Síða 1 af 1

USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 18:39
af chaplin
Svo ég er að reyna að borga fyrir HTC One DE en það krefst þess að ég sé með kreditkort frá bandaríkjunum.

Hvað get ég gert í þessari stöðu, virkar að nota PayPal, er e-h þjónusta á netinu sem ég get nýtt, hvað gera menn í þessari stöðu?

Þetta eru skilaboðin sem ég fæ.

Mynd

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 18:44
af arons4
Getur pantað þér fyrirframgreitt kreditkort sumstaðar.

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 18:49
af chaplin
Meinar þú þá USA fyrirframgreitt kort? Virka þau við slíkar greiðslur?

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 19:10
af Gúrú
Prófaðirðu neðstu línuna? Það sem stendur í villuskilaboðunum? ;)

Fullt af fólki lendir í því að þurfa að senda frekari staðfestingu á auðkenni sínu til að nota kreditkortin sín og það fer þá fram með því að
hafa samband við fyrirtækin (eins og stendur neðst) en ekki með því að redda sér nýju kreditkorti. ;)

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 19:16
af flottur
Hefuru prufað að hringja í neyðarsíma kreditkorta fyrirtækisins þíns og spyrja hvort þú getir greitt með kortinu þínu á þessari síðu sem þú ert að versla á?

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 21:25
af razrosk
Stendur hvergi í þessum skilaboðum að kortið þarf að vera USA kredit kort..

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 21:31
af chaplin
Gúrú skrifaði:Prófaðirðu neðstu línuna? Það sem stendur í villuskilaboðunum? ;)

Fullt af fólki lendir í því að þurfa að senda frekari staðfestingu á auðkenni sínu til að nota kreditkortin sín og það fer þá fram með því að
hafa samband við fyrirtækin (eins og stendur neðst) en ekki með því að redda sér nýju kreditkorti. ;)

Ég las hana, hafði samband en þurfti fá svar helst strax (hefði því auðvita bara átt að hringja). ;)

Mig minnir þó að þessi sími sé stricktaðu á US only, því hélt ég strax að þetta væri bara fyrir US kort. Er að skoða þetta aðeins betur. Takk fyrir hjálpina piltar! ;)

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 21:42
af mainman
Ferð inn á entropay.com og býrð til virtual kort, getur síðan lagt inn á það með paypal eða kreditkortinu þínu, borgar síðan með þessu korti úti, þetta er semsagt virtual kort en þú færð aldrei sent kort, sérð bara mynd af kortinu með númerinu og þriggja stafa öryggisnúmerinu.

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 22:04
af chaplin
Hringdi í HTC.

Vandamálið er að heimilisfangið mitt (á kortinu) er ekki það sama og heimilisfangið sem ég ætla að senda til. ;)

@mainman: veistu hvort það virki að stofna svona kort og setja í profileinn heimilsfang erlendis?

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 22:28
af FuriousJoe
Ég hef keypt svona virtual credit card (USA) Man ekki hvar, en google er félagi.

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 22:46
af mainman
chaplin skrifaði:Hringdi í HTC.

Vandamálið er að heimilisfangið mitt (á kortinu) er ekki það sama og heimilisfangið sem ég ætla að senda til. ;)

@mainman: veistu hvort það virki að stofna svona kort og setja í profileinn heimilsfang erlendis?


Ég þekki það ekki, kortið mitt t.d. er bara með amerísku póstnúmeri, það er póstnúmerið sem ég notaði til að kaupa mér netflix aðganginn og svo borga ég það með þessu. Ég auðvitað þarf ekki að fá neinar vörur sendar heim til mín í gegnum þau viðskipti svo ég þekki ekki þetta með heimilisfangið.

Re: USA Credit kort.

Sent: Fim 02. Maí 2013 22:47
af chaplin
Já orðinn hræddur um að þetta gæti verið smá vesen. Best að plessa þessu og biðja dömuna um að pikka bara S4 á flugvellinum, fæ mér svo hinn við tækifæri.

Takk strákar! :happy

Re: USA Credit kort.

Sent: Fös 03. Maí 2013 14:09
af Arkidas
Yfirleitt er billing address (sem þarf að vera það sem kortið er skráð á) og postal address (addressan sem sent er til) haft alveg sér, eins og á eBay og Amazon. Þannig það er skrítið að það hafi ekki verið í boði.

Re: USA Credit kort.

Sent: Fös 03. Maí 2013 15:17
af Halli25
Það er lítið mál að bæta við annarri adressu á kortið, bjallar bara í kortafyrirtækið þitt og þeir redda þessu.