Síða 1 af 3

Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 20:23
af GuðjónR
Sigmundur fékk stjórnarmyndunarumboðið fyrir nokkrum klukkustundum og það virðist sem BjarniB sé strax að fara á límingunum.
http://www.mbl.is/frettir/kosning/2013/ ... inkaleyfi/

Tregðan í Sigmundi fer greinilega í taugarnar á Bjarna.
Þessi óþolinmæði og yfirlýsingagleði mun bara að þrýsta á Framsókn að para sig með vinstri vængnum.
Á ekki von á því að þetta muni vekja sérstaka kátinu hjá xD, sé fyrir mér að þetta skemmi möguleika xD á stjórnarsamstarfi.

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 20:28
af oskar9
Bjarni B minnir mest á lítið ofdekrað barn. ÉG ÉG ÉG ÉG !!!

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 20:35
af hagur
Nkl. Hvað meinar hann með því að Framsókn hafi ekki einkaleyfi á stjórnarmyndunarumræðum? Veitir umboðið frá forsetanum Framsóknarflokknum ekki einmitt "einkaleyfið" á þessu? BB má auðvitað blaðra eins og honum sýnist við aðra flokka, en hann mun ekki geta myndað stjórn!

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 20:37
af lukkuláki
BB var örugglega ofdekrað barn hann fer í taugarnar á mér og mun gera um ókomna tíð þar sem það verður erfitt að sneiða hjá fréttum um fíflið. :crying

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 20:42
af appel
Rosalega er hann Bjarni Ben graður.

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 20:55
af lukkuláki
appel skrifaði:Rosalega er hann Bjarni Ben graður.


I wouldn't know about that but you obviously do, so...
:guy

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 20:57
af Icarus
Þetta umboð frá forsetanum er nú bara uppá punt, Sigmundur er að reyna að powerplaya-a flokkana með að gera sig eftirsóttan og hleypur á milli, hvaða flokkur vill fæstu stólana.

Ef meirihluti kjörinna þingmanna tekur sig saman og myndar ríkisstjórn getur forsetinn ekkert sagt um það, skildi aldrei hvað það var gert mikið mál úr þessu umboði.

Sérð líka hve mikið Sigmundur sleikti Ólaf upp í fjölmiðlum áður en hann fékk umboðið...

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 21:02
af daremo
Ég hló einmitt mikið að þessari frétt þegar ég sá hana fyrr í kvöld.

oskar9 skrifaði:Bjarni B minnir mest á lítið ofdekrað barn. ÉG ÉG ÉG ÉG !!!

Bjarni Ben og Sigmundur Davíð eru báðir ofdekruð börn, en við skulum bara vona að Sigmundur hafi erft örlitla heilastarfsemi ásamt öllum peningnum, og viti betur en að mynda stjórn með sjálfstæðisflokknum.

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 21:11
af GuðjónR
Mér fannst nú BB eiga vinninginn í "égersmeðjulegasturkeppninhjáforsetanum" ...
Heyrði um helgina skemmtilegt komment; "Stjórmál eru næstelsta atvinnugreinin og náskyld þeirri elstu" ...
Þegar maður sér þessa fulltrúa flokkana breima svona þá eru þetta sko orð að sönnu.

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 21:13
af vesley
Icarus skrifaði:Þetta umboð frá forsetanum er nú bara uppá punt, Sigmundur er að reyna að powerplaya-a flokkana með að gera sig eftirsóttan og hleypur á milli, hvaða flokkur vill fæstu stólana.

Ef meirihluti kjörinna þingmanna tekur sig saman og myndar ríkisstjórn getur forsetinn ekkert sagt um það, skildi aldrei hvað það var gert mikið mál úr þessu umboði.

Sérð líka hve mikið Sigmundur sleikti Ólaf upp í fjölmiðlum áður en hann fékk umboðið...


sammála. ef bb hefur samræður og mun njóta meira fylgis frá flokkunum en Sigmundur þá auðvitað myndast frekar stjórn með xd.

