Síða 1 af 1

Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Sun 12. Maí 2013 21:30
af Krissinn
Fyrir stuttu þá keypti ég og konan okkur nýtt rúm í IKEA og undir því eru svona plastkubbar/filter-ar sem eru nelgdir undir hornin 4jur. Málið er að það heyrist svo rosa mikið í rúminu þegar ...... já! hehe :D Á einhver svona rúm og er að lenda í sama vandamáli? :p Það er parket á svefnherbergis gólfinu og eflaust væri þetta mál úr sögunni ef það væri teppi en ég er ekki að fara að teppaleggja hehe. Ef einhver veit um gott ráð við til að laga þetta þá má hann endilega deila því með mér! :D

Svona lítur rúmið út:

http://www.ikea.is/products/17978

Re: Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Sun 12. Maí 2013 21:36
af Xovius
Hvað með að setja bara einhverskonar mottur undir rúmið sjálft (basically teppaleggja bara undir því :D)

Re: Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Sun 12. Maí 2013 21:46
af Krissinn
Xovius skrifaði:Hvað með að setja bara einhverskonar mottur undir rúmið sjálft (basically teppaleggja bara undir því :D)


Tja, já það væri hugmynd.... Væri ekki nóg að setja svona filter eins og maður setur undir stóla? Svona sem maður klippir út sjálfur?

Re: Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Sun 12. Maí 2013 21:46
af GuðjónR
Það er aldeilis fjör hjá ykkur \:D/
Þú getur prófað að kaupa svona parket-tappa eða hvað það kallast, filt sem þú límir undir stóla og annað til að hlífa parketinu.
Ef marrið er út af núningi rúmsins við gólfið þá gæti þetta hugsanlega lagað það.
Þetta fæst meðal annars í Bónus og kostar slikk.

Re: Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Sun 12. Maí 2013 22:03
af tdog
Kvikk Fix if horny ... Þvottapokar undir tappana.

Re: Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Sun 12. Maí 2013 22:06
af Magni81
Bolta það bara fast við vegginn hehe allt bank líka úr sögunni

Re: Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Mán 13. Maí 2013 00:42
af Krissinn
GuðjónR skrifaði:Það er aldeilis fjör hjá ykkur \:D/
Þú getur prófað að kaupa svona parket-tappa eða hvað það kallast, filt sem þú límir undir stóla og annað til að hlífa parketinu.
Ef marrið er út af núningi rúmsins við gólfið þá gæti þetta hugsanlega lagað það.
Þetta fæst meðal annars í Bónus og kostar slikk.


Hehehehe!! :p Já, Það væri gott að geta keypt svona filt sem maður getur klippt til og sniðið sjálfur þannig að það fitti vel undir þessa plasttappa sem eru undir rúminu.

Re: Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Mán 13. Maí 2013 01:52
af Lexxinn
Ég mundi frekar giska á að þetta væri í botninum á rúminu (sama vandamál). Annars er must að setja svona parket tappa undir.

Re: Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Mán 13. Maí 2013 03:02
af rapport
Lexxinn skrifaði:Ég mundi frekar giska á að þetta væri í botninum á rúminu (sama vandamál). Annars er must að setja svona parket tappa undir.


Þetta er ástæðan fyrir því að nýtt rúmm var keypt á heimilið um jólin... einhverjar helv. plötur/spítur í botninum sem nudduðust saman...

Búinn að bera ólífuolíu á öll anskotans samskeyti, filtappar, og búinn að losa burt allt sem var hægt að losa undan rúmminu...

Betra bak my ass... er eingöngu þar sem þú veður gerandi það eins og broddgöltur....

Re: Mig vantar ráðleggingar varðandi rúm!

Sent: Mán 13. Maí 2013 12:47
af Krissinn
Lexxinn skrifaði:Ég mundi frekar giska á að þetta væri í botninum á rúminu (sama vandamál). Annars er must að setja svona parket tappa undir.


Það er í rauninni ekki botn á því, ekki heill botn. Bara eins og kassi. Semsagt 2 flatar hvíthúðaðar spýtur vinstra og hægra megin svo gaflinn, uppi og niðri og þessir plast tappar sem er nelgdir undir hornin 4jur á báðum göflunum eru sirka i 1 - 1/2 cm þannig að spýturnar 2 og gaflarnir eiga ekki að snerta gólfið sjálft afþví að það er smá rifa á milli gólfs og rúmsins.

Þannig að það væri kannski nóg að sníða undir þessa 4 plast tappa 4jur filt.