Síða 1 af 1
Opnunartímar
Sent: Fös 26. Apr 2013 00:41
af capteinninn
Sit heima glorsoltinn og ætlaði að panta mér pizzu á Dominos.is en það er víst orðið lokað fyrir netpantanir þótt það sé opið í skeifunni, get heldur ekki pantað með appinu þeirra.
Þar sem ég á ekki inneign er ég í bobba, bý í miðbænum og nenni ekki að keyra upp í skeifu ef það er svo lokað þar.
Hvað gera bændur eiginlega á svona stundum ?
Re: Opnunartímar
Sent: Fös 26. Apr 2013 00:44
af Plushy
Það er alltaf opið í skeifunni, farðu þangað
Re: Opnunartímar
Sent: Fös 26. Apr 2013 00:44
af Labtec
hættir vera nutima barn sem getur ekki neitt og bakar bara sjálfur, skokkar úti 10-11 og kaupir það sem vantar
hveiti, vatn, ger, sykur, salt..og ert kominn með deig
Re: Opnunartímar
Sent: Fös 26. Apr 2013 00:45
af Gúrú
Labtec skrifaði:hættir vera nutima barn sem getur ekki neitt og bakar bara sjálfur, skokkar úti 10-11 og kaupir það sem vantar
hveiti, vatn, ger, sykur, salt..og ert kominn með deig
Ég held að þessir hlutir einir og sér myndu kosta hátt í 2000 krónur í 10-11 og það án pizzasósu, osts og áleggs.
Re: Opnunartímar
Sent: Fös 26. Apr 2013 00:49
af capteinninn
Labtec skrifaði:hættir vera nutima barn sem getur ekki neitt og bakar bara sjálfur, skokkar úti 10-11 og kaupir það sem vantar
hveiti, vatn, ger, sykur, salt..og ert kominn með deig
Er mikið fyrir að elda, er bara búinn með allt hérna heima til að elda úr annars myndi ég frekar gera gourmet pizzu. 10-11 er bara svo fjandi dýrt að það er örugglega ódýrara að taka leigubíl upp í skeifu og til baka aftur heldur en að kaupa allt til að gera almennilegan mat úr því sem fæst í 10-11 (ekki það að Dominos teljist alvöru matur).
Held ég skutlist bara upp í Dominos. Hvað er samt málið að geta ekki pantað pizzuna áður en maður fer af stað, vill helst ekki að neinn sjái mann haugast upp í Skeifu til að ná sér í eitthvað ruslfæði klukkan 1 um nóttu á virkum degi.
Re: Opnunartímar
Sent: Fös 26. Apr 2013 01:11
af Output
Geturu ekki hringt?
Re: Opnunartímar
Sent: Fös 26. Apr 2013 01:49
af Haxdal
örugglega hægt að fá pizzadeig tilbúið í 10-11 .. svo bara redda sér pizzasósu, pepperoni og osti ..
getur líka gert poor mans pizza, græjað brauð, tómatsósu, eitthvað kjötálegg og ost
eða poor mans hvítlauksbrauð, brauð, smjör og hvítlauksduft skellir þessu í ofn og þú ert set.. en þarft auðvitað að eiga eitthvað af þessu til fyrir
Re: Opnunartímar
Sent: Fös 26. Apr 2013 01:53
af capteinninn
Output skrifaði:Geturu ekki hringt?
Átti ekki inneign, skutlaðist bara niðureftir og náði mér í pizzu. Reyndar bara einn á vakt og ég var greinilega ekki eini sem langaði í pizzu.
Shit hvað ég borðaði annars yfir mig