Síða 1 af 1
Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn (I hope so)
Sent: Fim 25. Apr 2013 16:48
af Stuffz
Á þetta eftir að verða eins og með Íslandshreyfinguna 2007 "No Go!"
eða koma Píratar nýju blóði yfir á 4 flokka Ríkisfreigátuna
Hvað halda vaktarar?
Ég held að það sé tæpt.
EDIT: HMM SMÁ MISSKILNINGUR, ÉG ER AÐ SEGJA AÐ ÞAÐ ÞARF AÐ GERA BETUR TIL AÐ TRYGGJA AÐ PÍRATAR NÁI INN, ÞAÐ ÞARF NÝTT BLÓÐ OG NÝJA HUGSUN TIL AÐ VEITA RÁÐANDI ÖFLUM BETRA OG ÖFLUGARA AÐHALD, OG PÍRATAR ERU BEST TIL ÞESS FALLNIR IMO
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 16:59
af Bjosep
http://ornbardur.com/2013/04/23/5-eda-ekki-5/Eru Píratar ekki að mælast hærri en Björt framtíð skv. nýjustu tölum?
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 17:01
af Xovius
Bjosep skrifaði:http://ornbardur.com/2013/04/23/5-eda-ekki-5/
Eru Píratar ekki að mælast hærri en Björt framtíð skv. nýjustu tölum?
Jafnvel hærri en VG.
Held að það sé líklegt að við náum yfir 5% :p
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 17:05
af DaRKSTaR
skoðanakannanir er lítt að marka.. það er það sem skeður á laugardaginn sem ræður þessu.
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 17:08
af Moldvarpan
Ég hef fulla trú á að Píratar fari yfir 5% og rúmlega það.
Þetta er það sem hefur vantað lengi, fersk sjónarmið frá ungu fólki. Við þurfum ekki fleiri tröll á þing.
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 17:42
af Stuffz
Ég myndi allavegana ekki fagna sigri of snemma
held að of margt ungt fólk endi með að kjósa bara "Mömmu og Pabba flokkana" vegna þess að þau treysta sér ekki til að taka upplýsta ákvörðun.
Annars hérna eru t.d. nokkrar skoðanakannanir frá
2007 kosningunum til samanburðar við núverandi.
Íslandshreyfingin mældist með alltað 150% meira fylgi en hún svo endaði uppi með (5% en fékk 3.3%)
25 Mars
15 apríl
22 Apríl
6 Maí
11 Maí
Niðurstöður
þetta ræðst á lokametrunum, og enn getur ýmislegt gert
sumir virðast t.d. ekkert hafa lært af síðasta skipti sem þetta fyrirkomulag ríkisstjórnarfyrirkomulag var á:
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 17:52
af Moldvarpan
Ekki kjósa eftir skoðanakönnunum! Það er ekkert að marka þær.
Ef allir myndu hugsa svona þá væri ekkert lýðræði.
Kjóstu eftir þinni sannfæringu og láttu annað ekki skipta máli.
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 18:33
af capteinninn
Moldvarpan skrifaði:Ekki kjósa eftir skoðanakönnunum! Það er ekkert að marka þær.
Ef allir myndu hugsa svona þá væri ekkert lýðræði.
Kjóstu eftir þinni sannfæringu og láttu annað ekki skipta máli.
Þessar kannanir eru líka svo mikið bull, fyrir nokkrum vikum átti Framsókn að fá nánast hreinan meirihluta á þingi.
Eins og Moldvarpan segir, veljið þann flokk sem þið teljið nálægast ykkar skoðunum!
Annars var ég að senda póst á Smáís og athuga hvort þessi ummæli væru frá Smáís samtökunum sem slíkum eða persónuleg skoðun Snæbjörns, lýsti líka yfir vanþóknun minni á að þessi samtök væru að ráðast gegn einstökum flokkum í kosningum. Bíð spenntur eftir svari frá þeim.
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 20:58
af appel
Píratar... hmmmm.... það vantar prinsippfólk á þing, um að gera að kjósa píratana sem myndu verja málfrelsið með kjafti og klóm.
Kemur til greina hjá mér að kjósa þá.
En já, ég held að þeir nái fólki á þing.
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 21:04
af GuðjónR
Mér finnst þeir ekki hafa neina stefnu...kannski er það bara ég.
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 21:23
af Stuffz
Mig langar að sjá hvað þeir geta, 4-6 manns ætti að vera ágætis byrjun fyrir nýjan flokk.
