Síða 1 af 1

Mastercard SecureCode

Sent: Fim 25. Apr 2013 18:57
af razrosk
Hæ hó, veit einhver hvernig maður breytir símanúmerinu sem er skráð/tengt við þessa SecureCode þjónustu hjá Mastercard?

Stundum þegar maður kaupir einhvað á netinu þarf maður að slá inn kóða sem að maður fær sennt í símann sinn..(líkt og auðkennisnúmer í netbönkum) en málið er að ég er með allt annað númer, í allt öðru landi og núverandi sími tekur allt annað kort (MICRO vs NANO)

Any ideas? Þarf snöggt svar.

Re: Mastercard SecureCode

Sent: Fim 25. Apr 2013 19:05
af Knubbe
Hringja í borgun og láta þá breyta þessu?

Fyrsta sem mér dettur í hug

Re: Mastercard SecureCode

Sent: Fim 25. Apr 2013 19:18
af AndriThor
Lenti í þessu um daginn, hringdi í Borgun og hún lagaði þetta.

Re: Mastercard SecureCode

Sent: Fim 25. Apr 2013 19:22
af razrosk
OK ef það er eina leiðin verð ég að bíða þar til á morgun held ég :P
Er neyðarsíminn kanski opinn 24/7 og geta þeir lagað þetta í gegnum hann?

Re: Mastercard SecureCode

Sent: Fim 25. Apr 2013 19:28
af AndriThor
Það var gefið upp eitthvað símanúmer þegar ég lenti í þessu, sem var á laugardegi. En á síðunni hjá Borgun stendur að þjónustuverið sé opið á virkum dögum svo það sakar ekki að reyna.

Re: Mastercard SecureCode

Sent: Fim 25. Apr 2013 19:58
af Pandemic
Getur látið breyta þessu allan sólahringinn hringir bara í +354 560 1600.
:)

Re: Mastercard SecureCode

Sent: Fim 25. Apr 2013 21:42
af razrosk
súper, náði að redda þessu, notaði vefspjallið þeirra :p

Re: Mastercard SecureCode

Sent: Fim 25. Apr 2013 22:05
af arons4
Sjálfur með mastercard kort hjá kreditkort.is og hef hreinlega aldrei lennt í að þurfa auðkenna þetta, en fæ hinsvegar alltaf sms þegar heimild er veitt án korts.

EDIT: Það er reyndar fyrirframgreitt þannig það gæti þýtt eitthvað.