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 21:35
af hagur
Icarus skrifaði:Þetta umboð frá forsetanum er nú bara uppá punt, Sigmundur er að reyna að powerplaya-a flokkana með að gera sig eftirsóttan og hleypur á milli, hvaða flokkur vill fæstu stólana.

Ef meirihluti kjörinna þingmanna tekur sig saman og myndar ríkisstjórn getur forsetinn ekkert sagt um það, skildi aldrei hvað það var gert mikið mál úr þessu umboði.

Sérð líka hve mikið Sigmundur sleikti Ólaf upp í fjölmiðlum áður en hann fékk umboðið...


OK, vissi ekki að þetta umboð væri bara "punt". Svei mér þá, til hvers er þessi blessaði forseti?

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 21:40
af Xovius
hagur skrifaði:
Icarus skrifaði:Þetta umboð frá forsetanum er nú bara uppá punt, Sigmundur er að reyna að powerplaya-a flokkana með að gera sig eftirsóttan og hleypur á milli, hvaða flokkur vill fæstu stólana.

Ef meirihluti kjörinna þingmanna tekur sig saman og myndar ríkisstjórn getur forsetinn ekkert sagt um það, skildi aldrei hvað það var gert mikið mál úr þessu umboði.

Sérð líka hve mikið Sigmundur sleikti Ólaf upp í fjölmiðlum áður en hann fékk umboðið...


OK, vissi ekki að þetta umboð væri bara "punt". Svei mér þá, til hvers er þessi blessaði forseti?


Það er löngu ljóst að forsetaembættið er með öllu gagnslaust!

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 21:46
af GuðjónR
Stjórnarmyndunarumboð er langt frá því að vera punt!
Áður en þessi mbl.is grein birtist þá voru meiri líkur en minni á B+D en BB er búinn að klúðra því núna.
Sem betur fer kannsi :)

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 21:58
af biturk
mynduði fara í sleik við bb \:D/

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 22:01
af GuðjónR
biturk skrifaði:mynduði fara í sleik við bb \:D/

:pjuke

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 22:34
af GuðjónR

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Þri 30. Apr 2013 23:19
af Orri
Xovius skrifaði:Það er löngu ljóst að forsetaembættið er með öllu gagnslaust!

Sagðirðu það sama þegar Ólafur Ragnar neitaði að skrifa undir Icesave samninginn og vísaði málinu til þjóðaratkvæðargreiðslu, sem varð svo til þess að við unnum málið?

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Mið 01. Maí 2013 00:07
af daremo
Orri skrifaði:
Xovius skrifaði:Það er löngu ljóst að forsetaembættið er með öllu gagnslaust!

Sagðirðu það sama þegar Ólafur Ragnar neitaði að skrifa undir Icesave samninginn og vísaði málinu til þjóðaratkvæðargreiðslu, sem varð svo til þess að við unnum málið?


Það má alveg deila um hvort við "unnum málið" eða ekki.
Eins og Árni Páll sagði í kosningavokunni, eigum við íslendingar "enga vini". Þessi maður er/var í ríkisstjórn og veit ýmislegt sem við vitum ekki.
Erlendir kröfuhafar og fjárfestar telja að okkur (öllu landinu) sé bara alls ekki treystandi lengur eftir hamfarir sjálfstæðisflokksins þegar þeir yfirtóku bankana.
Þetta á eftir að hanga yfir okkur í mörg, mörg ár. Sama hvaða flokkur er í stjórn.

Okkur er ekki treyst lengur.
Íslendingar munu lifa við gjaldeyrishöft í langan tíma, og þetta land á eftir að breytast í Rússland níunda áratugarins. Gamlar bifreiðar, gömul vinnutæki. Gömul tækni, alls staðar. Við munum ekki upplifa heiminn eins og aðrir í vestræna heiminum í langan tíma.

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Mið 01. Maí 2013 00:27
af Moldvarpan
Það er hel dökk svartsýnin í mönnum :lol:

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Mið 01. Maí 2013 00:35
af appel
Geta menn ekki bara andað með nefinu? Voðaleg óþolinmæði er þetta í liði. Buhhh...

