Síða 1 af 4

Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 21:12
af appel
Keppt er um 63 þingsæti, hverjir hljóta hnossið?

Framsókn: 21 þingmenn
Sjálfstæðisflokkur: 17 þingmenn
Samfylking: 8 þingmenn
Píratar: 6 þingmenn
Vinstri græn: 6 þingmenn
Björt framtíð: 5 þingmenn

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 21:29
af hfwf
Vil sjá VG tapa fleiri mönnum sömuleiðis með samfylkinguna. Óþarfi að ræða um B og D. Björt framtíð er ég voða grár á. Til í að Píratar fái þessa menn sem VG og Samfylkingin tapa.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 21:42
af Halli13
Það er næstum öruggt að ég held að framsókn og sjálfstæðis myndi ríkisstjórn, er bara spurning um hvor verður forsætisráðherra.

En vitið þið hvenar er von á fyrstu tölum?

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 21:45
af hfwf
Halli13 skrifaði:Það er næstum öruggt að ég held að framsókn og sjálfstæðis myndi ríkisstjórn, er bara spurning um hvor verður forsætisráðherra.

En vitið þið hvenar er von á fyrstu tölum?


eftir korter.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 21:45
af dori
Rosa kappsamur og jafnframt lélegur fréttamaður í beinni útsendingu frá talningu í suðurkjördæmi sagði að þeir kepptu að því að vera fyrstir með tölur kl. 22:15

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 21:47
af DaRKSTaR
sjálfstæðisflokkurinn verður stærstur.

hérna fyrir norðan hugsa ég að sjallanir komi inn 2 þingmönnum, vg fær 1, samfó 1.. píratar 1 og framsókn 1.
hinsvegar myndi ég hlæja mig máttlausann ef framsókn kemur vel út fyrir sunnann en simmi næði ekki inn hérna fyrir norðan.. væri skondið :)

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 21:59
af FriðrikH
Ekki viss um að D og B nái meirihluta. Það er búið að vera mikið af óákveðnum í könnunum og ég held að þeir séu í mun meira mæli á vinstri kanntinum þar sem mun minna er á milli flokka. En það styttist í að það skýrist.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:04
af rapport
Ég spái kosningasigri vinstri manna þó svo þeir nái ekki að mynda ríkisstjórn

Léleg mæting held ég að skrifist frekar á hægrimenn...

En kannski er ég way off...

lol - búið að fokka upp í planinu hjá RÚV heyrðist mér...

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:16
af GuðjónR
Framsókn og Píratar verða sigurvegarar.
Ríkistjórnin verður Framsókn og Sjálfstæðisflokkur, þar verður Framsókn leiðandi með Sigmund sem forsætisráðherra.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:17
af appel
Framsókn að rústa á suðurlandi. Píratar ekki enn komnir með mann inn.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:22
af MarsVolta
rapport skrifaði:Ég spái kosningasigri vinstri manna þó svo þeir nái ekki að mynda ríkisstjórn

Léleg mæting held ég að skrifist frekar á hægrimenn...

En kannski er ég way off...

lol - búið að fokka upp í planinu hjá RÚV heyrðist mér...


Haha þetta var helvíti gott

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:22
af GuðjónR
Ef Framsókn efnir ekki loforðin þá mun flokkurinn þurrkast út í næstu kosningum. Það er loforð.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:31
af appel
Svona vona Guðjón, ekki vera fúll :´þ

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:35
af appel
PÍRATAR KOMNIR MEÐ EINN ÞINGMANN!!!

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:35
af rapport
GuðjónR skrifaði:Ef Framsókn efnir ekki loforðin þá mun flokkurinn þurrkast út í næstu kosningum. Það er loforð.


Hljómar eins og sannur framsóknarmaður, lofar einhverju sem þú getur ekki fræðilega mögulega staðið við...

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:39
af appel
Píratar komnir með 4 þingmenn!

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 22:45
af rapport
Sjálfstæðis og Framsókn...

:guy :guy :guy

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 23:12
af GuðjónR
hahaha love you all :)

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 23:14
af vesley
Sjálfstæðisflokkurinn með slatta yfirburði í Reykjavík.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 23:15
af gutti
össur í fýlu :happy

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 23:18
af appel
OMG OMG OMG


Þetta er svo drullugóður bjór....

EINSTÖK ÖLGERÐ - ICELANDIC TOASTED PORTER
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=21003


A.m.k. 20 þingmenn fær þessi bjór.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 23:25
af appel
Úps, rangur þráður.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 23:25
af GuðjónR
NO BEER HERE :(
HELP!!!!

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 23:27
af appel
GuðjónR skrifaði:NO BEER HERE :(
HELP!!!!


Hverskonar... hneyksli er þetta.... bjórlaus á alþingiskosningakvöldi? Æi Guðjón minn kæri... ef þú ætlar niður í miðbæinn í kvöld þá splæsi ég á þig, en þó ekki leigubíl því það á eftir að kosta handlegg.

Re: Hvernig fara kosningarnar?

Sent: Lau 27. Apr 2013 23:28
af appel
Hversvegna er ríkisstjórnin að falla?

Amma mín veit hvers vegna:
https://www.youtube.com/watch?v=TctDlUx1pDE