Síða 1 af 1

"Ísland er rasistaland"

Sent: Mán 15. Apr 2013 11:20
af hakkarin
Trúi því ekki að þeir annars ágætu félagar í Harmageddon finnist þetta vera gáfulegur pistill.

http://visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP17983

Þetta er greinilega bara eitthvað asnarlegt væl eitthvers einstaklings sem er á þeirri skoðun að allir sem ekki eru sammála honum séu rasistar. Þá finnst mér persónu árásinn á þessa konu sem að dirðist að setja spurningarmerki við það að við séum að senda fullt af penningum úr landi á krepputímum vera ósmekkleg.

Mér finnst Frosti og Jökull vera fínir gaurar en mér finnst það nú bara vera hallærislegt að tala um þennan pistil eins og að hann hafi eitthvernveginn verið gáfulegur. Þessi gaur talar um fordóma og fáfræði en alhæfir samt um að allir á Íslandi séu rasistar.

Eruð þið sammála því að Ísland sé rasistaland?

Hægt er að finna þennan pistil og síðuna sem hann er á hér: http://samraedi.wordpress.com/2013/04/08/rasistaland/

Re: "Ísland er rasistaland"

Sent: Mán 15. Apr 2013 11:39
af worghal
I fljotu bragdi tha ja, island er rasistaland.

Re: "Ísland er rasistaland"

Sent: Mán 15. Apr 2013 11:50
af Icarus
Ísland er rasistaland, og ég sé ekki þessa árás á Vigdísi í þessum pistli sem þú talar um.

Sannleikurinn er sá að Framsóknarflokkurinn er rasistaflokkur. Sjálfstæðisflokkurinn er rasistaflokkur. Vinstrihreyfingin – grænt framboð er rasistaflokkur. Samfylkingin er rasistaflokkur. Það skiptir nefnilega ekki máli hvað þú segir heldur hvað þú gerir. Á Alþingi eru 63 rasistar. Vigdís Hauksdóttir er hinsvegar eini þingmaðurinn sem hefur hingað til sýnt þau heilindi að viðurkenna að hún sé rasisti.

Re: "Ísland er rasistaland"

Sent: Mið 24. Apr 2013 20:51
af paze
Sem er yndislegt. Hefurðu farið til annara norðurlanda og séð ástandið á innflytjendum þar?