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Mið 01. Maí 2013 00:46
af daremo
Moldvarpan skrifaði:Það er hel dökk svartsýnin í mönnum :lol:


Þetta er ekki svartsýni. Þetta er raunsæi.

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Mið 01. Maí 2013 00:55
af upg8
Minnir á það ríkjandi viðhorf hjá þeim sem eru lengst leiddir af álversblæti, þeim þykir það gjarnan óæskilegt að hafa samkeppni um raforkukaup þar sem sá sem hefur hæsta tilboðið fær samning...

Þú nærð ekki góðum samning ef þú semur bara við einn aðila og lætur hann ráða öllu, það veit Sigmundur þó.

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Mið 01. Maí 2013 10:44
af GuðjónR
BjarniB hagar sér eins og ofdekraður krakki sem fær ekki nammið sitt STRAX!

http://www.mbl.is/frettir/kosning/2013/ ... n_moguleg/
Birgitta skrifaði:Hún gagnrýnir síðan Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, fyrir að reyna að þvinga fram samningsstöðu í fjölmiðlum. Það sé ekki vænlegt til árangurs þegar verið sé að kanna hvort samstarfsflötur sé á milli fólks.
Sammála!

Birgitta skrifaði:„Ég held að það sé mögulegt að útkoma stjórnarmyndunar muni koma öllum á óvart.
Hún gefur sterkt í skyn að B+D sé úr sögunni.
Þetta er orðið spennandi.

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Mið 01. Maí 2013 12:50
af coldcut
Birgitta kemur mér sífellt á óvart og mér finnst mikið í hana spunnið. Ég er á því að það besta sem gæti komið fyrir Ísland núna er að það væri mynduð minnihlutastjórn því þá er möguleiki á því að stjórnmál á Íslandi breytist til hins betra. Þessar flokkakosningar um mál á Alþingi eru löngu orðnar þreyttar. Hvernig geta 20manns verið sammála í einu og öllu? Það er bara ekki hægt!

En Bjarni Ben, úff! Kemur vælandi í sjónvarpið til að veiða atkvæði (hann var aldrei að fara að segja af sér!) og svo hagar hann sér núna eins og smákrakki. Vill einhver í guðanna bænum stinga upp í hann snuði svo hann hætti þessu? Sennilega hefur hann týnt silfurskeiðinni.

Sigmundur Davíð kemur mér líka á óvart því þarna fer greinilega klókur stjórnmálamaður og pistillinn sem Össur skrifaði um hann er frábær. Þó ég sé alls ekki sammála Sigmundi í mörgum málum þá er hann að koma skemmtilega á óvart!

Re: Er BjarniB að fara á taugum?

Sent: Mið 01. Maí 2013 12:57
af GuðjónR
Sigmundur er bara "aðal". xD verða bara að átta sig á því.
Óþarfi að fara í fýlu þó maðurinn ræði við aðra menn, ekki eins og þetta sé heilagt hjónaband og hann sé að halda framhjá for crying out loud.

Óskastaðan í dag væri sú að Framsókn færi ein í ríkisstjórn og litlu flokkarnir myndu verja hana vantrausti. Gera samning þess efnis og láta hann gilda í max 12 mánuði. Það ætti að gefa Framsókn allt það svigrúm sem þeir þurfa til að standa við stóru orðin og leiðrétta þann forsendubrest sem varð. Þjóðin er búin að bíða í hátt í fimm ár og hefur litla þolinmæði eftir.

Eftir þann tíma ættu menn að meta stöðuna uppá nýtt, ef þetta fyrirkomulag virkar vel þá að halda því áfram ellegar hugsa dæmið uppá nýtt.
Frekjan og yfirgangurinn í xD er hætt að vera fyndin og farin að vera örlítið pirrandi. Þeir berja sér á brjóst og þykjast vera einhverjir sigurvegarar þegar staðreynd málsins er sú að um helgia fengu þeir næst verstu kosningu frá upphafi. Ég kalla það ekki sigur. Sérstaklega ekki þar fráfarandi stjórn er sú óvinsælasta á lýðveldistímanum.