Síða 1 af 1

Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 15:57
af Tiger
Sælir vaktarar. Mig vanntar hjálp við að búa til "logo" í photoshop. Þetta er í raun bara texti "ICE LOGOIÐ" (ekki þessi texti samt) sem þarf að vera skrifaður eins og hann sé gerður úr ís.

Einhver hérna sem væri til í svona verkefni fyrir sanngjarnan pening? Þetta prentast á boli.

Sendið mér línu ef þið hafið áhuga og þekkingu til að gera þetta og ég læt ykkur vita hvaða 2 orð þetta eru.

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 16:07
af Klemmi
Veit ekki hvort ég hljóma eins og algjör tard, en eitthvað svipað þessu nema án snjósins?

http://psd.tutsplus.com/tutorials/text- ... photoshop/

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 16:14
af Tiger
Klemmi skrifaði:Veit ekki hvort ég hljóma eins og algjör tard, en eitthvað svipað þessu nema án snjósins?

http://psd.tutsplus.com/tutorials/text- ... photoshop/


Jebb, var búinn að sjá þetta en hef hvorki tíma og "nennu" í þessi 30skref (aðalega nennu). Fyrir mig sem nota Photoshop lítið væri þetta huge tími sem færi í þetta.

Þetta færi á nokkuð dökkan gráan bakgrunn þannig að litaval yrði að vera samræmi við það svo þetta skeri sig svolítið út.

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 16:18
af Baldurmar
Ég er til í að skoða þetta.

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 17:49
af Plushy
Það er svo skemmtilegt að fara í gegnum svona tutorial þótt það taki tíma; lærir bara á því :)

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 18:08
af Hjaltiatla
Seinast þegar ég lét hanna Logo reyndar fyrir heimasíðu þá postaði ég bara á Elance.com auglýsingu með hvað ég villdi láta hanna og gaf upp budget og ég fékk sirka 30 aðila sem buðust til að taka verkið að sér (borgaði 50$ fyrir ágætis logo og favicon). Aðilinn kom með 4 hugmyndir sem ég gat valið útfrá því sem ég var að leitast eftir þegar ég gaf upp nákvæma verklýsingu. Góða við Elance að það er rating system frá viðskiptavinum og þessir hönnuðir eru einnig með portfolio.

(Btw ég setti upp 200 $ budget en þar sem þessi aðili bauðst til að gera þessa vinnu á 50 $ átti ég erfitt með að neita því :sleezyjoe )

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 19:28
af Tiger
Takk fyrir hugmyndina Hjaltiatla, sniðug hugmynd. Fékk svar hérna frá einum sem er með þetta á tæru og ætlar að bjarga mér/okkur.

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 19:41
af DJOli
Nenni ekki að gera þetta betur.

Mynd

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 20:14
af Frost
DJOli skrifaði:Nenni ekki að gera þetta betur.

Mynd


Þetta er flott hjá þér en ég get ekki hætt að sjá "YAKTIN" :lol:

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 20:17
af worghal
Frost skrifaði:
DJOli skrifaði:Nenni ekki að gera þetta betur.

Mynd


Þetta er flott hjá þér en ég get ekki hætt að sjá "YAKTIN" :lol:

vill ekki vera vondur, en þetta er allt annað en flott :-"

Re: Photoshop hjálp, ertu game?

Sent: Mán 22. Apr 2013 20:21
af Tiger
Kominn með mann í starfið þannig að læsum þessu bara áður en þetta fer í vitleysu. Takk DJOli og aðrir fyrir aðstoðina.