Síða 1 af 1

Millifæra pening milli landa ?

Sent: Fös 12. Apr 2013 23:02
af mundivalur
Sæl/ir
Hvernig er það, er hægt að millifæra pening milli landa eða úr banka inná paypal ?
Ég er hjá sparisjóðnum !

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Fös 12. Apr 2013 23:07
af AntiTrust
Tengir bara kreditkortið þitt við Paypal og millifærir þaðan, nokkrar leiðir þar, hann getur m.a. bara sent á þig greiðslukröfu m. email addressu.

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Fös 12. Apr 2013 23:14
af mundivalur
Já er að spá því að það eru ekki allir með paypal því miður, það eru samt einhverjir bankar hér með svona kerfi !
Þetta er ss. ungur gaur sem ekki er með paypal :)

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Fös 12. Apr 2013 23:30
af Moldvarpan
Í bankanum þínum?

Eða heimabankanum undir gjaldeyrisviðskipti?

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Fös 12. Apr 2013 23:36
af mundivalur
Ég þarf að skoða það betur :-k

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Lau 13. Apr 2013 00:00
af Bjosep
Ef þú ætlar að millifæra "hefðbundið" þá líklegast þarftu IBAN og SWIFT númer. Borgar allavega reikninga milli landa á þann hátt.

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Lau 13. Apr 2013 00:06
af mundivalur
Já var einmitt búinn að heyra um þetta IBAN og SWIFT ætli ég þurfi ekki bara að tala við bankann um það :D

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Lau 13. Apr 2013 00:33
af gugglan
getur líka notað western union ef sá sem þú ert að millifæra á hefur þannig þjónustu í sínu landi

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Lau 13. Apr 2013 00:43
af Xovius
mundivalur skrifaði:Þetta er ss. ungur gaur sem ekki er með paypal :)


Fór strax að hugsa nígeríusvindl :D

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Lau 13. Apr 2013 01:17
af Minuz1
Vilt ekki nota SWIFT nema með stórar fjárhæðir, gríðarlegur kostnaður þar á ferð.

sjá t.d hér
http://support.envato.com/index.php?/Kn ... sfers-cost

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Lau 13. Apr 2013 03:58
af worghal
Minuz1 skrifaði:Vilt ekki nota SWIFT nema með stórar fjárhæðir, gríðarlegur kostnaður þar á ferð.

sjá t.d hér
http://support.envato.com/index.php?/Kn ... sfers-cost

það var einmitt einhver gaur hér á landi sem var að borga með svona millifærslu vegna bíla varahluta og þegar peningurinn skilaði sér loksins þá var um helmingur peningsins farinn í gjöld fyrir að millifæra og hafði þessi millifærsla stoppað hjá 3-5 bönkum áður en hún komst á leiðarenda.

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Lau 13. Apr 2013 08:09
af hkr
gugglan skrifaði:getur líka notað western union ef sá sem þú ert að millifæra á hefur þannig þjónustu í sínu landi


Get tekið undir þetta, t.d. er landsbankinn með þetta:
http://www.landsbankinn.is/einstaklinga ... ternunion/

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Lau 13. Apr 2013 11:05
af Icarus
worghal skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Vilt ekki nota SWIFT nema með stórar fjárhæðir, gríðarlegur kostnaður þar á ferð.

sjá t.d hér
http://support.envato.com/index.php?/Kn ... sfers-cost

það var einmitt einhver gaur hér á landi sem var að borga með svona millifærslu vegna bíla varahluta og þegar peningurinn skilaði sér loksins þá var um helmingur peningsins farinn í gjöld fyrir að millifæra og hafði þessi millifærsla stoppað hjá 3-5 bönkum áður en hún komst á leiðarenda.


Ég lenti í því sama, var að panta varahluti frá Bandaríkjunum og þeir tóku ekki við íslenskum kreditkortum né paypal.

Re: Millifæra pening milli landa ?

Sent: Lau 13. Apr 2013 13:13
af methylman
hef notað margar millifærsluleiðir og ef ekki er paypal.com viðtakandi þá má líta á http://www.moneybookers.com sem val ?