Þeir þurfa að sanna sig á þessu kjörtímabili, á meðan almenningur reynir af trúa því að Framsókn geti eitthvað betur en síðast.
ég held reyndar að Framsókn hafi fengið fullt af góðviljuðu atkvæðafylgi í skoðunarkönnunum sem verðlaun fyrir að veðja á réttan hest í icesafe en það eigi ekki allt eftir að skila sér í kassann á kjördag.
held að sumir eigi eftir að finnast þeir neyðist til að treysta Sjálfstæðisflokkinum aftur þ.e.a.s. að hann hafi lært eitthvað af hörmungunum.
Ég myndi allavegana ekki vilja sjá það sama gerast fyrir Pírata og Íslandshreyfingunni að þeir fengju ekki að spreyta sig, held í minnsta lagi þetta hreyfi við svipað þenkjandi öflum í hinum flokkunum, þ.e.a.s. það er eftirspurn eftir svona nálgunum í samtíma stjórnmálum hvort sem aðrir flokkar aðlagi sig að þeim og píratar sameinist að lokum þeim flokki sem helst á samleið með þeim í þessum málum eða að píratar stækki uppí einn af stóru flokkunum á næstu áratugum, það sem skiptir samt náttúrulega mest máli er þær lýðræðisumbætur sem auknar kröfur eru gerðar um í dag af almenningi komi til skjalanna á borði og ekki bara í orði.
:]
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 21:27
af zobbah
Mér líst best á Pírata enda blöskrar mér hvernig komið er málfrelsinu í dag. Sannleiksböðlar stefna fólki hægri vinstri fyrir að segja sannleikann og þó að nær allir viðskiptavinir þeirra eiga það sameiginlegt að vera vafasamir og oft það sem fólk myndi kalla skíthæla. Á meðan Alþingi gerir ekki neitt þá græða skíthælarnir og lögfræðingar þeirra. Tek ofan fyrir DV að láta ekki bugast þrátt fyrir hótanir og töpuð mál í fáránlegu lagaumhverfi.
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 21:43
af Moldvarpan
Vel hugsandi fólk á þing..... eða kjósa þingmenn með sömu tuggurnar, veifandi gylliboðum.
Mér finnst þetta no brainer.
Afhverju er fólk svona hrætt við nýja flokka?
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn
Sent: Fim 25. Apr 2013 22:06
af Xovius
GuðjónR skrifaði:Mér finnst þeir ekki hafa neina stefnu...kannski er það bara ég.
Stefnur í hvaða málum finnst þér vanta? hérna eru ýmis samþykkt stefnuskjöl
https://x.piratar.is/polity/1/ og hérna eru önnur stefnumál
http://www.piratar.is/stefnumal/Annars veit ég að þeir reyna (ólíkt mörgum öðrum flokkum) að gefa ekki frá sér endalaus gylliboð sem hafa sér svo enga stoð í raunveruleikanum.
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn (I hope so)
Sent: Fim 25. Apr 2013 22:48
af Stuffz
Var að skoða síðuna
Voðalega er þetta sniðugt Alþingisrýni þarna hjá Pírötum
http://r.piratar.is/thingmenn/#skropararskv þessu þá er þetta mesti "Skróparinn" og "Vélmennið" lol
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn (I hope so)
Sent: Fim 25. Apr 2013 22:50
af urban
Enda maður sem að á ekkert að vera á þingi.
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn (I hope so)
Sent: Fös 26. Apr 2013 00:35
af GuðjónR
urban skrifaði:Enda maður sem að á ekkert að vera á þingi.
Eru ekki allir eyjapeyjar vinir?
Re: Eiga Píratar eftir að ná yfir 5% múrinn (I hope so)
Sent: Sun 28. Apr 2013 11:34
af Stuffz
Jæja einsog ég óttaðist
Píratar rétt slefuðu yfir 5 prósentin, þetta var alltof tæpt, EKKI hærra en BF og ekki hærri en VG (sbr comment) held að bestu skoðanakannanir sýndu þá í 180% af því sem þeir fengu svo í kassann, sýnir að maður þarf að taka þessum skoðanakönnunar tölum með stórum varnagla, þarf að gera miklu betur við næstu kosningar, ekkert að slaka á þótt tölurnar líti vel út.
og Framsóknin hjá B listanum var meira sýnd veiði en gefin þegar á hólminn var komið.
P.S. Ég hef illan bif um að BF eigi eftir að manifesta sig sem ákveðin andstaða við Pírata í © málum, vona að það verði ekki raunin.