Síða 1 af 1

Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:17
af slapi
Anyone ? Mér allaveganna sýnist ekki

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:21
af hfwf
Jújú er í HD

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:30
af slapi
Er það á aukarásinni eða ?
(er ekkert inní þessu afruglaradóti)

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:30
af hfwf
slapi skrifaði:Er það á aukarásinni eða ?
(er ekkert inní þessu afruglaradóti)


Já Rúv HD.

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:32
af slapi
Hún heitir bara Rúv aukarás hjá mér , er það Rúv HD semsagt?

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:35
af hfwf
Nú er ég ekki viss, hjá mér stendur Rúv HD Svo er Rúv Sport, gæti verið að þú þurfir ljósleiðara fyrir HD rásirnar. Veit annars ekki.

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:49
af appel
í Sjónvarpi Símans er RÚV HD á stöð 201.

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:49
af svanur08
Aldrei næ ég neinni rás í HD á mínum afruglara, skil það ekki

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:52
af slapi
Ég hringdi í 8007000 og fékk úrlausn minna mála , þurfti bara að koma þessu inní grunnáskriftina hjá mér , kostar ekkert auka.

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 15:59
af hfwf
Þá er allt vandamál úr sögunni :)

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 16:01
af AntiTrust
svanur08 skrifaði:Aldrei næ ég neinni rás í HD á mínum afruglara, skil það ekki


Þarft í sumum tilfellum um að láta virkja HD útsendingu hjá þér, IPTV yfir ADSL er ekki alltaf nógu stöðugt til að höndla HD útsendingar.

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 16:52
af Haxdal
HD rásirnar eru auka áskriftarpakki (grunnpakkinn sem er AFAIK bara Rúv HD er 0kr), þarft að hringja í 8007000 og láta skella honum á þig og þú þarft að vera með Myndlykil sem styður HD.

Ég var einmitt að sækja mér nýjan Myndlykil (skipta eldgamla sagem draslinu út) og þurfti að láta setja HD rásirnar á mig sérstaklega og er núna kominn með Rúv HD og allt ready fyrir Eurovision :megasmile

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 17:22
af Haflidi85
shit hvað það er heimskulegt að þurfa að hringja sérstaklega til að láta opna þessa hd rás, en já gerði það áðan og það tók innan við 2 mín

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 17:27
af AntiTrust
Haflidi85 skrifaði:shit hvað það er heimskulegt að þurfa að hringja sérstaklega til að láta opna þessa hd rás, en já gerði það áðan og það tók innan við 2 mín


Nei, það er nefnilega alls ekki heimskulegt. Það þarf ekki að biðja um þetta sérstaklega á ljósleiðara eða ljósneti, afþví að þær leiðir bera HD í 99% tilfella án vandræða. Ef þetta yrði virkjað default á öllum ADSL tengingum myndi hellingur af notendum verða fyrir mynd- og nettruflunum, og jafnvel syncleysi. Það þarf að skoða hverja ADSL línu fyrir sig og meta burðargetu eftir synci og línulengd þegar verið er að skoða HD möguleika.

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 18:22
af dave57
Sælir,

er ekki með neinn afruglara, er bara að að nota DVT móttakarann í sjónvarpinu, það er örbylgjuloftnet á húsinu.
Tækið virðist ekki finna HD rásina, finn bara Rúv aukarásina, veit einhver á hvaða tíðni hún er ?

Er með Samsung tæki og búinn að prófa að leita með stillt á Sweeden og Denmark...

Re: Verður Eurovison í HD á RÚV?

Sent: Lau 18. Maí 2013 18:34
af capteinninn
Verður þetta líka sýnt á vefsjónvarpi Rúv ?