnámið er of dírt (giska samt á 500-1000kr) þá gæti ég kanski átt það til hjá mér.
Hvað er það stórt?
Eru bara 3 pinnar á því?
Er on/off switch á því? (klikkar í því þegar að þú lækkar alveg í því?)

Re: Bilaður hátalari, hvað gæti verið að?

Sent: Mán 03. Jún 2013 17:25
af AciD_RaiN
playman skrifaði:Squinchy hefur rétt fyrir sér, og án efa er þetta eina biluninn.
Einnig gætirðu prófað að heyra í Miðbæjarradíói http://www.mbr.is nokkuð viss um að þeir eigi þetta.

Ef þú getur ekki eða treystir þér ekki til þess að skipta um þetta þá gæti ég gert það.
Ef að stilliviðnámið er of dírt (giska samt á 500-1000kr) þá gæti ég kanski átt það til hjá mér.
Hvað er það stórt?
Eru bara 3 pinnar á því?
Er on/off switch á því? (klikkar í því þegar að þú lækkar alveg í því?)

það eru bara 3 pinnar og ekkert on/off... Hvað það er stórt veit ég ekki :-#

EDIT: Þú átt PM ;)